Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Page 42

Heima er bezt - 01.01.1997, Page 42
hreinu við áramótauppgjör, heldur fyrst og fremst þeim, sem hafa eilífð- argildi. Hver er staðan í þjónustu okkar við konung kærleikans og því næst náungan, í áramótauppgjörinu? Höfum við haft þann konung að leið- arljósi á árinu, sem nú er að kveðja, eða höfum við gengið við mýrarljós heimshyggju og fánýtra hluta, snúist með í hringdansi aldarinnar kringum gullkálfinn, vanrækt þau andlegu verðmæti, sem ein standa af sér öll ára- og aldahvörf og hvorki mölur né ryð fá grandað? Svarið við þessum spurningum verðum við, hvert og eitt, að finna í eigin barmi. En hver eru þá þessi andlegu verðmæti, sem ekkert fær grandað? Þau eru innifalin í einni gjöf, sem gefin var fyrir hart nær tvöþúsund árum. Svo mikill var kær- leikur guðs við fallið mannkyn, sköpun sína, að hann gaf son sinn eingetinn, til endurlausnar öllum mönnum. En því er nú einu sinni þannig varið með sérhverja gjöf, hvort sem hún er stór eða smá, að hún kemur ekki að notum taki fyrir- hugaður þiggjandi ekki við henni. Það er órofa lögmál. Fæðingarhátíð frelsarans er nýgengin um garð hjá okkur, vafalaust með margar góðar gjafir manna á meðal, og ekkert nema gott um það að segja, að menn vilji gleðja hvern annan í tilefni þessarar miklu hátíðar kærleikans. En í öllum þeim ytri glæsileik, sem fylgir jólahaldi nútimans, megum við aldrei gleyma því, sem mestu máli skiptir, að veita viðtöku sjálfri gjöf jólanna, Jesú Kristi, sem kom í þenn- an heim til þess að leita að hinu týnda og frelsa það. Hann er sú eina gjöf þar sem allt er innifalið, til tím- anlegrar og eilífrar velferðar, vegur- inn, sannleikurinn og lífið sjálft. Aheyrandi minn, hver sem þú ert: Þessi stærsta gjöf allra gjafa stendur þér ekki aðeins til boða á heilagri jólahátíð, heldur einnig á hverri stundu allan ársins hring, hvenær sem þú vilt veita henni viðtöku. Haf- ir þú ekki enn gert Jesúm Krist að konungi lífs þíns, væri þá ekki tilval- ið að stíga það mikilsverðasta skref ævigöngunnar á tímapunkti þessara áramóta, horfa fram á veginn til hækkandi sólar í fylgd með honum? Guð gefi þér náð til þess. Arnen.,, Séra Grímkell hefur lokið máli sínu og stígur úr ræðustólnum. Glóey Mjöll er djúpt snortin af þeirri ein- urð, sem henni fannst lýsa sér í boð- un unga prestsins. Hann á áreiðan- lega eftir að leiða marga frá myrkr- inu til ljóssins, hugsar hún, þótt jarð- vegurinn sé víða grýttur og harður, þar sem hinu góða sæði er sáð á þessari jörð. „Hvað boðar nýárs blessuð sól,„ hljómar um kirkjuna og allir taka undir „I sannleik hvar sem sólin skín, er sjálfur guð að leita þín.„ Messugjörðinni er lokið. Glóey Mjöll gengur við hlið gömlu prests- ekkjunnar fram úr helgidóminum og út undir stjörnubjartan himin, sem sindrar af dýrð og fegurð. Þessu gamlárskvöldi gleymir hún aldrei. 8. feafli. Nýtt ár hefur heilsað. Þrettándinn liðinn hjá. Hátíðarskraut og gleðskap- ur að baki. Lífið færist óðum í sitt hversdagslega horf. Kaupfélagstjóra- fjölskyldan er komin frá jarðarför Hallberu, til síns heima. Örvar og Kolla læknisins horfin af landi brott til áframhaldandi náms í Þýskalandi. Jólaleyfi skólanna er lokið. Grár, þungbúinn janúarmorgunn rís yfir Súlnavogi. Fyrsti kennsludagurinn á nýju ári er runninn upp. Glóey Mjöll býr sig að heiman. Hún fagnar því heilshugar að mega nú aftur ganga til starfa sinna og takast á við verkefni líðandi stundar. Hún kvaddi prests- setrið daginn eftir að kaupfélags- stjóraijölskyldan skilaði sér heim, en það var rétt upp úr áramótunum. Henni hafa fundist dagamir lengi að líða síðan hún kom frá Ármótum og við tók þetta þrúgandi aðgerðarleysi, sem beið hennar. í húsi kaupfélags- stjórahjónanna hefur hún aldrei feng- ið að rétta ffam hjálparhönd í neinu verki, hvernig sem ástatt hefur verið. Á prestssetrinu var hennar litla ffam- lag hinsvegar þegið með þökkum. Hildibrandur kaupfélagsstjóri og Lísa hafa sýnilega ekki enn sem kom- ið er, náð að sigrast á sorginni. Þau ganga bæði hljóð með daprar brár um vettvang dagsins. En frú Lena talar í sífellu. Glóey Mjöll hefur ekki átt að venjast því þann tíma, sem hún er búin að dvelja á heimili kaupfélags- stjórahjónanna, að frúin hafi kosið hana að viðmælanda sínum, ffekar en nauðsyn hefur krafið. En ffá heim- komu ffú Lenu að aflokinni jarðarför Hallbem tengdamóður hennar, hefúr hún sótt það stíft að fá hana fyrir áheyranda, þegar aðrir óviðkomandi hafa ekki verið til staðar til að gegna því hlutverki og hún hefúr ekki getað skorast undan þeirri kvöð í aðgerðar- leysi sínu. En allt tal frú Lenu hefúr snúist um það sama og eina: Jarðarför tengdamóður hennar. Hve útförin hafi farið virðulega fram, hve athöfnin í kirkjunni hafi verið einstaklega fögur í ræðu og söng, enda vel til hennar vandað. Hve börn Hallberu hafið not- ið þess í ríkum mæli að hittast þama öll og geta sameiginlega heiðrað minningu góðrar móður með nærvem sinni. Hve gamlir vinir og sveitungar hafi reynst íjölmennir og margir langt að komnir. Þetta hafi verið órækur vottur um vinsældir þessarar miklu sæmdarkonu. Að greftrun lokinni hafi svo verið gengið til stórkostlegrar erfidrykkju í glæsilegu félagsheimili sveitarinnar, þar sem ættingjar og vin- ir, gamlir nágrannar og sveitungar, hafi mættst við hlaðið veisluborð og átt saman effirminnilega stund. Lengi hafi verið setið undir borðum og um- ræðuefnin virst vera óþijótandi. En allt hafi þettað þjónað þeim eina til- gangi að heiðra sem mest og best minningu Hallbem tengdamóður hennar. Glóey Mjöll hefur skynjað glöggt gegnum allan orðaflauminn og sí- felldar endurtekningar, órólega sam- visku og sektarkennd og hún hefur einlæga samúð með frú Lenu. Frúin hefur orðið að létta af hjarta sínu á þennan hátt, að mikla með frásögn- 38 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.