Æskan - 01.02.1963, Page 6
GITTE
yfir hné hans, niður á bekkinn, yfir
gólfið og út í hornið, sem var næst
kennslukonunni.
Hún sneri sér við og horfði á
þetta. — Verið þið grafkyrrir! sagði
hún skipandi. Síðan gekk hún út í
hornið, beygði sig og tók eitthvað
upp. hetta gekk svo fljótt, að strák-
arnir áttuðu sig alls ekki á, hvað
gerzt hafði. En Palli og Stjáni voru
blóðrjóðir og gutu hornaugum til
kennslukonunnar og hvor til annars.
— Hleyptir þú henni út úr öskj-
unni, svínið þitt? hvíslaði Stjáni. —
Skyldi hún geta haldið henni — ef
hún hefur þá náð henni? Hún héit
áfram að teikna, en honum sýndist
hún vera með eitthvað í vinstri ióf-
anum.
Tíu mínútum áður en kennslu-
stundin var úti, kallaði hún á dreng-
ina og sagði: — Sjáið þið, hvað ég er
með. Hræðið hana ekki! Er hún ekki
ialleg?
Músin stakk hausnum út á milli
fingra liennar.
— Hvar náðir þú í hana, Stjáni?
spurði hún.
Nú er liin fræga, danska söng-
stjarna, Gitte Hænning, orðin 16 ára
gömul, og er nú tekin til að leika
aðalhlutverk í alvörukvikmyndum
með frægustu leikurum Dana. Nýlega
lagði einn blaðamaður fyrir Gitte
spurningalista þann, sem hér birtist,
og svaraði Gitte honum á þennan hátt.
Það, sem mér hefur líkað bezt:
Rithöfundur ....... Stephan Zweig.
Leikrit ........ „West Side Story“.
Leikari.........Sir Laurence Oliver.
Leikkona ........... Vivian Leigh.
Kvikmyndaleikari......Cary Grant.
Kvikmyndaleikkona . Anna Magnani.
Tónskáld........ George Gershwin.
Söngvari.......... Frank Sinatra.
Söngkona................Peggy Lee.
Blóm.............. „Gleym mér ei“.
Dýr ...................... Hestar.
Litur ..................... Svart.
Árstíðir................. Sumarið.
íþróttir..............Reiðmennska.
Ferðalög...........'....íslandsför.
Bílategund ................... MC.
— Ég veiddi hana í gildru, sem
amma átti, riti í skógi.
— Já, ég sé, að þetta er skógarmús.
En úr því að þú mátt ekki hafa hana
heima hjá þér, máttu ekki heldur
hafa hana í skólanum. Nú förurn
við <>11 með hana út í skóg. — En þið
verðið að fara hægt, svo að þið trufl-
ið hana ekki.
Allir 3. bekkingar læddust út fyr-
ir skólahliðið, en þá æptu þeir og
hrópuðu eins og drengja er siður.
En Stjáni gekk við hlið ungfrúar-
innar, og hún spjallaði við hann um
lieima og geima. Það átti nú við hann!
Þegar þeir voru á heimleið, sagði
Stjáni við Palla:
— Það getur verið — já, það er
áreiðanlegt, að hún er kvenmaður,
en hún er sú sniðugasta, sem ég hef
þekkt!
38