Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1963, Page 20

Æskan - 01.02.1963, Page 20
ÆSKAN Sigurður Guðmundsson málari. Þj óðminj asafníð. Hugmyndin um að stofna íslenzkt forn- gripasafn kom fyrst opinberlega fram i blaðagrein eftir Sigurð Guðmundsson mál- ara. Tæpum tveim árum siðar var Þjóð- minjasafn íslands (eða Forngripasafnið, eins og ]>að hét fyrst) formlega stofnað. Þetta gerðist 24. febrúar 1864. Þann dag tjáðu stiftsyfirvöldin sig reiðubúin til að taka á móti 15 merkilegum gripum, sem séra Helgi Sigurðsson prestur á Jörva bauðst til að gefa þjóðinni. Sigurður málari liafði veg og vanda af starfsemi safnsins fyrstu árin. Safninu var upphaflega komið fyrir á lofti Dómkirkj- unnar í Reykjavík, síðan lenti ])að í hrakn- ingum og fékk ekki sæmilegt húsnæði fyrr en því var fengin til afnota ]>akhæð Landsbókasafnsins árið 1908. Þaðan flutt- ist safnið í Þjóðminjasafnið nýja, sem reist var til minningar um stofnun lýðveldis á íslandi 1944. í nýja húsinu eru rúmgóð- ir sýningarsalir á tveim liæðum. Matthías Þórðarson veitti Þjóðminja- safninu forstöðu lengst allra manna. Þeg- ar hann lét af embætti, tók við því Krist- ján Eldjárn núverandi þjóðminjavörður. Hlutverk Þjóðminjasafnsins er að fræða okkur nútímamennina um andlegt líf og verkmenningu forfeðra okkar, siði þeirra og háttu. Takk fyrir kaffið. Einu sinni kom Sína litla í lieimsókn með mömmu sinni, þar sem vant var að bera þeim kaffi og alls konar góðgerðir. En að þessu sinni var þeim ekki boðið neitt og töfðu þær þó lengi. Þegar þær voru að fara sneri Sína sér við í dyr- unum og sagði: „Takk fyrir kaffið.“ Snarræðí og dlirfska. Sagan, sem hér fer á eftir, er skrifuð af Vang Hung-suo, sem er i 6. bekk barnaskólans i Peking. Hann er einn þeirra 5000 drengja og stúlkna, sem sendu ritgerð i ritgerðasamkeppni, sem barna- timi útvarpsins efndi til. Hann er félagi i ungherjahreyfingu. Það var á sunnudagsmorgni. Himinn- inn var þungbúinn, og það rigndi eins og hellt væri úr fötu. Ég og bekkjarbróð- ir minn Tai vorum báðir á heimleið eftir að hafa horft á kvikmynd, og vorum við að skrafa um leikarana. Þegar við nálg- uðumst götuhorn, sáum við, að litlum dreng, sem hélt á regnhlíf, varð fótaskort- ur á miðri akbrautinni. Hann ]á kylli- flatur þar og regnhlífin valt í burtu. I sömu andrá heyrðum við að strætis- vagn nálgaðist. Vegna ]>ess i)ve skyggnið var slæmt, vorum við liræddir um, að bil- stjórinn yrði ekki drengsins var. Strætis- vagninn geystist áfram á fullri ferð og nálgaðist óðfluga drenginn, sem lá á göt- unni. Ég fékk ákafan hjartslátt, kreisti aftur augun og greip fyrir þau með báð- um höndum. Eins og örskot fór i gegnum huga minn: Getur ungherji horft aðgerð- arlaus á ]if annars i bráðri hættu? Ég verð að koma strax til hjálpar. Þegar ég opnaði augun, var Tai félagi minn á liarða hlaupum kominn út á mitt strætið, þar sem drengurinn ]á. Hann hafði svipt rauða ungherjaklútnum af liáls- inum á sér og veifaði honum ákaft um leið og hann hrópaði: „Stanzaðu! það liggur barn á götunni!“ .... Vagninn átti hér um bil 40 metra ófarna til'drengj- anna, þegar Tai varð einnig fótaskortur. Hann hafði runnið á hálli brautinni eins og hinn drengurinn. Hræðilegri hugsun skaut leifturln-att upp í huga mínum: „Ætlar háhn að aka yfir þá báða?“ Þá steig bilstjórinn á hemlana. Vagn- inn staðnæmdist skammt frá drengjunum. Rílstjórinn hljóp út úr bílnum. Þá hafði Tai staðið á fætur og ])já]pað drengnum á fætur lika. Stanzaðu! Það liggur barn á götunni! Þarna stóð ég rennblautur i framan af regni og svita, en þó mest af tárum. Ég var alveg orðlaus. Tai kom ti! min og leiddi drcnginn. „Þú ferð heim,“ sagði hann við mig, „ég fer með drenginn lieim til sín og svo kem ég á eftir.“ Hann leiddi drenginn burt með sér. Ég horfði á eftir þeim. „Vang Hung-suo,“ sagði ég við sjálfan mig. „Þú ættir að taka liann Tai þér til fyrirmyndar. Hann brá fljótt við að koma öðrum til hjálpar. Þannig ættu ]íka allir ungherjar í nýja Kina að vera.“ Þýtt úr „China Reconstructs“. „Afi!“ sagði litla stúlltan. „Ég var frammi í eldliúsi áðan og ])á sá ég nokkuð blaupa eftir gólfinu, sem hafði enga fætur. Hvað lieldurðu að það hafi ver- ið?“ „Ég veit það eliki, góða mín!“ „Það var vatn, afi!“ „Hvað sagði pabbi þinn, þeg- ar hann sá, að pípan hans var brotin ?“ „Á ég að sleppa blótsyrðun- um, mamma l 9“ s K R Ý T L U R „Já, auðvitað!“ „Þá held ég að hann hafi ekki sagt neitt.“ ★ Kennarinn hafði skrifað tugabrotið 97,7 á töfluna og margfaldaði brotið með 10 á ])ann hátt, að liann þurrkaði kommuna út. „Jæja, Jón minn,“ mælti hann, „hvar er komman?" „Á svampinum, sem þér hald- ið á,“ svaraði Jón viðstöðu- laust. 52

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.