Valsblaðið - 01.04.1941, Side 9
VALSBLAÐIÐ
9
Handknattleiksmót Islands
1941
íslandsmeistarar
i handknattleik
1940
Meistarafl. Vals
færst um, að voræfingatíminn
væri of stuttur lil að veita knatt-
spyrnumanninum nægilega þjálf-
un undiir fyrstu kappleikina, ef
hann Iiefði ekki notið undirbún-
ingsþjálfunar að vetri til. Því hef-
ir félagið haldið uppi innanhúss-
æfingum að vetri til og lagt á-
herzlu á að knattpspyrnumenn fé-
lagsins færu á skíði. Inniæfingar
félagsins i vetur hafa ekki verið
eins vel sóttar sem skyldi, en það
kemur sér þeim mun ver nú, sem
skíðaferðir hafa engar verið í vet-
ur. Þá liafa fundir engir' orðið í
vetur hjá einstökum flokkum,
sökum erfiðleika á að fá hentugt
húsnæði. Allt þetla hendir lil þess,
að \ralsmenn sé ver undir sumarið
búnir en undanfarin ár, sem þó
liefði átt að vera öfugt.
Skynsamleg þjálfun, fram-
kvæmd af einbeittum hug og al-
varlega tekin, getur ráðið nokkura
bót á þessu, ef hún er hafin nú
þegar. Væri réttast að æfa daglega
fyrstu 14 dagana, en aðeins stutta
stund í einu, en lengja tímann
smám saman um 5—10 mín. á
dag, en fyrstu æfingarnar ættu að
vera án knattmeðferðar. Reglu-
semi um áfengi, tóbak, svefn og
mataræði hefir og mikið að segja
í þessum efnum.
Þar sem mótin í sumar verða í
einföldum umferðum, skapast
talsvert meiri æfingatími en s.l.
ár, bæði fyrir og milli móta, svo
að ekki er útilokað að vinna mætti
upp eitthvað af því, sem farizt hef-
ir fvrir i vetur, ef skynsamlega er
á hlutunum haldið, og æfingatím-
inn notaður út í yztu æsar. Það eru
því enn tækifæri fyrir góða knatt-
spyrnumenn til að ná góðum ár-
angri fyrir vormót, þó þeir hafi
ekki liaft undirbúningsþjálfun i
vetur. Ég vil samt minna þá Vals-
unga, sem ætla að æfa knatt-
spyrnu í sumar, að sennilega verð-
ur mikið úrval kappliða í liina
ýmsu flokka, en þó lielzt i meist-
araflokk. Má búast við að það
verði til þess að herða á kröfum
þeirn, sem gerðar verða lil þeirra
manna, er flokkinn eiga að fylla,
og þá helzt um bindindi, prúða
framkomu og góða æfingasókn.
ÓI. Sig.
Á síðari árum hefir handknatt-
leikur breiðzt mikið út hér á
landi. Hann á upptök sín í
Menntaskólanum hér i bænum, og
hafa svo aðrir skólar tekið upp
þessa skemmtilegu íþrótt. í fyrra
Iiélt í. S. I. fyrsta Handknattleiks-
mót Islands.
Fimmtudaginn 27. marz hófst
Handknattleiksmót íslands 1941.
Þetta er annað liandknattleiks-
mótið, sem I. S. í. heldur. Nefnd
var kosin, til þess að sjá um mót-
ið, og voru í henni tveir frá „Val“,
tveir frá „Víking“ og oddamann-
inn skipaði í. S. I.
Átta félög sendu flokka á þetla
mót; þau voru Jiessi: Ármann (4
flokka), F. H. (2 flokka, Fram (1
flokk), Haukar (2 flokka), I. R.
(2 flokka), K. R. (3 flokka), Val-
ur (3 flokka) og Víkingur (2
flokka).
Mótinu er hagað þannig, að
hver flokkur er úr eftir tvo tap-
aða leiki. Þetta mótafyrirkomulag
hefir aldrei tíðkazt hér fyrr i
handknattleik og er það fremur
óheppilegt. Að móti þessu loknu
verður flokkunum, skipt niður i
deildir (divisions) eftir styrkleika.
Þar sem þetta er nokkurskonar
„útsláttar“-keppni, er mjög lík-
legt, að úrslitin verði ekki sem
sanngjörnust, þar sem dregið er
um, hverjir leika skulu saman í
hverri umferð fyrir sig. Eftir því
sem af má ráða á mótinu eru í
I. fl.: Valur, Víkingur, Haukar og
Ármann þau félög, sem mest lik-
indi eru til að hreppi fyrstu fjög-
ur sætin. Valur er að líkindum
sterkasta félagið i I. fl.
I II. fl. eru: K.R., Í.R., Valur og
Víkingur, sem að ná fyrstu fjór-
um sætunum. K.R. og Í.R. herj-
ast um fyrsta sætið i þessum
flokki. Þau hafa hvorugt tapað
neinum leik. Valur hefir aftur á
móti tapað einum. Samt er erfitt
að segja fyrir, hver sigur ber úr
býtum.
I kvennflokki kepptu A- og R-
sveit úr Ármaiini. Sigraði A-sveit
in með 21:5 og er þvi Ármann
meistari i handknattleik í kvenn-
flokki 1941.
Vil ég svo að lokum óska þess,
að handknattleikurinn verði iðk-
aður hér á landi framvegis, og
keppendum og öðrum megi fara
fram í þessum fagra og skemmti-
lega leik. J. G. B.