Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1926, Blaðsíða 105
86
Til Blaine fluttu þau frá Winnipeg árið 1906
Sigurður keypti þegar 69 e'krur af landi, alt í blind-
skógi. Tók Sig. nú til starfa að ryðja skóg og byggja
sér heimili. Hússtæði valdi hann milli tveggja lækja,
sem báðir renna í fjörðinn. Er þar mjög fallegt -—
tanginn nú grænn sem tún og með reglulega settum
ávaxtatrjám og berjarunnum, og húsið reisulegt. Síðan
Sigurður kom vestur hingað, hefir hann stundað bú-
skap meira en lækningar, þó hefir hann ekki komist
hjá þeim með öllu, eins og þó var tilgangur hans—gat
okki neitað, er til hans var leitað, og það var oft,
einkum fyrstu árin. — Börn hafa þau hjón átt þrjú:
Sigrún, gift hérl manni, eiga þau hjón heima i Bell-
ingham; Leó Breiðfjörð, giftur hérl. konu, til heimilis
í Seattle, vinnur þar á banka; og Otto Vatne, háskóia-
kenari í Mount Shasta, Cal.
Siguður er starfsmaður hinn mesti, í hvaða skiin-
ingi sem tekið er. Hann er gáfaður og vel að sér um
flesta hluti, fróður vel, einkum um ættir manna, hinn
skemtilegasti heim að sækja, höfðinglegur á velli og
fríður sýnum. Með lækningum sínum hefir hann oft
bjargað, þar sem lærðir læknar voru frá gengnir, enda
oft ekki verið vitjað fyr en hinir hafa gefist upp. Er
það ilt til að vita, að slí'kir menn skuli eiga á hættu
fé og frelsi fyrir líknarverk. En svo hefir það oft ver-
’ð með Sigurð. Sumir—ekki allir—hin'na lærðu lækng
hafa litið hornauga til hans og jafnvel hótað honum
lögsóknum fyrir að lækna, þar sem þeir voru sjálfir
frá gengnir.
Pétur Finnsson er fæddur 29. okt. 1869 að Fitjum
í Miðfirði í Húnavatnssýlu. Foreldrar hans,
Finnur Jónsson og Margrét Tómasdóttir, bjuggu
þar allan sinn búskap. Þarvar Pétur þangað til hann
var 14 ára; eftir það var hann oftast við sjóróðra í
Garði í Gullbringusýslu. Þaðan fór hann vestur um
haf 1890, til Winnipeg, var þar á vetrum fyrstu þrjú