Afturelding - 01.11.1940, Síða 3

Afturelding - 01.11.1940, Síða 3
Fyrirtíðarmenn, þjónar hins gamla sáttmála, gátu litið fram í tímann og sagt: Það kemur ciagur á hverjum Messías mun fæðast. Spámennirnir, er sögðu fyrir komu hans, rannsökuðu til hvers eoa hvílíks tíma Andi Krists, sem í þeim bjó, benti, bá er hann vitnaði fyrirfram um píslir Krists og dýrð- ina þar á eftir. Þeir skyggöust, fyrir Anda Guðs ■ og rannsökuðu allt, fram í tímann, fram til dags- ins. Þeir sáu stjörnu renna upp í Jakob, þeir sáu rótarkvist Davíðs skjóta fram úr þurri jörð, þeir sáu, hvernig hag Naftalilands og Sebúlonslancls var snúið við, hvernig mikið ljós rann upp fyrir því landi, er í myrkri var. Þeir horfðu fram til dagsins, þegar Messías þeirra og Konungur ætti að koma. Og þegar fylling tímans kom, sendi Guð Son sinn fæddan af konu, fæddan undir lögmáli. Það var Messías, hann, sem um var spað að ætti að koma. Dagurinn var kominn, hinn fyrirheitni dagur. Fi'á englavörum hljómuðu orðin: »iYður er í dag Frels.ari fæddur, sem er Drottinn Kristur í borg Davíðs«. Það er eins og höfundur Hebreabréfsins segir. Guð hefir fyrirbúið oss það, sem betra var. Nú fáum við að horfa aftur í tímann cg líta til dags- ins, sem kominn er, dagsins, sem Jesús Kristur Konungur vor og Frelsari, Meistari og Messías fæddist á. Þjónar hins gamla sáttmála litu frarn til þeí:s, er koma átti, en við lítum aftur t.l þess, sem er þegar komið. Já, Guði sé lcf, að viö höfum öö azt þá náð að mega horfa aftur í tímann til hins fullkomnaða frelsisverks! Við þurfum ekki aðeins að vonast eftir því, sem á aö koma, heldur fáum við að lcfa Guð fyrir það, sem komið er. I dag er hjálpræðisdagur, í dag er náð Guðs að finna. Hann lætur oss finna sig í Jesú Kristi, Honum, sem fæddist í Betlehem, og hvers komu englarnir kunngjörðUi, Honum, sem hirðarnir lutu og þús- undir hafa lotið síðan. Honum, sem vitringarnir vegsömuðu og færðu gull, reykelsi og myrru. Hcn- um, sem kom 'til þess að gefa líf og nægtir, til þess að veita blindum sýn, láta þjáða lausa og boða hiö þóknanlega ár Drottins. Það er Jesús Kristur, sem er vor undursamlegi Frelsari. Enginn má ætla, að hann geti farið beint til Guðs milliliðalaust. Nei, Jesús er Meðalgang- ari milli Guðs og manna. »Ehginn kemur til Föð- urins nema fyrir mig«, sagði Jesús. I Honum sam- einast maður og Guð. Þess vegna ber oss að feta í fó-rspor hirðanna og fara að leita Frelsarans, leita IlanS', sem einn getur veitt- það, sem hjarta mannsins þráir og þarf með: eilífa sáluhjálp. í Honum er líf, og lífið var ljós. mannanna. Hann er Guð opinberaðúr í holdi. Hann ev fyrirrenn- arinn oss til heilla, já orðinn æðstí prestur að hætti Melkisedeks. Þetta er vc>r Jesús. Þetta er sá, sem fædclist í Betlehem í Júda. — Konungur konunganna og Drottinn drottnanna. J. S. J.

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.