Afturelding - 01.01.1962, Blaðsíða 12
AFTURELDING
0 L A F BARÁS:
§kng:g:ar flýjja
FRAMHALDSSAGA
4. kafli.
Viken, aðstoðarmaður lénsmanns-
ins, burstaði snjóinn af sér úti fyrir
húsinu.
Þetta var annars auma veðrið, seni
ekkert lát var á. Sami kuldi alla
daga. Það vannzt næstum ekki tími
til annars en að höggva brenni og
kynda ofna.
Lítill drengur kemur hlaupandi
og nemur staðar frammi fyrir Viken.
Hann er lafmóður. Hann spyr Viken
hvort hann vilji gera svo vel að af-
henda Adólf Láken jjetta bréf?
Drengurinn réttir fram óhreint og
kriplað bréf, með utanáskrift til
Adólfs Láken.
— Tja. Rödd Vikens er kæru-
leysisleg. Að öllum líkindum er
'þetta bréf frá konunni hans? Dreng-
urinn lítur upp. Nei, svarar hann.
það er frá Andor Solvang.
— Nú. Viken lítur jafn kæruleysis-
lega út og áður. Áttirðu að taka
svar til baka? bætir hann við.
— Nei, en ég átti að segja, að
Adólf ætti að fá bréfið svo fljótt,
sem mögulegt væri. Drengurinn
kveður og fer.
Viken horfir hugsandi á bréfið.
Hann lítur yfir byggðina, snýr húf-
unni á höfðinu og gengur síðan inn
í varðstofuna. Hann skarar í eldinn,
setzt síðan á stólinn fyrir framan
skrifborðið.
Já-já, þetta var þá bréf til fang-
ans! Frá Andor ...! Ja, hann var
nú ekki alveg óþekktur á lénsmanns-
skrifstofunni, né í varðhaldinu. Sá
karl hafði nú haft hönd með bæði
í einu og öðru um dagana — hann
hafði nú verið ennjiá verri áður, eft-
ir því sem lénsmaðurinn hafði sagt.
En hann hlaut að vera óvenjulega
grunnhygginn, að honum skyldi
detta í hug að bréfið það arna kæm-
izt ólesið til viðtakanda. Ef til vill
er efni þess ósaknæmt?
Viken tekur pappírshnífinn og
opnar bréfið hægt og rólega og les
síðan innihald þess. Hann les í hálf-
um hljóðum:
„Ef þú dirfist að segja nokkrum
frá því að við bruggum vín, þá drep-
um við þig, þegar þú kemur út úr
fangelsinu.“
Andor Solvang.
Viken klórar sér hugsandi bak
við eyrað. Svo-o! Þetta var stutt, en
mjög merkilegt og þýðingarmikið
bréf. Þetta skyldi Andor þó sannar-
lega fá borgað. Það ber ljós yfir
margt, sem var hulið. Haraldur
Viken blístrar ánægjulega. Hann
stingur bréfinu inn í umslagið og
hneppir að sér jakkanum. Það er
bezt að hamra járnið meðan Jiað er
heitt!
Þegar hann hefur lokað ofninum
vel, gengur hann fram í forstofuna
og opnar eldhúsdyrnar.
— Anna! — Ég ætla að skjótast
upp til Grönne.
Konan hans kemur fram til hans.
Jæja, en komdu fljótt aftur, svarar
hún hlýlega, því að maturinn er
alveg að verða tilbúinn.
— Já, ég kem um hæl aftur. Bless-
uð á meðan! Hann brosir glaðlega
til hennar um leið og hann hverf-
ur út um dyrnar.
Grönne lénsmaður situr hugsandi
í stclnum fyrir framan skrifborðið
á skrifstofunni sinni. Hann er mað-
ur á sextugs aldri, sléttleitur og hinn
fyrirmannlegasti. Augun eru stálgrá
og skarpleg. Nefið fremur stórt. Hin-
ar loðnu augnabrúnir og þykka yfir-
skegg gefa persónu hans þann blæ,
sem á vel við um vörð laganna.
Annars er Grönne glaðlyndur mað-
ur, aldrei kaldlyndur né erfiður.
Hann er slíkur, sem vill rétt í öllum
greinum, og gerir engan mun á
mönnum. Hver fær sinn verðskuld-
aða dóm.
Á borðinu fyrir framan hann ligg-
ur ákæruskjal Aðdólfs Láken. Hann
hefur nýlokið lestri þess.
Hann lítur hugsandi yfir gleraug-
un og uj)p í stofuloftið. Þetta er nú
fimmta ákæran á hálfum mánuði.
Allar hafa þær verið líkar hvor
annarri: Drykkjuskapur og slagsmál.
Það er eftirtektarvert, að fullveðja
menn skyldu geta haft ánægju af að
haga sér þannig dag eftir dag. Þeim
mundi sannarlega sæmra og betra
að vinna að einhverju hollara og
heilbrigðara, en slíkri dauðans eymd.
Að drekka frá sér vitið og síðan
misþyrma hver öðrum allt að dauða.
Það hlaut að vera nokkuð sérstakt
þarna í nágrenni Sólvangs. Þaðan
kom áfengið. En hver er hinn seki
— ja það var ekki gott að vita, því
að allir sem höfðu verið yfirheyrðir
á sýsluskrifstofunni, sögðust hafa
keypt áfengið í borginni. Hingað til
hafði verið ógerningur að fá nokkra
reiðu á málin. Hver mundi vera sá
er framleiddi vöruna? Að vínið var
heimalagað, sem menn drukku sig
drukkna af, á því lék enginn minnsti
vafi. Að gera húsrannsókn var alveg
ómögulegt, það fól í sér allt of mikla
hættu, meðan menn höfðu engar ör-
uggar sannanir að ganga eftir. Ef
til vill mundu einhverjar sannanir
koma fram í sambandi við Aðólf
Láken. ...