Afturelding - 01.08.1962, Síða 16
AFTURELDING
Efri myndin: Nokkur hluti mótsgesta að lokinni útisamkomu. Neðri myndin: Ungir
menn í hu^leiðin^u um það, hvernijf þeir ffeti þjónað Drottni sem bezt. Frá vinstri:
Dagbjartur Guðjónsson, Eiður Stcfánsson, Hallgr. Guðmannsson og Garðar Eoftsson.
við hvernig Drottinn opnaði og
uppfyllti hverja 'þörf, svo mögulegt
yrði að taka á móti vinunum. Og
við erum svo þakklát öllum þeim er
réttu á einn eða annan hátt fram
hjálpar- og vinar hendur. — Sökum
þess hve litlu húsnæði söfnuðurinn
hefur yfir að ráða, þurfti að fá allt
húsnæði til láns. Var kirkjan fengin
fyrir opinberar samkomur hvert
kvöld, en salur Hjálpræðishersins til
bænahalds og biblíulestra.
Sem svefnstað leyfði Skólaráð
64
ísafjarðar fúslega afnot af nokkrum
skólastofum. Og stjórn húsmæðra-
skólans svefnherbergi nemenda. Fyr-
ir mötuneytið lánaði kau[)félagsstjór-
inn fundar- og samkomusal félagsins
ásamt eldhúsi og öðru tilheyrandi.
Fyrir allt þetta erum við mjög þakk-
lát. Einnig konunum, sem með gleði
og fórnfýsi tóku að sér að sjá um
mötuneytið. Þá voru margir sem
með greiða og gestrisni opnuðu
heimili sín fyrir aðkomufólkinu, er
það mikið þakkarefni. Við gleðj-
umst yfir því, við vitum að þeir fá
sín laun.
Það var orðið áliðið dags á sunnu-
daginn, þegar flugvélin með fyrstu
mótsgestina lenti á Skipeyri. Og
brátt rann bifreiðin með farþegana
heim að stöðinni og við hvern
glugga gat að líta brosandi andlit
og veifandi hendur. Litlu síðar
komu svo smábílarnir að vestan. Og
fram yfir miðja viku bættist dag-
lega í hópinn. Söngkór Fíladelfíu
kom seint á mánudagskvöld. En
hann hafði farið hægt yfir og haldið
samkomur á nokkrum stöðum á leið-
inni.
Fyrirkomulag mótsins mun hafa
verið svipað og undanfarin ár.
Byrjað með bæn kl. 10 að morgni,
biblíulestrar eða bæn kl. 2 og 4,
vakningasamkoma 8:30. Og að henni
lokinni, bæn eftir því sem tími og
ástæður leyfðu.
Biblíulestrarnir voru haldnir af
hinum leiðandi bræðrum til skipt-
is. Á vakningasamkomunum í kirkj-
unni komu fram margir ræðumenn,
kór og hljómsveit Fíladelfíu sungu
og léku undir stjórn Árna Arin-
bjarnarsonar, en undirleik annaðist
Daníel Jónasson.
Nú var tækifæri ísfirðinga að
heyra Guðs orð boðað af svo mörg-
um. En á fyrstu samkomunum var
ekki mikil aðsókn, en fór dagvax-
andi og síðustu kvöldin var kirkjan
troðfull.
Auk þessara samkomna voru farn-
ar smá hópferðir til nærliggjandi
staða: Súðavíkur, Suðureyrar, Bol-
ungarvíkur og flateyrar.
Nú er hátíðin liðin, við höfum
kvatt systkinahópinn með þakklæti í
huga, hvert þeirra er nú aftur heima.
Okkur sem eftir vorum fannst svo
tómlegt. En við þökkum ykkur, sem
komuð og við þökkum ykkur sem
ekki gátuð komið, en fylgdust með
í bæn. Guð blessi ykkur öll.
Gu'Sbjörg Þorsteinsdótlir.