Afturelding - 01.12.1976, Side 16
á sama hátt og Atlantshafið getur ekki starfað
án straumanna sem hreinsa vatnið frá öllum
óhreinindum sem útfallið ber með sér.
Spámaðurinn Habakúk var einu sinni meðal
fólks, sem hafði fengið mikla blessun frá Guði,
en samt misst sinn andlega kraft, og hann
hrópaði: ,,Herra, endurnýja verk þitt áður en
mörg ár líða! ’ ’ Þetta er hróp frá hjörtum margra í
dag um' allan heim. Horfín vakning er okkar
stærsti söknuður. Vakning er mesta þörf
heimsins. Við þörfnumst vakningar, — hinnar
kristnu trúar, vakningar reynslu hins kristna,
vakningar Guðsvitundarinnar.
Það mun koma til að starfa að nýju.
Guð hefur lofað, að ef hans fólk leitar auglitis
hans, ef það á ný leitar auglitis hans, ef það að
nýju kemst að raun um að Guð er heilagur,
raunverulegur alvaldur, og persónulegur, þá
mun þessi sannleikur verða fluttur alheimi, og
vakningi'n mun brjótast út. Þá mun starfað á
nýjan hátt. Þeir kristnu munu hvattir til að
fyllast af Andanum. Jóhannes skírari sagði um
Krist: Hann mun sktra yður með Heilögum Anda
og eldi.
Það er eitt að vera fæddur af Guði og annað
að vera tendraður af Guði.
Ég er sannfærður um, að það er möguleiki
fyrir hvert Guðsbarn, að verða fyllt af eldi Guðs,
— að í andlegri merkingu verða líkur brenn-
andi þyrnirunnanum, sem Móses sá á eyðimörk-
inni brenna af eldi Guðs. Orðið kennir oss, að
þetta er vilji Guðs með þig, — að vera brenn-
andi af Guðdómlegum eldi dýrðarinnar. Ef þú
trúir og tekur á móti í einlægni, getur þú séð
Guðdómlegan vilja Jesú, og eldur Heilags Anda
mun fylla líf þitt og leiða þig inn í stærri sigra
og gleði, sem þú hefur aidrei áður fengið að
reyna.
Fel líf þitt Kristi í dag, svo vakningin
sem h'eimurinn þarfnast, byrji í þér.
Niðurstaða vísinda.
BÆN ER HEILSUBÓT!
Bænasamkomur, — rugl, vitleysa, eitthvað fyrir
gamaltfólk og skrítið! Þannig ekki einungis hugsa
margir, heldur hefur verið talað þannig. Sænskir
sálfræðingar hafa gert gagntækar rannsóknir á
bænum og bænalífi. Blaðið ,,Dagen” í
Stockhólmi birtir grein um þetta 1. októbers.l.
Bæði sálfræðingar og prófessorar við háskólann í
Gautaborg, hafakunngertniðurstöður sínar. Þær
eru þessar: Eldra fólk er stundar bænalíf, eldist
síðurogseinnaen aðrir. Það erþví fegrunarbót og
yngingalyf, að biðja og ákalla Drottinn. Ekki
einungis fyrir svefn, eða að morgni í heimili sínu,
heldur sækja almennar bænaguðsþjónustur í
kirkjum og samkomuhúsum.
Bæninageturfólk iðkaðstandandi, sitjandi og
16