Afturelding - 01.01.1982, Side 5
Engum hugsandi manni œtti að
geta dulist að við lifum á sérstœðum
tímum. Engin önnur öld sögunnar
hefur valdið jafn róttœkum og stór-
stigum straumhvörfum á högum og lífi
manna um allan heim. Þvíferþófjarri
að allar tœkniframfarir og vísindaaf-
rek Itafi fœrt mannkyni eintóma sœlu,
blessun og frið. Með innreið atómald-
arinnar hófst forspilið að ógnþrungn-
asta tímaskeiði sögunnar — lokahel-
förinni miklu. Geimöldin kom og
máninn var sigraður og í dag lifum við
upphaf tölvualdarinnar.
Völvu- og tölvuspár
Völvur og völvuspár hafa löngum
þótt vinsæl fyrirbæri á íslandi og
setja að jafnaði svip sinn á forsíður
sumra tímarita og blaða um áramót.
Hér verður öllum völvuspám gefið
frí. Þar sem tölvuvæðingin ryður sér
nú sem óðast til rúms í þjóðlífi okkar,
er vel við hæfi að benda á merkilegan
tölvuspádóm.
Það eru ekki lengur svartsýnir
prestar eða öfgafullir predikarar sem
tala um endalok heimsmenningar-
innar, heldur þekktir vísinda- og
stjórnmálamenn. Þeir sem vita gerst
og mest, eru hvað óttaslegnastir.
Einn fremsti tölvusérfræðingur ver-
aldar, bandaríski prófessorinn J.
Forrestor, mataði tölvu sína fyrir
rúmum 10 árum á upplýsingum er
snertu náttúruauðlindir, náttúru-
spjöll, tæknivæðingu, offjölgun,
langlífi o.s.frv. Niðurstaða tölvunnar
var á þá lund, að siðmenningin liði
undir lok á nokkru skemmri tíma en
einu kynslóðabili. Sjálf tölvan er
býrjuð að spá heimsslitum og að
okkar kynslóð sé hin síðasta!
Tákn endalokanna og
endurkoma Krísts
Fyrir þúsundum ára spáði Biblían
um tíma endalokanna. Þegar Biblían
fjallar um tíma endalokanna, gefur
hún hvorki rúm fyrir ótakmarkaða
hjartsýni né vonlausa bölsýni.
”Gætið þess að skelfast ekki“, sagði
Jesús. Til þess að skilja tákn tímanna
er nauðsynlegt að tvennt komi til. í
fyrsta lagi þurfum við að þekkja
Fiblíuna og spádómsorð hennar, og í
annan stað þurfum við að þ.ekkja
samtíð okkar.
í ljósi Biblíunnar boða tákn tím-
anna endurkomu Jesú K.rists til
þessarar jarðar, til að sækja söfnuð
sinn, dæma heiminn og til að ríkja
sem Konungur Konunga og Drott-
inn Drottna. Á Olíufjallinu spurðu
lærisveinarnir Jesú mjög mikilvægra
spuminga:
„Seg þú oss, hvencer verður þetta? Og
hvert mun tákn komu þinnar og
endaloka veraldar?"1)
Lærisveinarnir trúðu þeirri sann-
reynd að Jesús mundi koma aftur.
Nú vildu þeir vita hvenær það yrði.
Þeir vildu líka fá að vita, hvort
nokkur tákn færu á undan komu
hans. Þeir vissu að Gamla-testa-
mentið var fullt af táknum um fyrri
komu hans, sem rættust öll út í ystu
æsar. Jesús sagði lærisveinum sínum
að það yrðu tákn, sem þeir gætu séð.
Hann sagði að koma mundi fram
kynslóð sem bæri viss sérkenni, er
bentu til að endirinn væri í nánd.
Jesús talaði um hóp einkenna þar
sem öll táknin mættust í sömu kyn-
slóð. Táknin voru:
Villutrúarstefnur, styrjaldir,
hungursneyð, náttúruhamfarir, lög-
leysi og siðleysi, furðutákn á himni,
endurreisn Israels.
Nú kann einhver að segja að margt
af þessu sé ekki nýtt. Stríð, hungur,
náttúruhamfarir, siðleysi og villutrú
hafi verið til staðar á öllum tímum.
Það er rétt. En aðgætum þessi orð
Jesú: „Allt þetta er upphaf
fœðingarhríðanna“. Áður en kona
elur barn hefur hún fæðingarhríðir.
Sjálfir fæðingarverkirnir eru ekki
einkenni þess að barnið sé komið að
fæðingu. Það er aðeins þegar fæð-
ingarhríðirnar verða tíðari og harð-
ari, að móðirin veit að barnið er rétt
ókomið í heiminn. Hér er kjarninn í
merkingu þessara almennu tákna.
Einungis þegar þessi tákn, þessar
„fæðingarhríðir“, gerast tíðari og
stórfenglegri megum við vita, að
endalok tímanna standa fyrirdyrum.
Trúarieg tákn
Villutrúarkenningar af ýmsu tagi
flæða yfir í samtíð okkar. Mikill
meirihluti þessara villukenninga
kom til sögunnar á þessari öld, eða
þá skömmu fyrir síðustu aldamót.
Hér á landi höfum við andatrú, ása-
trú, Bahaitrú, guðspeki, Jehóvavotta,
Moonista og jafnvel djöfladýrkend-
ur. Jesús sagði:
„ Varist að láta nokkurn leiðayður í
villu. Margir munu koma i mínu
nafni og segja: ‘Ég er Kristur’ og
marga munu þeir leiða í villu“f)
Á síðastliðnum 10 árurn hefur
aragrúi falskrista og falsspámanna
komið fram. Einn þeirra var
Maharaj Ji frá Indlandi sem sagðist
vera Kristur og sópaði að sér fjölda
áhangenda. Hann nefndi sig gjarnan
„Drottinn frá himni í 747 þotu“.
Skuggalegasti falskristur sögunnar
birtist á sjónarsviðinu fyrir fáeinum
árum, í mynd séra Jim Jones. Ef þeir
900 karlar, konur og börn sem fórust
við „dauðasakramenti" Jones í
frumskógum Suður-Ameríku, hefðu
vitað hvað Jesús sagði um falskrista,
hefði mátt afstýra hinum hörmulegu
örlögum þeirra.
Eftir 1960 braust út mikil dulspeki
og andatrúarvakning víða um heim
sem hefur magnast allt til þessa dags.
Hérlendis hefur andatrúarkuklið
verið landlægt áratugunr saman og
valdið mörgum ómældu andlegu
tjóni og skaða. Á áttunda áratugnum
hratt kvikmyndin „særingamaður-
inn“, af stað nýrri stefnu í kvik-
myndagerð þar sem fengist var við
illa anda og djöflavald. Milljónir
flykktust á þessar dulspeki- og hroll-
vekjumyndir sem sumar hverjar hafa
numið land hér á íslandi. Biblían
heimfærir þessa dulspeki- og villu-
trúarvakningu upp á okkar tíma sér-
staklega, þegar hún segir:
„Andinn segir berlega, að á síðari
tímum muni sumir ganga af trúnni og
gefa sig að villuöndum og lœrdómum
illra anda“.3)
Hallgrimur
Guðmannsson cr for-
slöðumaður starfs
Hvitasunnumanna á
Sdfossi. Hann hcfur
sctið í ritncfnd Aftur-
ddingar og Bania-
blaðsins um árabil.