Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 23

Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 23
skírdag og föstudaginn langa. Nú var samviskan vöknuð og andleg og lík- amleg líðan mjög slæm. Þennan dag var ég svo niðurbrotinn að ég gleymi því seint. Tveir vinnufélaga minna höfðu hvatt mig til að koma á samkomur, sem Hvítasunnumenn héldu í Iðnó um páskana. Ég ákvað að fara á páskadag, ásamt kunningja mínum. Við settumst inn í miðja röð um miðjan sal. Fólkið á sviðinu vakti strax athygli mína. Mér þótti það svo innilega glatt og hamingjusamt. Ég hreint öfundaði það. í lok samkom- unnar var fólki boðið til fyrirbænar upp að sviðinu. Margir krupu til hæna í sætaröðunum. Ég hugsaði með mér að mér væri ekki vandara um en öðrum að krjúpa til bæna. Þar sem ég kraup við bekkinn hugsaði ég með mér: Guð minn, mikið vildi ég eiga það, sem þetta fólk á. Þegar ég stóð upp frá bæninni fann ég að ég var umbreyttur maður. Allt var nýtt. Guð hafði gefið mér það sem ég þráði. Það var engin blekking, heldur Guðs náð. Þegar við komum út af samkom- unni og gengum heim á leið stakk það mig að heyra fólk nota blótsyrði. Þó hafði ég blótað sjálfur allt fram að þessari samkomu. Mér leið svo vel, breytingin var svo algjör. Um leið og heim kom og ég hitti konuna mína, sagði ég: „Nú drekk ég ekki meir.“ Hún trúði því mátulega, hafði oftar heyrt eitthvað svipuð loforð. En svo tók hún eftir breytingunni, sem orðin var á mér. Vínlöngunin var horfin! Sjálf var konan mín ekki sérlega spennt fyrir trúmálum og aldrei vildi hún neitt með andatrúna hafa. En hún fór með mér á samkomu. Þá var vakningarvika og töluðu þeir Kon- ráð heitinn Þorsteinsson og Magnús Guðnason í Kirkjulækjarkoti. Eftir samkomuna spurði ég: „Hvað finnst þér?“ „Ég kem aftur“, var svarið. Hún kom aftur og frelsaðist. Við þessi umskipti gerbreyttist heimilislífið og heimilishagurinn. Nú fór heimilið að njóta þess, sem ég vann fyrir. Vínið var úr sögunni. Þegar ég frelsaðist áttum við heima í bragga. Eftir að umskiptin urðu eignuðumst við ágætis hús og þannig blessaði Guð allan okkar hag. Allt gekk eins og í sögu, gleði og friður ríkti í heimilinu. Gömlu félagarnir tóku vel eftir þessari breytingu. Þeir töldu mig hafa klikkast. Einn gamall drykkju- félagi hitti mig og bauð á fyllerí. Ég afþakkaði boðið og vitnaði fyrir honum. Þá sagði hann: „Þetta stendur nú ekki lengi hjá þér, við eigum eftir að fá okkur í glas í Vetrargarðinum. Þá lagastu aftur.“ Ég svaraði: „Sé ég klikkaður, þá vil ég ekki verða heilbrigður aftur!“ Það var lítill söknuður í þeim fé- lagsskap, sem einkum miðaðist að því að fá mann til að veita vín. Við hjónin létum bæði skírast Framhald á bls. 30

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.