Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 20

Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 20
Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson í þessu blaði gefur að lesa um ýmsar ógnir og erfiðleika, sem biblíuspámenn sögðu að koma skyldu yfir heimsbyggðina. Á ár- um áður, þegar kristnir kenni- menn brydduðu upp á spásögn- um Biblíunnar um hallæri, þrengingar og heimsendi, voru þeir hafðir að skotspæni spottara. Þeir voru kailaðir ofstækismenn og jafnvel brennisteinsprédikar- ar. Nú er öldin okkur. Reyndar hefur lítið fjölgað þeim kristnu kennimönnum, sem leggja áherslu á síðustu tíma í boðun sinni. En stjómmálamenn, vís- indamenn og framtíðarfræðingar ýmsir, vara opinskátt við að- steðjandi ógnum, sem geta leitt til heimsendis, — fyri rvaralítið. Almenningur skynjar hverful- leika þeirrar heimsmyndar, sem við búum við, og stendur magn- þrota gagnvart vandanum. Efna- hagslífið riðar á ótraustum fót- um, atvinnuleysi vex, verðbólgan geysar. Náttúruauðlindir ganga til þurrðar vegna sóunar. Meng- unin vex í lofti, á láði, í legi. Þjóðfélagsleg upplausn og ólga hvarvetna. Viðsjár aukast. Við búum í skugga sprengjunnar. Bilið milli fátækra og ríkra breikkar. Virðing fyrir lífinu þverr, fóstureyðingar eru stund- aðar í stórum stíl og líknarmorð næst á dagskrá. Hvar endar þetta? Viðbrögð fólks, í þeim löndum þar sem tjáningarfrelsi er nokk- uð, lýsa djúpstæðum ótta. í vetur hafa friðarhreyfingar vakið at- hygli fréttamiðla og mikið er tal- að um nauðsyn á friði. Fólk óttast ófrið. Fólk óttast kvalir og hörm- ungar styrjalda. Fólk óttast ást- vinamissi. Mönnum stendur ógn af þeim möguleikum að í stund- aræði verði að engu gert starf allra kynslóða. Fólk óttast ger- eyðinguna og það óttast dauð- ann. í dag hljóma slagorð eins og: „Betri rauður, en dauður“; „Betri virkur í dag, en geisla- virkur á morgun.“ Við skynjum að uppgjörið mikla, endirinn færist nær. Biblían spáir heimsendi og Jesús Kristur talaði við læri- sveina sína um hörmungar þær sem færu á undan. Eitt af táknunum, sem hann talaði um, er óttinn. „Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbyggðina, því kraftar himnanna munu bifast."1 Guðni Einursson cr framkvæmdastjórí Blaða- og bókaútgáf- unnar, og hcfur gcgnt því starfi frá því í fcbrúar, 1978.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.