Afturelding - 01.01.1982, Side 16

Afturelding - 01.01.1982, Side 16
„Tak því vel eftir orðinu og gef gcetur að vitraninni: Sjötíu sjöundir eru ákveðnar lýð þínum og þinni heilögu horg tilþessað drýgja glæpinn til fulls og fylla mœli syndanna og til þess að friðþœgja fyrir misgjörðina og leiða fram eilíft rétt- \lceti, til þess að innsigla vitrun og spá- mann og vígja hið háheilaga. Vit því og hygg að: Frá því, er orðið um endurreisn Jerúsalem út gekk, til hins smurða höfðingja, eru sjö sjö- undir, og í sextíu og tvœr sjöundir skulu torg hennar og strœti endurreisl verða, þó að þrengingartímar séu. Og eftir þœr sextíu og tvœr sjöundir mun hinn smurði afmáður verða, og hann mun ekkert eiga, og horgina og helgi- dóminn mun eyða þjóð höfðingja nokkurs, sem koma á, en hann mun farast í refsidómsflóðinu, og allt til enda mun ófriður haldast við og sú eyðing, sem fastráðin er. Og hann mun gjöra fastan sáttmála við marga um eina sjöund, og um miðja sjöund- ina mun hann afnema sláturfórn og matfórn, og á vængjum viðurstyggð- arinnar mun eyðandinn koma, en eftir það mun gjöreyðing, og hún fastráðin, steypastyfir eyðandann. Þeim sem les þennan spádóm verður Ijóst, að Jerúsalem og þar með talinn ísraelslýður, er klukka Guðs. Tíminn er sjötíu sjöundir. Sá tími leiðir hugann að atburði þeim sem greint er frá í Matteusarguðspjalli, 18:22, þegar lærisveinarnir komu til Jesú og spurðu hann hversu oft menn ættu að fyrirgefa meðbróður sínum. „Sjötíu sinnum sjö“, sagði Jesús. Sjötíu sjöundir eru með öðrum orð- um fyrirgefningar- og langlyndistala Guðs. Spádómnum er skipt í 3 tímabil eða kafla, sem afmarkast ekki af árum, heldur atburðum. Slíkt er afar Glsli Óskarsson lauk prófi frá Kennaraskóla íslands 1971, stundaði síðan framhaldsnám við Kennaraskólann í Kaupmannahöfn og er nú kcnnari við fram- haldsskólana i Vest- mannaeyjum. viturlegt og sýnir glöggt hvað orð Guðs er nájcvæmt og öruggt. Menn styðjast við mismunandi tímatöl hér á jörðu; sem dæmi má nefna að við kristnir menn teljum árið í ár, 1982 eftir Krists burð, músilmenn telja sama ár vera 1360 og búddatrúar- menn árið 2675 eftir Búdda. Af framanskrifuðu má það vera ljóst, að lítið samræmi er í tímatalinu og ár og dagsetning er ónákvæm þegar sagt er fyrir um framtíðina. Þá er nákvæm- ast að geta atburða eða atburðarrás- ar. Lítum nánar á spádóminn sjálfan og tímabil hans. A. Sjö sjöundir. Þetta er tímabil I og fjallar um endurreisn Jerúsalem. Sú endurreisn átti sér stað á árabilinu 445—396 fyrir Krists burð og fólst hún I viðgerð múranna og sjálfra borgarbygginganna. Árafjöldi þessa tímabils er 49 ár. Sjö sjöundir tákna með öðrum orðum 49 ár og er sjö- undin því jafngild 7 árum. B. Sextíu og tvær sjöundir. Eftir þessar sextíu og tvær sjöundir, (434 ár) átti hinn smurði (Messías) að verða afmáður og Jerúsalem og helgidómnum eytt. Þetta stóðst einnig. Jesús var krossfestur árið 30—33 e.Kr. og Jerúsalem og helgi- dóminum eitt af Rómverjum árið 70 e.Kr. Hershöfðingi Rómverja var Títus, síðar keisari. C. Ein sjöund. Þetta eina tímabil er ókomið. Persóna sú sem tímabilið er kennt við verður rómversk og kjarni rómverska heimsveldisins sem var, er í dag Ítalía. B-hluti spádómsins rennir stoðum undir þetta, en þar segir: „Jerúsalem og helgidóminn mun eyða þjóð höfðingja nokkurs sem koma á .. ,“2 Þessi höfðingi er oftlega nefndur anti-Kristur. Höfð- ingdómur hans verður fjörbrot þess mannfélags er nú ríkir á jörðinni. Hámark fjörbrotanna verður gífur- leg styrjöld og náttúruhamfarir, ofl nefnt Harmageddon, eða þrengingin mikla I viðari merkingu. Drögum spádómsorðið saman í mynd: 49 ár H- mrn. 434 ár Eridurreisn Jerúsalem, 445—396f.Kr. Jesús kross- festur, 30—33 e.Kr. og stígur upp til himins. Jerúsalem eytt af Rómverjum, árið 70 e.Kr. Tímabil anti-Krists og Harmageddon. Endurkoma Krists. t

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.