Afturelding - 01.01.1982, Síða 18
Því kemur sá tími, að Drottinn
mun ekki lengur halda aftur af for-
herðingunni og lögleysinu og leyfa
mannkyninu að fara þann veg sem
það hefir kosið sér — og vegur þess
endar í vegleysu. Þá rata menn frá
einni plágu til annarrar, andlegrar og
efnislegrar. Plágur þessar ná há-
marki sínu á síðustu veldisárum
„veraldareinræðisherrans", anti-
Krists.
Hvernig mun mannkyninu reiða
af? Látum orð Guðs tala:
. . Og altar eyjar hurfu og fjöllin
voru ekki lengur til. Og stórt hagl,
vœttarþungt (50 kg), fellur niður af
himni yfir mennina; og menn last-
mœltu Guði fyrir haglpláguna, því
tnjög svo mikil er plágan af því. “5
— „Þessvegna verða allar hendur lé-
magna og sérhvert mannshjarta
bráðnar, þeir skelfast, harmkvceli og
þrautir gagntaka þá; þeir hafa hrtðir
eins og jóðsjúk kona, angistarfullir
stara þeir hver á annan, andlit þeirra
eru sem eldslogi. Sjá dagur Drottins
kemur, grimmilegur með heift og
brennandi reiði til að gjöra jörðina að
-auðn og afmá syndarana af henni. Því
stjörnur himinsins og stjörnumerkin
láta eigi Ijós sitt skína. Sólin ermyrk I
uppgöngu sinni og tunglið ber eigi
birtu sína. “6
— „Og þetta mun verða plágan, sem
Drottinn mun láta ganga yfir allar
þœr þjóðir sem fóru herför gegn Jerú-
salem: Hann mun láta hold þeirra
uppþorna meðan þeir enn standa á
fótum; augu þeirra munu hjaðna I
augnatóttunum og tungan visna I
munninum(Lesaranum er bent á
að lesa allan kaflann.)
— „Og ég sá engil sem stóð á sólunni
og hann hrópaði hárri röddu og sagði
til allra fuglanna sem flugu um mið-
himininn: ‘Komið safnist saman til
hinnar miklu kveldtnáltiðar Guðs, til
þess að eta hold konunga og hold her-
sveitarforingja og hold kappa og hold
hesta og þeirra er á þeim sitja, og hold
allra, bœði frjálsra og ófrjálsra og
smárra og stórra. ’
Og ég sá dýrið og konunga jarðar-
innar og hersveitir þeirra safnaðar
saman, til að heyja stríð við þann sem
á hestinum sat og við herlið hans. Og
dýrið var handtekið og falsspámaður-
inn sem táknin gerði i augsýn þess, en
með þeim leiddi hann afvega þá, sem
tekið höfðu við merki dýrsins og þá
sem tilbeðið höfðu likneski þess:
Báðum þeim var kastað lifandi í elds-
díkið sem logar af brennisteini. Og
hinir voru drepnir með sverðiþess, erá
hestinum sat, sverðinu, sem út gekk af
munni hans, og allirfuglarnir söddust
af hrœjum þeirra. “8
■— „Ég vil láta menn verða sjaldgœf-
ari en skíragull og mannfólkið tor-
gætara en ófírgull. “9
Þetta er dökkt útlit. Jesús staðfestir
það, að einhverjir munu komast af og
hvers vegna, þegar hann segir: „Þvíað
þá mun verða svo mikil þrenging, að
engin hefir þvílík verið frá upphafi
heims allt til þessa, né heldur mun
verða. Og ef þessir dagar yrðu ekki
styttir, kœmist enginn maður af en
sakir hinna útvöldu munu þessir dagar
verða styttir.
Samkvæmt framanskrifuðu er
Ijóst, orð Guðs staðfestir það, að
Harmageddon-tímabilið er uppskera
þeirra kynslóðar sem rak Guð burt,
- og Guð fór burt. Þetta tímabil
verður slíkur voðatími, að vart er
hægt að gera sér hann I hugarlund.
Aðeins fáeinir munu lifa tímann af.
Milljarðar manna eru dánir —
horfnir burt af landi lifenda!
Hvenær gerist þetta?
1 dag, árið 1982 e.Kr. er Ijóst, að
ýmsir þeir hlutir hafa komið fram og
eru staðreyndir sem vera skyldu
undanfari ríkis anti-Krists, eða dýrs-
ins eins og hann er nefndur í Opin-
berunarbókinni, og þar með þreng-
ingarinnar miklu og Harmageddon-
stríðsins.
Augljósasti atburðurinn og stærsti
er stofnun Ísraelsríkis og endurheimt
Jerúsalem. Þetta er sú klukka Guðs
sem gellur hæst í dag. Þurfa menn
ekki lengi að hlusta á fréttir fjöl-
Jcrúsalem.
miðla, eða lesa greinar blaða til að
skilja við hvað er átt.
í dag er ljóst, að hinn pólitíski
heimur stendur frammi fyrir stór-
kostlegum breytingum og eru þær
þegar hafnar. Þessi byrjun er endur-
reisn gamla rómverska ríkisins í
formi Efnahagsbandalags Evrópu.
Það má og telja víst að Arababanda-
lagið komi fyrr en síðar inn í mynd-
ina sem náinn bandamaður Efna-
hagsbandalagsins, raunverulegir
friðarsamningar við ísrael krefjast
þeirrar forsendu.
Nú er svo komið, að stórveldin,
Sovétríkin og Bandaríki Norður-
Ameríku verða að taka fullt tillit til
Efnahagsbandalagsins og það á
jafnréttisgrundvelli. Rétt er að benda
á, að innan Efnahagsbandalagsríkj-
anna er risin upp ákaflega sterk
fjöldahreyfing. Þessi hreyfing hefur
sterk áhrif á almenning og ríkis-
stjórnir í Evrópu. Það sem vekur
mesta athygli er, að hreyfing þessi er
sem höfuðlaus her, þ.e. friðarhreyf-
ingin hefirengan opinberan foringja.
Virðist sem hér sé verið að undirbúa
jarðveginn fyrir sterkan, sameinandi,
evrópskan foringja, •— anti-Krist.
Þegar Opinberunarbókin er lesin
rekast menn fljótt á plágukaflana (6.
kap. — 16. kap.) sem skiptast í 3
höfuðþætti: innsigli, básúnur og
reiði-skálar. Byrjun þrengingarinnar
er rof innsigla. Þegar sá kafli (6) er
lesinn er vert að hafa eftirtalin atriði I
huga: