Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 30

Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 30
í leit að sannleikanum — r ramhald af bls. 23 niðurdýfingarskírn og 1951 meðtók ég skím i Heilögum anda. Sumarið eftir að ég frelsaðist fór ég á fyrsta sumarmótið, sem haldið var í Kirkjulækjarkoti. Þar tæmdi ég úr tóbaksdósunum mínum, — á jörð- ina. Frelsarinn hafði tekið frá mér tóbakslöngunina. Þegar ég kom heim lagði ég dósirnar undir hamarinn, enginn skyldi erfa þær eftir mig, þótt þær væru útgrafnar silfurdósir. Alla tíð síðan ég frelsaðist hefi ég fengið að reyna hjálp og blessun Guðs. Ég fann Krist og hann fann mig. Stuttu eftir að ég fékk að reyna þetta, hitti ég séra Magnús Runólfs- son, en hann starfaði mikið í KFUM. Hann vék sér að mér og spurði hví ég væri alveg hættur að sjást í KFUM. „Nú er ég kominn í Fíladelfíu og er frelsaður.“ „Þú hefur þá fundið Krist. Það er sama hvar er“, svaraði Magnús. „Ég hefi tekið niðurdýfingarskírn. Er það ekki rétt?“ spurði ég. Magnús þagði lengi og hugsaði sig vandlega um áðuren hann svaraði. „Jú, það er víst rétt.“ Jesús hefur hjálpað mér í blíðu og stríðu. Ég hefi verið veikur og 1971 var ég skorinn upp í Englandi, vegna hjartasjúkdóms. Áður en ég fór út lá ég níu vikur á sjúkrahúsi hér heima. Það var oft tvísýnt um líf mitt, en ég átti frið Guðs í hjarta og var við öllu búinn. Þegar ég fór út vissi ég að ég kæmi lieim aftur, annað hvort hing- að til Islands eða heim til himins. Ég vissi að ég átti örugga heimvon og kveið því engu. Hjúkrunarkona sagði við mig að það vekti eftirtekt hve rólegur ég væri. Ég sagði henni frá því hvemig Guð gaf mér sálarfrið 1950. „Já, við höfum tekið eftir því og læknarnir líka“, svaraði hún. Áður en ég var lagður á skurðar- borðiðá Brompton sjúkrahúsinu bað ég Jesú um að halda í hendi mína og stýra höndum læknanna. Hann svaraði þeirri bæn. Þegar ég lá á sjúkrahúsinu hafði ég hjá mér litla mynd af Frelsaranum, þar sem hann sést knýja dyra. Ein hjúkrunarkvennanna minntist á þessa mynd við mig, ég spurði hvort hún hefði veitt því eftirtekt að hurð- arhúninn vantaði. Nei, það hafði hún ekki gert og spurði nánar út í þennan skringilega dyraumbúnað. Þá benti ég henni á að hjartadyr okkar verða aðeins opnaðar innan frá. Frelsarinn kemst ekki inn í líf okkar, nema við opnum fyrir honum. Ég vil hvetja alla þá, sem þessa frásögu mína hafa lesið, að hleypa Frelsaranum inn í líf sitt. Hann gjörir alla hluti nýja. ROLF KARLSSON KVEÐJUORÐ Föstudaginn 19. febrúar sl. and- aðist í borginni Lintz í Austurríki trúboðinn og íslandsvinurinn Rolf Karlsson. Banamein hans var hjartaáfall. Rolf varð aðeins 39 ára gamall og hefði orðið fertugur í ágúst nk. Hann lætur eftir sig Sif, eiginkonu sína og dætumar Christinu, Marie og Anikku. 25 ára gamall gerðist hann trúboði og um líkt leyti fór sýn hans að dvína, sem endaði með alblindu á báðum augum eins og kunnugt er. Rolf var vel af Guði gerður, markviss ræðumaður, röddin þýð og hljómmikil. Þekking hans á Guðs Orði var djúp og mikil. Nýja testa- mentið hafði hann á snældum og lék þær fyrir sig daginn út og inn. Þannig jók hann við þekkingu sína á Orði Guðs. Enginn sem gist hefir íslenska Hvítasunnuhreyfingu safnaði öðrum eins fjölda að ræðustóli sínum, kvöld eftir kvöld. Hann heimsótti Island tvisvar sinnum og bók hans „Ljós í myrkri“ hefir verið dreift í 28 þús- undum eintaka. Ótrúlegustu lækn- ingaundur áttu sér oft stað í sam- komum hans. Miðvikudaginn 10. febrúar talaði ég við Rolf í síma. Var þá staddur í Gautaborg. Daginn eftir fór Rolf til Austurríkis til að halda samkomur. Þar lést hann, vegna hjartabilunar, eins og áður greinir. Rolf var fullur áhuga fyrir íslandi og íslenskri Hvítasunnuhreyfingu. Gerði hann áætlanir um þriðju heimsóknina og prentun á bók sinni í 5 þúsundum eintaka, í viðbót við fyrri upplög. Hér rættist hið forn- kveðna að maðurinn gjörir sínar áætlanir, en Drottinn stýrir gangi hans. Drottinn hefir tekið þjón sinn heim. Mikill er söknuðurinn og sorgin hjá eiginkonu og dætrum. Vinir hans á íslandi og víða um heim, taka undir, með samúð og fyrirbæn- um. Blessuð veri minning Rolfs Karlssonar. Einar J. Gíslason

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.