Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 11
AFTURELDING
1982
Með þessu tölublaði hefst 49. ár-
gangur Aftureldingar. Brautin var
mörkuð við upphaf blaðsins, af Eric
Ericson og Ásmundi Eiríkssyni. Nafn
blaðsins og yfirskrift hefir þessa lákn-
rœnu merkingu, það „eldar aftur“.
bar er átt við endurkomu Jesú Krists.
í viðbót við fœðingu Jesú Krists,
dauða Hans og upprisu, þá verður
endurkoma Hans atburður atburða
allra tíma. Hann kemur til að binda
endi á þá háttu lífs og stjórnunar sem
nú rikja meðal jarðarbúa, ranglœti
spillingar og synda, sem hrjá mann-
kyn og rikja í mannheimi. Biblían
kennir að upphaf alls ófögnuðs, sé
Satan. Svo lengi, sem hann gengur
laus og iðkar iðju sina, sem er að stela,
slátra og eyða, þá er það hin mesta
röskun á ráðsályktun Guðs, með
mennina, sem Hann elskaði svo heitt,
að Hann gaf Son sinn eingetinn til
þeirra. Ófriðurmillimanna, hverskon-
ar ótrúmennska, eigingirni og ágirnd,
eru þeir hlutir, er óvinurinn sífellt sáir
°g eitrar andrúmsloftið manna og
þjóða í millum. Frá kristnu sjónar-
miði, þá er hernaður og stríð, eitt af
atgilegustu tiltektum Satans.
Við endurkomu Jesú Krists mun
veldi Satans verða að engu gjörl. Stór-
kostlegasti atburðurinn verður samkv.
Jesaja 25:7—8, er Dauðinn verður
afmáður að eilífu. Þá mun spádómur
Jesajabókar 2. kap. 4. vers og rœtast:
>.Þjóðirnar munu smiða plógjárn úr
sverðum sínum og sniðla úr spjólum
smum. Engin þjóð skal sverð reiða að
annarri þjóð og ekki skulu þœr temja
sér hernað framar. “
Náttúran, sem undirlögð hefir verið
synd og spillingu, mun og breytast.
Semur það fram i eðli villtra og illra
dýra. Jesaja II. kap. 6.—8. vers,full-
yðir að „þá mun úlfurinn búa hjá
lambinu, pardusdýrið liggja hjá kiðl-
ingnum, kálfar, ung Ijón og alifé
ganga saman og smásveinn gœta
þeirra. Kýrog birna munu verða á beit
saman og kálfar og Ininar liggja
hvorir hjá öðrum. Ljónið mun hey eta
sem naut. Brjóstmylkingurinn mun
leika sér við holudyr nöðrunnar og
barnið nývanið af brjósti mun stinga
hendi sinni inn í bœli hornormsins.
Hvergi á mínu heilaga fjalli munu
menn illt fremja eða skaða gjöra. Því
jörðin er full af þekkingu á Drottni. “
Allt framangreint mun rœtast við
endurkomu Jesú Krists, sem mun
verða hin mesta og áhrifarikasta gjör-
bylting er um getur. Allt kristið fólk
hvar sem er skyldi leggja áherslu á að
flýta fyrir komu Guðs dags. En það
geta menn gert með þvi að framganga
í heilagri breytni og guðrœkni, vanda
sitt líf til orðs og œðis og lúta leiðsögn
Jesú Krists.
Eru framangreindir atburðir ósk-
hyggja eða hugarórar? Hvorugt!
Þessir atburðir eru í nánd og munu
opinberast fyrr en nokkurn getur
grunað. Jesús talaði um að þegar
endurkoma Hans tœki að nálgast,
skyldu koma fram tákn, er boðuðu
óumdeilanlega komu Hans til þessar-
ar jarðar og stofnunar þúsundára rík-
isins. Eitt af merkustu táknum er
kornið hafa fram er enduruppbygging
Ísraelsríkis. Um 2500 ára skeið hefir
það verið troðið affótum heiðingja, en
er nú fullvalda riki, viðurkennt af
Sameinuðu þjóðunum. Konungs-
stjarna Daviðs, blaktir i fána þeirra
um víða veröld. Kallar hún fram virð-
ingu og lotningu fyrir þeirri þjóð er
helguð er bláhvíta fána Israet.
Enduruppbygging ísraels er eitt af
mestu og merkustu atburðum heims-
sögunnar, og eróumdeilanlega bundin
við endurkomu Jesú Krists. „Þegar
fikjutréð fer að skjóta út laufum, þá er
sumarið í nánd. Þannig skuluð þér
vita að Hann er í nánd og stendurfyrir
dyrum, með endurkomu sína, þegar
þessir atburðir taka að gerast. “
/ sama mund og snúið er við högum
fólksins, sem í dreifingu var hrjáð og
gjöreytt af stórum Iduta í Belsen og
A uswitch, þá hefir og annar atburður
komið fram. Spáð var um hann hjá
Jóel, þegar högum Júdayrði snúið við,
þá mundi Anda Guðs verða úthelltyfir
alla menn. Hinar miklu trúarvakn-
ingar er gengið hafa yfir þennan heim,
með núvarandi og fyrri kynslóð,
marka alls staðar spor. Þœr þjóðir er
áður sátu í myrkri og skugga dauðans
hafa nú séð mikið Ijós. Stœrstu söfn-
uðir kristninnar um víðan heim, eru
nú meðal þessara þjóða. Má þarnefna
lönd Kóreu, Brasilíu og margar þjóðir
Afríku.
Heiðingjarnir eiga að koma inn
með tölu. Þegar svo hefir skeð, þá er
Jesús kominn aftur. Brúður Hans
(frelsaðir menn og konur) býr sig
undir að mœta Honum. Tilreiðir hún
líf sitt, svo ekkert verði til hindrunar í
að verða með og mœta Drottni Jesú
Kristi, þegar Hann kemur á skýjum
Himins, með englum máttar síns.
Afturelding vill minna þig á kœri
lesari, að búa þig undir komu Hans.
„Hann mun áreiðanlega koma, eins
og morgunroðinn rennur upp. “
Ritstjórinn
£Einar J. Gíslason er
forstöðumaður Hvíta-
sunnusafnaðarins í
Reykjavík og hefur
gegnt því starfi frá 1.
október 1970. Fram að
þeim tíma, frá 1948,
gegndi hann forstöðu-
mannsstarfi í Betel,
Vestmannaeyjum. Hann lauk námi frá Biblíu-
skóla í Svíþjóð og hcfur mikið unnið að kristi-
legu starfi, innanlands sem utan.