Afturelding - 01.01.1982, Page 17
Ljóst er að mannkynið nálgast
Shraðbyri tímabil anti-Krists og er
það tímabil nær en þorri manna gerir
sér ljóst. Tákn þess að rétt er skrifað
er sjálf ísraelsþjóðin:
„Ég mun taka yður náðarsamlega
sem þœgilegan ilm, þegar ég flyt yður
frá þjóðunum og safna yður úr lönd-
unum, þangað semyður var tvístrað og
þá skal ég sýna mig heilagan á yður í
augsýn þjóðanna.
Komi í ljós að hluti spádóms er
réttur, hvað mælir þá gegn því að
aðrir hlutar hans uppfyllist? Svarið
er: ekkert!
Harmageddon —
Hvað er það?
Harmageddon eða Har-Megiddó
er staðarnafn og örnefni. Nafnið
sjálft þýðir Megiddófjall. Sjálft orðið
Megiddó þýðir staður Guðs. Liggur
svæðið í norðurhluta fsraels. Land-
svæði þetta er við mörk Karmelfjalls,
vestan árinnar Jordan og nær yfir
alla Jesreelsléttu.
f fyrstu tilheyrði landsvæðið ætt-
kvísl íssakars, en komst síðar undir
yfirráð Mannasseættkvíslar. Borgin
Megiddó og svæðið sjálft er nefnt 12
sinnum í Biblíunni. f gegnum svæði
þetta lá þjóðbrautin milli Egypta-
lands hins foma og Mesópotamíu
sem nú nefnist frak.
Þama hefur verið róstusamt með
afbrigðum í áranna rás og margar
hildir háðar. Þar í grennd féll fyrsti
Lonungur fsraels, Sál Kísson, og
synir hans á Gilbóafjöllum. Marg-
sinnis var Megiddóborg lögð í rúst,
en byggð jafnharðan aftur, því að á
þessu svæði snerist gæfuhjólið hratt
hvað tímanleg gæði áhrærir. Þarna er
sagan saga blóðs og hörmunga og er
sléttan við Megiddó talin vera al-
blóðugasti staður jarðarinnar.
Samkvæmt Biblíunni mun
Megiddó svæðið, eða Harmageddon,
eins og það er líka kallað, vera síðasti
og ægilegasti orrustuvöllur jarðar á
„nútíma'1.4 Þarna fyrir botni Mið-
jarðarhafsins verður slík gereyðing
að allar aðrar styrjaldir munu vera
eins og sakleysilegur kúrekaleikur,
borið saman við þau ósköp. Þangað
munu safnast herir frá öllum þjóð-
löndum og mun það verða afar mik-
ill fjöldi manna. Allri þeirri tækni
verður beitt sem menn ráða yfir.
Orrustan mun beinast gegn ein-
ræðisherra veraldar sem hefur um
þær mundir aðsetur í Jerúsalem.
Þarna eigast sem sagt við herir ver-
aldar-herrans, anti-Krists, og svo
herir uppreisnaþjóða gegn honum.
Þegar þessi ragnarök standa sem
hæst mun sjálfur Jesús stíga niður af
himni, eins og lofað var á uppstign-
ingardegi, í miklum mætti og dýrð
kemur hann á Olíufjallið, en sjálft
fjallið mun þá rifna, líkt og fortjaldið
í musterinu forðum á langa frjádegi.
Þá munu allir hinir stríðandi aðilar
sameinast og ráðast gegn Kristi í
eiginlegri merkingu. En það verður
þeirra banabiti.
Plágur „Harmageddon-
tímabilsins“
Margsinnis er sagt frá því í Biblí-
unni hvernig Guð mun ganga í dóm
við myrkraveldi djöfulsins. Mann-
kynið í heild sinni hefir valið það að
hafna Jesú Kristi og friðþægingu
hans. Þeir sem vilja þjóna Guði eru
kallaðir ofsatrúarmenn og fáráðar.
Sannkristnir menn sæta ofsóknum í
fjölmörgum löndum heims. Hörð-
ustu ofsóknirnar eru í dag í löndunt
kommúnismans nteð Rússland í
fylkingarbrjósti. Annars staðar er
Guðsorð talið hégómi einn. Á íslandi
sjást þessi guðleysisáhrif glöggt.
Þessu til stuðnings má nefna: jólin,
hátíð frelsarans eru orðin að jóla-
sveinagríni. f fjölmörgum grunn-
skólum landsins er kristinfræði-
kennsla orðin hégómi einn og jafnvel
alvarlegt brot gegn einstaklingnum
og frelsi hans, að margra áliti.