Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 12

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 12
12 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR átti heima við Reykjavíkurveg og látinn er fyrir fáum árum, að nú væri anzvíti gott að fá kaffisopa, því að mér fannst vera hálf-nepju- kuldi. Sveinn bregður þegar við og fer aftur í til þess að velgja kaffið. Hjá mér í brúnni var unglingur ættaður úr Ólafsvík, Ingvi að nafni, skemmtilegur piltur, símal- andi um eitt eða annað. Gluggarn- ir á brúnni voru lokaðir. Þá hefur Ingvi allt í einu orð á því, að við séum í landvari hérna. Ég spyr hann, hvort hann viti ekki, að það sé suðaustanvindur, sem standi beint á land. En strákurinn svaraði því til, að hann sæi það nú líklega á sjólaginu, að við værum í landvari. Ekki urðu þær umræður lengri, en mér kemur allt í einu í hug, að varhugavert gæti verið að hafa ekki brúargluggana opna. Ég rýk til og opna glugga og skima út. Sé ég þá, hvernig allur sjórinn veður í broti beint fram undan. Ég hringi óðar niður í vélarrúm að setja á fulla ferð aftur á bak, og svo heppilega vildi til, að jafn- skjótt var svarað í vélarrúminu. Skipið tók íljótlega aftur á. Hringdi ég skömmu síðar aftur í vélarrúmið á fullt áfram og lagði jafnframt stýrið hart á stjórnborða. Stefndi þá Víðir í suðvestur, til hafs. Virtist þá bláhryggja undir skipið hjá okkur, en það reif sig út, og urðum við ekki varir við, að það kenndi grunns. Héldum við síðan áfram ferð okkar austur. Margt ræddum við um þetta at- vik, að við skyldum vera komnir svona miklu nær landi en við hugð- um. Kenndum við því helzt um, að ónákvæmlega hefði verið stýrt eftir því striki, sem halda átti. Seinna fréttum við, að Egill Skallagrímsson, sem var á undan okkur eins og fyrr er sagt, hefði lent í þessu sama: verið nærri kom- inn í Iandbrot, þegar eftir var tek- ið, og skipið þá snúið þvert úr leið frá landi. Þótti okkur þá með ólík- indum, að sama ónákvæmni hefði hent á báðum skipunum, og gát- um þess til, að eitthvað hefði rugl- að áttavitann. Vissum við ekki, nema skipsflök- in á söndunum eða eitthvað í þeim gæti hafa haft þau áhrif, eða ef til vill eitthvað í landinu sjálfu, enda var það oftar haft á orði um Kötlutanga, að þeir eins og drægju að sér skip. Þess má geta í þessu sambandi, að í eyjunum fyrir vestan Skot- land er höfði einn lítill, sem ber nafnið Compass Hill. Ég var einu sinni í siglingum á þeim slóðum. Höfðu þá tveir skozkir strákar, sem voru á skipinu, orð á því við mig, að ég vissi sjálfsagt ekki, að þegar kæmi fram undan höfðanum, yrði áttavitinn hringlandi vitlaus. Ég vissi það auðvitað ekki, en sú varð raunin á, að áttavitann var ekkert að marka dálítinn tíma, meðan farið var fyrir höfðann. Skyldi um eitthvað svipað geta verið að ræða hér austur við sandana? Glettur. Sumarið 1909 var ég stýrimaður á Lúll frá Patreksfirði. Okkur gekk heldur illa og hættum veiðum í ágústmánuði. Þá lá fisktökuskip frá Milljónafélaginu á Patreksfirði. Átti það að flytja saltfisk til Bilbaó á Spáni. Þetta var gufuskip, og var skipstjórinn norskur, ungur mað- ur, vasklegur og viðkynningargóð- ur. Skipshöfnin var að mestu leyti norsk. Ég réð mér far með þessu skipi suður til Reykjavíkur. Nú hafði tekizt svo til, að mað- ur hafði veikzt á skipinu, áður en jiað kom til Patreksfjarðar, og ver- ið lagður á land í Reykjavík. Var ég nú ráðinn í hans stað á skip og lögskráður á það, Jægar til Reykja- víkur kom. Þegar við vorum að búast til brottferðar frá Reykjavík, féll það í minn hlut að stjórna vindu, sem var á þilfari, en Jrað gekk ekki eins vel og skyldi, [rví áð ég var óvanur Jdví starfi og kunni ekki nógu vel á verkfærið. Engin slys hlutust þó af, en félagar mínir hlógu að mis- tökum mínum. Þegar allt var sjóklárt, var lagt af stað. Fór ég þá niður í og fleiri af skipsmiinnum. Þá kom þangað einn Jieirra og sagði mér alvarleg- ur, að skipstjórinn vildi finna mig. Þóttist ég vita, að hann mundi veita mér átölur fyrir vankunnáttu, enda sýndust mér skipsfélagar mín- ir búast við einhverju slíku. Ég gekk Jjó þegar upp í brú og að klefa skipstjórans og drap á dyr, ósköp nett. Mér var sagt að koma inn, og gerði ég það. Skipstjóri leit við mér eins og hann hefði ekki átt von á komu minni og spurði, livað mér væri á höndum. Ég sagði, að hann hefði gert boð eftir mér. „Hver flutti J)au boð?“ s->rði hann. Ég skýrði frá J)ví. Tók þá skip- stj. i flösku út úr skáp, hellti úr henni í lítið glas, bauð mér og sagði, að hann hefði viljað gefa mér þetta. Ég Jjakkaði fyrir og drakk úr glasinu. Bjóst ég við, að nú kæmi ádrepan. Skipstjóri tók þá vindil upp úr kassa og rétti mér. Ég þakkaði fyr- ir, en dokaði við, og þótti þetta þó undarlegur undirbúningur undir skammirnar. Þá segir skipstjóri, að hann liafi ekki viljað mér annað en J)etta, ,,en segðu piltunum í lúkarnum, að ef J)á langi í vindil, þurfi J)eir ekki annað en koma hingað til mín.“ Ég Jíakkaði fyrir mig og sneri á brott og gekk til félaga minna og hampaði vindlinum. Spurðu þeir, hvað milli mín og skipstjóra hefði farið, en ég lét drýgindalega og kvað þarflaust að flíka því frek- ar en Jieir sæju. Hins vegar hefði skipstjóri beðið mig að bera })eim J)au boð, að ef þá langaði í vindil, Jiyrftu J)eir ekki annað en koma til sín. Enginn félaga minna sýndi neitt snið á sér að Jjiggja Jjetta góða boð. Og ekki Jmrfti ég að kvarta undan glettum þeirra, meðan ég var á skipinu, enda var skipshöfn- in valdir menn. Kvöld í Bilbaó. Það var eitt kvöld meðan við lág- um í Bilbaó, að ég átti að vaka og gæta þess, að engir óboðnir gestir kæmu um borð, en stundum gat verið full þörf á að líta eftir því. Skipsmenn voru flestir eða allir í landi nema skipstjóri. Þá segir hann við mig, að ef stúlka komi og vilji fara um borð, þá skuli ég ekki meina henni það, en það var J)ó ekki venja. Nú hugsaði ég með mér, að ekki gæti ég vitað, við hvaða stúlku hann ætti, og skyldi ég Jjví hleypa þeirri, er fyrst kæmi, um borð, en neita öðrum um að- gang, ef fleiri yrðu. Líður nú ekki á mjög löngu, unz ég heyri fótatak á landi, og kemur þar stúlka gangandi og stelnir um borð. Ég geng í veg fyr- ir hana, og segir hún þá eitthvað, sem ég ekki skildi. Ég svaraði ein- liverju, en auðvitað skildi hún ekki orð í því. Ég mundi, hvað mér hafði verið sagt, og benti henni að fara upp í brúna og vísaði henni jafn- framt á, hvar hún ætti að knýja á dyr. Fór hún að vísbendingu minni, en ég gekk burt. Stúlkunni dvaldist alllengi. Ég hélt mig í eldhúsinu eða á þiljum úti og hafði gát á mannaferðum. Nú leið að þeim tíma, að strák- arnir færu að tínast um borð, einn og einn eða fleiri saman. Hugsaði ég, að erfitt gæti orðið að koma stúlkunni svo í land, að J)eir sæju ekki til ferða hennar. Þar kom, að ég sá aftur til stúlk- unr.ar, er hún gekk niður úr brúnni. Ég þóttist sjá, að hún hefði bragðað vín, en ekki gat hún þó heitið drukkin. Hún gekk til mín og ávarpaði mig, en ekki skildi ég hana fremur en fyrr. Hún talaði því meira, og loks þóttist ég skilja, að hún mundi vilja vita, hvað klukkan væri, og gat það verið eðli- legt, því að girðingu um bryggj- urnar var lokað á ákveðnum tíma. Ég sá nrinn kost vænstan að fara með hana upp í brú, J)ví að J)ar hékk klukka, og láta hana sjálfa sjá, hvað framorðið væri. Dimmt var þar inni, og kveikti ég á eld- spýtu, svo að hún sæi á klukkuna. Stakk ég síðan stokknum í vasa minn. Enn tekur sú spænska til máls og bendir jafnframt á vasann, þar sem ég hafði látið stokkinn. Skild- ist mér, að hún væri að biðja mig um að gefa sér hann, og gerði ég það, en hún tók við honum. Fór hún síðan í land, og svo heppilega tókst til, að enginn af skipsfélög- um' mínum varð var við för henn- ar, enda sagði ég })eim aldrei frá herini. Þegar ég fór af skipinu í Reykja- vík og kvaddi skipstjóra, gaf hann mér lítinn, en fallegan vindlakassa að skilnaði. Auglýsngar. Söltuð síld er til sölu hjá Jóni kaupmanni, sem er alveg beinlaus. Hestur til sölu hjá undirrituð- um, sem er góður til afsláttar. Skinnhanzkar til sölu handa karlmönnum, sem eru loðnir inn- an. Þórarinn Egilson, útgerðaimaður, var einn þeirra mörgu Hafn- firðinga, sem settu svip sinn á bæinn. Hann var mikill hestamað- ur. Hér sést Þórarinn á gæðing sínum Kolbaki. Myndin er tekin inn við Elliðaár árið 1923.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.