Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 18

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 18
18 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR bundið hana aftur. Við skulum bara taka í.“ Dyrnar hrukku upp. Strákarnir skimuðu í kringum sig. En það var enginn á ferli. Það var dimmt inni og ekkert heyrðist nema hinn þungi andardráttur Matta móða. „Lokaðu dyrunum, meðan ég sæki buxurnar hans,“ sagði Maggi. Hann sá strax hvar Matti hafði lagt fötin sín. „En hvar eru nærbuxurnar hans? Kveiktu!“ „Hann sefur auðvitað í þeim. Eigum við að taka þær líka?“ „Nei, ertu vitlaus! Þær vil ég ekki.“ Þegar þeir voru komnir út í garðinn, fóru þeir að hugsa um hvað þeir ættu að gera við bux- urnar. „Það er ekki þorandi fyrit okkur að geyma þær.“ „Við getum hent þeim inn í her- bergið hjá einhverjum öðrum.“ „Heyrðu! Við hendum þeim inn til hans Drésa. Hann og Matti eru alltaf saman. Og svo er herbergið hans í hinum enda hússins. Það fellur því síður grunur á okkur.“ „Já, stórfínt!" „Hérna er nr. 26. Drési á heima beint á móti nr. 26: Fleygðu bux- unum inn í skápinn hans,“ hvíslaði Palli. Maggi var því samþykkur. Það var ekki fyrr orðið albjart í herberginu en að veran í rúminu reis upp við dogg og kallaði: „Hvað er þetta? Hver er þarna?“ Þeir slökktu ljósið á auga- bragði, sentu buxunum í áttina til Drésa og hurfu síðan hið skjótasta á brott. Drési var alveg forviða. Hann lá lengi hreyfingarlaus af ótta. Loks hleypti hann í sig kjarki og fór að skoða þessa druslu, sem hann hafði fengið framan í sig. Hann varð ekki lítið undrandi, þegar hann sá, að þetta voru buxur með axlaböndum. „Hvern skramban á ég að gera við þetta?“ hugsaði hann og horfði sem steini lostinn á buxurnar. Vofa! Draugar! — Innbrotsþjóf- ar! Loksins áræddi hann að fara fram úr rúminu og raða borði og tveim stólum fyrir dyrnar. Svo lagðist hann til svefns aftur. En hann lá lengi vakandi, skjálfandi af ótta og kvíða. 4. Um hádegið á sunnudag, þegar kennarinn kom inn í matsalinn, voru allir mættir nema Matti. Hans sæti var autt. „Vitið þið nokkuð um Matthí- as?“ spurði kennarinn um leið og hann settist við borðsendann. Nei, enginn vissi neitt um Matta, a. m. k. sagði enginn neitt. „Jæja, drengir. Við skulum þá bara byrja. Gerðu svo vel, Magn- ús!“ Maggi byrjaði og síðan gekk fatið milli drengjanna. „Hm! Já, það var alveg satt. Hvers vegna varst þú ekki sofnað- ur kl. 12 í gærkvöldi. Það var ljós í herberginu þínu.“ Það var kenn- arinn, sem talaði og leit hvasst á Drésa. Augu allra beindust að Drésa. Hann kafroðnaði upp í hársrætur. „Ég hélt, að það væri verið að brjótast inn hjá mér, en svo voru það bara buxur.“ — Allir fóru að skellihlæja. „Komu buxur, hvað segirðu, drengur? Og var enginn maður í þeim?“ hélt kennarinn áfram. Hlát- urinn óx. í þessu kom ein af þjéinustu- stúlkunum inn í matsalinn. Hún gekk til kennarans. Það var auð- séð, að hún bældi niðri í sér hlát- urinn. „Hí, hí,hí, það er einn drengj- anna hangandi og kallandi upp í glugganum hjá sér, — hí, hí, hí, og hann segist ekki geta fundið bux- urnar sínar.“ Hláturinn glumdi í salnum. Þarna kom það. Þetta gat ekki verið annar en Matti. Drési lilaut að hafa hnuplað frá honum buxunum hans. Kennarinn skemmti sér líka vel. Hann sagði Drésa að sækja buxurn- ar og Matta. — Sjaldan höfðu menn skemmt sér betur við matborðið en í þetta sinn. Það var verið að borða eftir- matinn, hina ljúffengu ávexti, þeg- ar Matti og Drési gengu inn í sal- inn. Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna. Það leið langur tími áður en kennarinn og dreng- irnir gátu haldið áfram að borða. Matti var hinn ánægðasti með móttökurnar. Hann gladdist við þá athygli, sem hann hafði vakið á sér. En oft þurftu strákarnir að hvisla að honum: „Gættu buxnanna þinna! Heyrðu, þú ert þó áreiðanlega í buxunum þínum núna, Matti minn?“ Nti var hafin mikil leit að hinum buxunum, en allt kom fyrir ekki. Buxurnar fundust ekki. En daginn áður en jólaleyfið var gefið, kom stór taska tij skól- ans merkt Matthíasi Guðmunds- syni. Og töskunni fylgdi bréf, þar sem foreldrar Matta undruðust það uppátæki hans að fara allt í einu að senda allar sinar buxur heim. Gömlu hjónin voru farin að eíast um, að allt væri í lagi með drenginn þeirra. En Matti skildi hvorki upp né niður í neinu. Buxnahvarfið var honum mikil ráðgáta. En sagan um horfnu buxurnar var lengi uppspretta sannrar gleði og kátínu í heimavistarskólanum á Laugarbökkum. Ilarnaheimilið Glaumbær við Óttarsstaði eign Barnaheimilissjóðs Hafnarfjarðar var stolnað 1957 af fé'lagssamtökum í bænum, sem hafa bárnavernd og líknar- starf á stefnuskrá sinni. Á s.l. sumri var endurbótum og sntíði hússins lokið, og eiga Ilafnfirðingar þarna fullbúið barna- heimili, sem rúmar 25—30 börn. Undanfarin tvö sumur hafa 50 hafnfirzk börn dvalið þarna í bezta yfirlæti og við hin ákjósaniegustu skilyrði sumarlangt. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar í bænum hafa styrkt barnaheimilið í Glaum- bæ með höfðinglegum gjöfum. Loftur Bjarnason forstjóri færði heimilinu t. d. að gjöf miðstöðvarketil, brennara og hitadunk s.l. vor. Verðmæti þessarra hluta mun eigi vera minna en 12—15 þús. kr. Stjórn sjóðsins þakkar þessa myndar- le‘gu gjöf. Bær og ríki hafa og styrkt barnaheimilið í Glaumbæ með ríflegum fjárframlögum. — Hinn 12. marz n. k. er fjársöfnunardagur Barnaheimilissjóðs Hafnarfjarðar, og lieitir stjórnin á Hafnfirðinga að minnast þá Glaumbæjar, eftir því, sem hvrjum hentar bezt. Síðar verður auglýst hvernig fjársöfnun verður háttað.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.