Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 31

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 31
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 31 GAMLIR FLENSBORGARAR 1893. 1. röð sitjandi á fremsta bekk: Ólafur Böðvarsson, sparisjóðsforstjóri, Vilborg Þorgilsdóttir, Guðjón Jónsson, Þorsteinn Þorkelsson, Þórarinn Egilson, Kristján Linnet, Kristinn Ziemsen, Fríða Proppé. - 2. röð sitjandi á öðrum bekk: Karl Steinsen, Júlíus Petersen, Þorgeir Þórðarson, Arnór Árnason, Ketill Bergsson, Sigurður Jóns- son, Egill Klemensson, Halldór Jónsson frá Varmá, ? ? Vilhjálmur Björnsson frá Fitjamýri, Tómas Snorrason (fylgdarmaður Hall Caine). 3. röð standandi: Sigurður Þórólfsson, Steinn Sigurðsson, Ágúst Árnason, Björn Pétursson frá Hákoti, Sigurður Ólafsson, Sumarliðabæ, Halldór Halldórsson, Þormóðsdal, Skúli Norðdahl, Úlfarsfelli, Einar Guðmundsson frá Miðdal, Bergur Einarsson, sútari, Sigurður Einarsson og Guð- mundur Vernharðsson. 4. röð standandi: Þorgrímur Sveinsson, Ólafur Stephensen frá Mosfelli, Sigurður Breiðfjörð, Magnús Þorláksson, Blikastöðum, ? ? Myndin hér að ofan var tekin árið 1912 við Bryde-pakkhús, og er af fastráðnum verkamönnum, sem unnu við fiskverkun og uppskipun hjá Magnúsi heitnum Blöndal kaupm. og alþm. Á myndinni eru talið írá vinstri: Árni Helgason, ræðismaður í Chicago, Ólafur Jónsson frá Deild, Sigurjón Eyjólfsson, Smiðjustíg 2, Jón Einarsson, síðar verk- stjóri, Strandgötu 19, Jón Á. Matiesen verkstjóri, Jóhannes Einarsson, albróðir Jóns Einarssonar, Níels Torfason, Reykjavíkurvegi 9, Gísli Björnsson, Austurgötu 8, Guðmundur Sigurðsson, Vesturgötu 19. Skrýtlur. Ekki hnýsinn, drengurinn. Kennari: „Hefur þú ekki lesið bréf Páls postula til Korintuborg- armanna?" Drengur: „Ónei, ég hef aldrei lagt það í vana minn að hnýsast í bréf annarra manna." Barnalegar hugmyndir. Beta og Bína fengu að fara upp í sveit og bar þar margt nýstárlegt fyrir augu þeirra. Meðal annars voru þær lengi að athuga kýrnar. „Af hverju eru sumar kýrnar hvít- ar og sumar svartar og sumar rauð- ar?“ spurði Beta. „Ég veit það ekki,“ sagði Bína, „en líklega kemur mjólkin úr hvítu kúnum, kaffið úr svörtu kúnum og súkkulaðið úr rauðu kúnum.“ — Og þetta þótti Betu mjög sennilegt. ☆ Konan kemur inn með asa mikl- um og segir við bónda sinn: — Þú liggur þarna í letinni, Sig- urður, en tröðin liggur afvelta í tryppinu og setur sinn fótinn út í hvert loftið. Staka. Óðum færist ellin nær, æskan fjær í sýnum. Er sem bærist aftanblær yfir hærum þínum. Jón Rafnsson. Vísa. Greiða vindar gisin ský, geislar tinda lauga. Bjartar myndir birtast í bláu lindarauga. D. J. \ 1 % V d n n ■ 4 9 Jj'? Kross^áta Lárétt: 1. dreitill. — 3. alla. — 5. báls. — 8. slag- ur. — 9. þvottaefni. — 10. stúlka. — 12. stigur. — 14. tveir samn. — 15. hnignun. — 17. skeyti. — 18. óhreinindi. Lóðrétt: 1. haf. — 2. embættismann. — 3. ílát. 4. mannsnafn. (þf.). — 5. kinnar. — 6. fugl. festa saman. — 13. skyldmenni. — 14. lendingarstaður. — 16. lerðalag.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.