Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 13

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Blaðsíða 13
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 13 Sigurjón Arnlaugsson, verkstjóri: Litið til baka Sigurjón Arnlaugsson fyrrv. verkstjóri skrifaði eftirfarandi grein í hand- skrifað blað, sem St. Morgunstjarnan nr. 11 hefur gefið út í s. 1. 35 ár. Sig- urjón fluttist til Hafnarfjarðar árið 1921. Hann liefur tekið mikinn þátt í félagslífi hér í bæ. Hann starfaði í St. Morgunstjörnunni, allt þar til heilsa lians bilaði, í ársbyrjun 1955. Hann tók mikinn þátt í sönglífi bæjarins, var félagi í Þröstum og söng með þeim lengi. Þá söng hann í áratugi í kirkju- kór Fríkirkjunnar. Hann stjórnaði og söngkór Morgunstjörnunnar, meðan sá kór starfaði. Einnig stofnaði hann blandaðan kór, sem hann kallaði „Litla kórinn". Sigurjón hafði næmt söngeyra og var smekkmaður á söng. Hann var ákveðinn og góður stjórnari, enda þótt menntun hans á því sviði væri minni en hann sjálfur hefði kosið. Nú er hann þrotinn að heilsu og kröftum, en dvelur í bezta yfirlæti með börnum sínum og rifjar upp minningar frá liðnum árum. Hann er nú 81 árs gamall, Sigurjón flytur félögum sínum, bæði í stúkunni og kirkjunni, sínar innilegustu þakkir fyrir langt og gott samstarf og ánægjulega samvinnu á liðnum árum. G. S. Ég ætla að skrifa hér nokkrar línur um sjálfan mig, þó það þyki máske ekki smekklcgt að gjöra slíkt. En ef ég væri ofurlítið rit- fær, sem ég raunar ekki er, gæti ég ef til vill sagt frá liðinni ævi minni, því að þó hún sé ekki og hafi ekki verið viðburðarrxk, er hún orðin talsvert löng. Hún hefur verið háð skini og skuggum eins og ævi ann- arra manna. Örlögin fleygðu mér inn í þenn- an heim líkt og sálinni hans Jóns míns var fleygt inn í lximnaríki. Samlíkingin er samt ekki góð, því að Jón fékk hinar beztu viðtökur, en það fékk ég ekki. Ég er fæddur austur í Rangáivallasýslu, að Mið- krika í Hvolhreppi, á nýbyrjuð- um túnaslætti. Svo vildi til, að ég fæddist snemma á sunnudags- morgni, sem var hinn 13. í sumri og bar í þetta sinn upp á 15. júlí árið 1877. Nú þurfti að hafa hröð handtök, svo að dagurinn nýttist sem bezt til fyrirhugaðra fram- kvæmda húsbóndans. Foreldrar mínir voru bæði vinnuhjú á heim- ili þessu. Móðir mín, Kristín Guð mundsdóttir frá Litlu-Hólum í Mýrdal, var fædd 16. ágúst 1812. Hún hefur því verið nær 36 ára gömul er ég fæddist, en laðir minn, Arnlaugur Jónsson frá Nýjabæ í Þykkvabæ, var fæddur 8. febrúar 18.r9 og hefur því verið á 19. ári. V r nú sóttur prestur samstundis :>g tveir heldri bændur úr nágrenn- inu, presturinn til að skíra, en bændurnir til að vera skírnarvott- ar. Að þessu búnu var hinum unga föður sagt að koma króganum burtu af heimilinu og vinda bráð- an bug að, „því að í fyrramálið verður þú að vera kominn til slátt- ar kl. 5.“ Sjálfur lá húsbóndinn í hettusótt. Hann hét Einar, að ég held. Blessaður faðir minn hvernig skyldi þér lxafa liðið? i>ú svo ungur, vinafár, og áttir ekki margra kosta völ í svo skjóti'i svipan. Eina til- tæka ráðið var að komast út í Þykkvabæ til skyldfólksins þar, en það er að minnsta kosti 35—40 km. vegalengd og tvö brúarlaus stórvötn á þeirri leið. Fórstu þetta ríðandi eða gangandi? Hið síðara þykir mér líklegra. Svo bar þetta allt brátt að, að ekki fékk ég að taka í móðurbrjóst áður en á stað var farið. Og svo lireinlegur var að- skilnaður móður og barns, að ég sá hana ekki fyrr en ég kom hér suður 17 árum siðar. Einhver góð- hjörtuð kona tók mig af föður mín- um, þegar út í Þykkvabæ kom, en hvernig skyldi föður mínum þá hafa liðið, uppgel'inn, með mig há- organdi af sulti og fleiri skiljan- legum ástæðum. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta og annað, sem fyrir mig kom fyrsta árið er ég lifði. Ég hef engar enduiminnngar um það sem betur fer. Ég mun hafa verið á fjórða ár- inu, þegar ég fyrst fer að muna eltir ýmsu. Eitt hið fyrsta, sem ég man þá eftii', er að faðir minn er að skilja við mig. Hann hafði mig með sér þar sem hann var í vinnu- mennsku, að fyrsta árinu undan- skildu. Hann fékk einhvexja ó- þekkta veiki í annan fótinn, eða öllu heldur í lærið, og vaið á skömmum tíma algjörlega óvinnu- fær. Það voru harðir kostir fyrir jafn efnilegan mann og hann var, að verða að fara frá mér svona og skilja mig eftir þarna algjörlega umkomulausan. Þetta mun hafa verið haustið 1881. Hann dó 12. desember 1885 eftir ólýsanlegar þjáningar, einkum þó síðasta árið, sem hann lifði. Vorið eftir að fað- ið minn skildi við mig sótti fósti'i minn mig. Það var all-löng leið. Faðir minn var með mig á bæ þeim, er Uxahryggur heitir. Hann stendur á bökkum Þverár í Austur- Landeyjum, en fóstri minn átti heima á Brúnum við Eyjafjöll. Ég man, að hann reiddi mig á hnakk- nefinu fyrir framan sig yfir stór- vötn og allslags torfærur, sem voru á þessari leið. Ekki var rassinn á marga fiska eftir ferðalagið. Ég gat með engu móti sezt fyrir blöðr- um, og þótti það kynlegt háttalag af mér að vilja heldur standa en sitja, líklega hefur engum dottið í hug af hverju ég hegðaði mér þannig. Loks var ég látinn hátta ol’an í rúm, varð ég því feginn, en þá sprakk blaðran, ekki þær sem voru á rassinum, heldur brast ég f Sigurjón Arnlaugsson og fjölskylda: Sitjandi t. f. v. Katrin, Jónína, Steinþóra, Lilja og Soffia. — Standandi l. f. v. Arnlaugur, Július, Sigurjón, Kristinn og Einar. grát. Þarna þekkti ég engan mann, en kallaði nú á föður minn, en hann var nú langt í burtu og gat ekki eins og svo oft áður tekið drenginn sinn í fangið, þegar eitt- hvað amaði að. Eftir þetta sá ég hann aldrei framar, en fékk þó fyrst í stað bréf frá honum, sem ég auðvitað gat ekki lesið sjálfur. Nú hafði ég fengið samastað, en þó föður- og móðurlaus. Fer nú að skýrast fyrir mér lífið. Ég var af sumum talinn vera heppinn með staðinn, og hef máske verið það, en uppeldið mun hafa veiið hins umkomulausa, sem von var, tízkan og hugsunarhátturinn mun al- mennt hafa verið þannig á þeim tíma. Ég ætla ekki að skrifa hér um uppvaxtarár mín. Þau voru víst lík og annarra munaðarlausra barna, enda eru nú flestir komnir yfir landamærin, sem að uppvexti mín- um stóðu. Þó ætla ég að geta tveggja minninga frá bemskuárum mínum, sem ég aldrei gleymi. Hin fyrri er um farkennarann, sem kom í sóknina í fyrsta sinn veturinn áð- ur en ég var fermdur. Var ég svo lánsamur að komast í skóla til hans um mánaðartíma. Þessi kennari varð okkur krökkunum svo kær, að við litum upp til hans sem væri hann faðir okkar. Var hann þó ung- ur maðui', aðeins 22 ára gamall. Þessi kennari var Sigurgeir Gísla- son úr Hafnarfirði, sem er látinn fyrir nokkrum árum. Vona ég að Guð hafi tekið honum, þegar hann flutti héðan, á sama hátt og hann tók okkur krökkunum í skólanum, þó einkum mér, þeim smæsta og umkomulausasta. Annað, sem festist mér í minni, og ég aldrei gleymi, var ferming- ardagurinn minn, þegar við, 9 drengir og 10 stúlkur, stóðum við altarið í Ásólfsskálakirkju á hvíta- sunnudag vorið 1891 og sóknar- presturinn, séra Kjartan Einarsson, las yfir okkur sína fögru áminn- ingaxiæðu, og lagði svo sína hægri lxönd á höfuð okkar hvers og eins og las um leið ritningargrein eins og enn tíðkast. Þetta sama vor hætti fóstra mín að búa, (fóstri minn var þá dáinn fyrir allmörgum árum), en dóttir hennar, Valgerður, tekur við jörð og búi, en ég fer þá til annarra. Þegar ég var 17 ára má segja, að flett sé blaði i lífi mínu. Haustið 1894 flyzt ég hér suður að Faxa- flóa. Ég vissi þar af móður minni. Hún átti heima á bæ þeim er Páls- bær hét. Var hún þar ráðskona hjá öldruðum manni er Árni hét Lofts- son. Svo var um talað, að ég yrði þarna hjá þeim vetrarlangt eða til næsta vors. Skyldi ég vera matvinn- ungur til vertíðar, en fá eitthvað kaup yfir vetrarvertíðina. Ekki var talað um, hve mikið það ætti að vera, enda fékk ég aldrei neitt. Rétt eftir komu mína suður, sem var i

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.