Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Qupperneq 36

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Qupperneq 36
36 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR SEX NÝJAR BÆKUR fyíií aðems 150 krónur 20% afsláttur af verði allra aukabóka útgáfunnar Félagsbækur vorar og flestar aðrar útgáfubækur eru komn- ar út og hafa verið sendar umboðsmönnum um land allt. • Fyrir ársgjaldið, 150 kr., miðað við bækurnar óbundnar, fá félags- menn að þessu sinni sex bækur. Fjórar þeirra eru ákveðnar af útgáfunni, og nær valfrelsið ekki til þeirra. Eru það ALMANAK- IÐ, ANDVARI, VESTUR-ASÍA OG NORÐUR-AFRÍKA og ÍSLENZK LJÓÐ 1944—1953. Til viðbótar er heimilt að velja tvær af eftirtöldum fimm bókum: • TVENNIR TÍMAR, skáldsaga eftir Knut Hamsun. Hanncs Sigfússon þýddi. * HESTAR, litmyndabók af íslenzkum hestum. Texti eftir dr. Brodda Jóhannesson. ‘ SNÆBJÖRN GALTl, ný söguleg skáldsaga eftir Sigurjón Jóns- son rithöfund. EYJAN GÓÐA, myndskreytt ferðabók frá Suðurhafseyjum eftir Bengt Danielsson. UNDRAHEIMUR DÝRANNA, eftir Maurice Burton. Alþýðlegt fræðslu- og skemmtirit um náttúrufræðileg efni. Bók þessi kom út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs 1955, en var þá meðal aukabóka. • Þær framantalinna valfrjálsra bóka, sem þér fáið ekki fyrir félags- gjaldið, getið þér fengið keyptar hjá umboðsmanni meðan upplag- ið enclist, á mjög hagstæðu verði, kr. 40,00 bókina ób., kr. 75,00 i bandi. • Vér leyfum oss að minna yður á að félagsmenn fá 20% afslátt ;*f öllum aukabókum útgáfunnar. Meðal aukabóka eru að þessu sinni: ANDVÖKUR St. G. St. IV. og síðasta bindi. SAGA ÍSLENDINGA, IX. bindi, síðari hluti, eftir Magnús Jónsson. FRÁ ÓBYGGÐUM, ferðasögur eftir Pálma Hannesson. ÞJÓÐHÁTÍÐIN 1874, eftir Brynleif Tobíasson. HÖFUNDUR NJÁLU, eftir Barða Guðmundsson. VERÖLD SEM VAR, sjálfsævisaga Stefáns Zweig. SKÁKBÓKIN, eftir Friðrik Ólafsson og Ingvar Ásmundsson. ÍSLENZKU HANDRITIN, eftir Bjarna M. Gíslason. ÆFINTÝRI DAGSINS, þulur og barnaljóð, eftir Erlu. TVÖ LEIKRIT, eftir Loft Guðmundsson. HÚS BERNÖRÐU ALBA, leikrit eftir Fr. Garcia Lorca. • Félagsmenn í Reykjavík eru beðnir að vitja bóka sinna í afgreiðsl- una, Hverfisgötu 21. • Þeir, sem kynnu að vilja gerast félagsmenn, snúi sér einnig þangað eða til Bóakmarkaðsins Ingólfsstræti 8, þar sem allar útgáfubæk- ur vorar, gamlar og nýjar, eru til sýnis og sölu. • Nýir félagsmenn hvar sem er af landinu geta einnig klippt út úr blaðinu og sent oss eftirfarandi pöntunarseðil: Ég undirrit..... gerist hér með félagsmaður í Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins og æski að fá sendar félagsbækurnar 1958. — Óbundnar (verð kr. 150,00). — í bandi (verð kr. 250,00). (Nafn) ...................................................... (Heimili) ................................................... Setjið kross framan við það, er þér óskið. Sem kjörbœkur vel ég eftirtaldar tvœr bœhur: Til BÓKAÚTGÁFU MENNINGARSJÓÐS, fiósthólf 1398, Reykjavík. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins REGLUGERÐ um barnavernd í Hafnarfirði. i- gr- I umdæmi barnaverndanefndar Hafnarfjarðar er börnum yngri en 12 ára bannað að vera á almannafæri eftir klukkan 20 að kvöldi á tímabilinu frá 20. sept. til 15. apríl og eftir klukkan 22 frá 15. apríl til 20. sept., nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 12—14 ára mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22 að kvöldi á tímabilinu frá 15. sept. til 1. apríl og ekki eltir klukkan 23 á tímabilinu frá 1. apríl til 15. sept., nema í fylgd með fullorðnum. Foreldrum eða forráðamönnum barnanna ber að sjá um, að ákvæð- um þessum sé íramfylgt. 2. gr. Unglingum innan 16 ára eru bannaðar óþarfa ferðir út í skip, sem liggja við bryggju eða á höfninni. 3. gr. Unglingum innan 16 ára aldurs er bannaður aðgangur að almenn- um dansstöðum, öldrykkjustöðum og knattborðstöðum. Þeim er og bannaður aðgangur að almennum kaffistofum eftir klukkan 21, nema í fylgd með fullorðnum. Eigendum og umsjónarmönnum jressara fyrirtækja ber að sjá um, að börn og unglingar fái þar ekki aðgang og hafist þar ekki við. 4. gr. Engar kvikmyndasýningar, leiksýningar eða aðrar opinberar skemmtanir, sem börnum og unglingum innan 16 ára aldurs er ætl- aður aðgangur að, má halda nema barnaverndarnefnd hafi verið gef- inn kostur á að kynnast efni þeirra, og ákveður hún þá, að því athug- uðu, hvort börnum og unglingum skuli leyfður aðgangur að jreim. 5. gr. Bönnuð er sala á spýtubrjóstsykri (sleikjum) og brjóstsykursstöng- um, svo og öðrum þeim sælgætisvörum, sem að áliti héraðslæknis og barnaverndarnefndar geta talizt hættulegar börnum og unglingum. 6. gr. Bannað er að selja unglingum innan 16 ára aldurs tóbak, gefa jseim það eða stuðla að því, að þeir neyti þess eða hafi Jjað um hönd. 7. gr. Barnaverndarnefnd er heimilt að banna börnum að annast blað- sölu, dreifingu blaða og útburð bréfa, ef henni jjykir ástæða til. 8. gr. Börnum og unglingum innan 16 ára aldurs er bannað að skemmta á samkomum, jrar sem aðgangseyris er krafizt, án sérstaks leyfis barna- verndarnefndar. Foreldrar viðkomandi barna og forráðamenn skemmtana bera ábyrgð á, ef út af jjessu er brugðið. 9. gr. Barnaverndarnefnd helur heimild til að ákveða, að unglingar 12—16 ára skuli bera aldursskírteini. 10. gr. Brot gegn ákvæðum reglugerðar jjessarar varða sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum. Auk refsingar má svipta menn réttinduin samkvæmt almennunt hegningarlögum nr. 19/1940, ef miklar sakir eru. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild 1 lögum nr. 29/1947, um vernd barna og ungmenna, öðlast jiegar gildi. Barnaverndarnefnd.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.