Fróði - 01.05.1912, Blaðsíða 1
FRÓÐI
FyrstiÁrganoitb WINNIPEG, MAI 1912 áttundaHefti
ÍTo©iÍ£igráir©£!n.Í-
Hvers vegna þuría menn aö sjóða matinn?
Tilgangur manna aö sjóöa eða steikja fæðuna er Sá
1. að mýkja hýðið á, ávöxtum og korni, svo sem baunum
öllum, korni, grjónum, hveiti, rúgi, og vöðvaþrœðina {
kjöttegundum;
Z. að opna smákompurnar (cells), einkum þœr sem hafa
línsterkju í sér;
3. að hálfhleypa eggjahvítu efnin í eggjum, ostinn f mjólk*
inni eða plöntulímið “gluten” *f korntegundunum, eða þá
að leysa upp hlaup “gelatin” og belg “legumen” í baunum;
4. að eyðileggja bakteríur [gerla];
5. að losa fitukornin svo þau blandist saman við aðra fœðu;
6. að gjöra mönnum meltinguna auðveldari;
7. að gjöra fæðuna smekkbetri;
8. að gjöra fceðuna jafnheita líkamanum og aðgreina hin
vöðvamyndandi efni frá öðrum efnum.
Það iná fullyrða það, að mikil suða eyðileggur nœring^
arefnin. Smápartar fœðunnar deyja og verða ónýtir til
þess að byggja upp nýja líkamsparta aðra en fitu.