Good-Templar - 01.03.1899, Page 3

Good-Templar - 01.03.1899, Page 3
35 að ætla sér að útrýma áfengisbölinu með leyfisgjaldi er og verður aldrei nema heimska, það er fákænlegt kák, ónýt skottulækning. Þjóðin er það langt komin í bind- indismálinu, að hún hlýtur að sjá það og skilja. Hið eina rétta sjónarmið, hin eina rétta skoðun er sú, að það sé algjörlega rangt að leyfa áfengissölu. Afengissalan og áfengisnautnin hafa svo marga og mikla annmarka og ókosti í för með sér, sem oflangt yrði hér upp að telja, að vér hikum eigi við að telja sölu þeirra siðferðislegt ranglæti gagnvart einstaklingnum og þjóðinni og vér fáum eigi betur séð, en að það sé að bæta gráu ofan á svart, er menn hugsa sér að láta það verða að þjóðaratvinnu að leyfa átengissölu, og má í þessu sam- bandi einu gilda, hve hátt gjaldið er, sem sett er upp á slíkt leyfi. Vér fáurn og eigi betur séð, en að það sé viðurkent með þeim áfengislögum, sem þegar eru til, að áfengissalan sé ranglæti, eí eigi beinlínis glæpur, gagnvart þjóðfélaginu, gagnvart mannfélaginu, og ætti því ekki að eiga sér stað. Löggjöf landsins liefir þegar lýst það rangt að selja áfengi á helgum dögum, dæmt það sið- spillandi og ósamboðið kristnum mönnum og þess vegna bannað það. Hún hefir lýst það rangt að selja ungling- um, yngri en 16 ára, áfenga drykki, og þess vegna bann- að það. Hún hefir dæmt það rangt gagnvart atvinnu manna og eigum að selja áfengi í sveitum, og því er sveitaverzlurum bönnuð áfengisverzlun. Hún hefir dæmt það rangt að stuðla til þess að embættismannaefni lands- ins neyti áfengis og því eru áfengisskuldir þeirra ólög- mætar o. s. írv.; alt virðist þetta benda í sömu áttina, að i sjálfu sér sé að dómi löggjafa vorra réttast að banna alla áfengisverzlun; hér vantar að eins herzlumuninn, vantar að eins að stíga sporið til fulls. Ef vér svo jafn- framt höfum hugfastar allar hinar illu afleiðingar áfeng- issölunnar og hið algjörða gagnsleysi þeirrar verzlunar annars vegar, þá sannfærumst vér þvf betur um það, Því betur og lengur sem vér hugsum það mál, að hið eina rétta er að leyfa alls eigi slika verzlun. Afengis- verzlunin er, þegar á afleiðingarnar er litið, sú óhæfa, sem

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.