Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 15
47
sölubann eins og þér vitið. Gagnvart Reglunn stendur
gamalt sorgarástand vínsölunnar, sem varla nokkur
maður getur mælt bót án þess að fyrirverða sig fyrir
það, því enginn getur víst kallað, að það sé að mæla
vínsölunni bót, ef ráðist er aftan að einstökum bindindis-
mönnum, og þeir sagðir svo eða svo. Vér berjumst fyr-
ir því nýja, og fyrir þvi góða, vér höfum örugga trú á
málefninu, að það sé eittbvert landsins stærsta velferðar-
mál. Því skyldum vér etast um að aðrir menn fari að
líta á það eins og vér. Ef það góða sigrar í lieiminum,
svo sigrar vort mál líka, og eftir svo mörgum viðburð-
um á síðari timum að dæma, eru mestar likurnar til að
það sigri fljótt. Eg hef ævinlega haft svo hjartgróna trú
á árinu 1901. Eg hef oft gjört mér í hugarlund, að ef
eg ætti að lifa það, að sjá nýjárssólina 1901 koma upp,
svo mundi eg lika sjá hana skína yfir Island lukkulegra
og glaðara en nokkuru sinni áður. Eg gjöri mér nú ekki
lengur í hugarlund, að vínsölubann verði orðið lögleitt
þá, en vona að gamlársdagssólin 1901 skíni í siðasta
sinni yfir ísland sem vinsöluland.
Næsta stórstúkuþing
kemur saman 6. júní 1899. Þingið hefst með messugjörb
í dómkirkjunni, sem byrjar kl. 11. f. m. Eftir messu
verður gengið til fundarsalsins og þingið sett þar Fyrir
alla nýja fullt.rúa verður þar margt að læra, og fyrir
alla gamla fulltrúa verður þar nóg að vinna, þvi það
má ganga að þvi vísu, að verkið komi aðallega á þeirra
lierðar. Næsta þing á að kjósa stjórn stórstúkunnar, og
ákveða stefnu hennar nsestu tvö ár, og kveða upp hér
um bil 20 dómsúrskurði auk alls annars. Vér vonum
að stúkurnar fjölmenni þangað og sendi svo marga full-
trúa sem kostur er á, svo að stórstúkuþingið 1899 verði
fjölmennasta þingið sem haldið hefir verið hér á landi
siðan alþingi hið forna leið undir lok.
í trú, von og kærleika
Indriði Einarsson.
Útgefandi: stórstúka íslands. Eitstjóri: Ólafur Rósenkranz.
Prentað i ísafoldarprentsmiðju 1898.