Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 10

Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 10
42 1. Stúkan »Nýjarsdagurinn« nr. 56 á Eyrarbakka. St. u. Guðm. Guðmundsson verzlunarmaður. Stofnandi Sigurður Eiriksson á Eyrarbakka. 2. Stúkan »Brúin« nr 57 við Þjórsárbrú. St. u. Ólafur Isleifsson læknir. Stofnandi Sigurður Eiriksson. 3. Stúkan »Hjálpin« nr.58 á Skeiðum. St. u. Bjarni Þorsteinsson á Reykjum. Stofnandi- Sigurður Eiríks- son. 4. Stúkan »Harpa« nr. 59 i Bolunsarvík. St. u. Pétur Oddsson sýsiunefndarmaður í Bolungarvík. Stofn- andi Helgi Svemsson á Isafirði. 5. Stúkan »Aldamót« nr. 60 á Kirkjubæjarklaustri. St. u. (?). Stofnandi Guðlaugur Guðmundsson sýslu maður. 6. Stúkan »Leiðarstjarnan« nr. 61 i Engey. St. u. hús- frú Ragnhildur Olafsdóttir. Stofnandi Sig. Júl. Jó- hannesson. 7. Stúkan »Hamingjan« nr. 62 á Stokkseyri, St. u. Guðmundur Sœmundsson kennari sama staðar. Stofn- andi Sigurður Eiríksson. Að br. Sigurður Eirikson organisti hefir stofnað 4 af þeim stúkum sem upp hafa komist á hinu nýbyrjaða ári, er enn sem fyr sérstakur vottur um elju og atorku þessa regluboða stórstúkunnar. Eftir að síðasta stórstúka kom saman hafa verið stofnaðar alls 29 nýjar stúkur og 2 endurvaktar, eða alls 31. „Ve1 róið“ Vér, sem erum stafnbúar á skipinu, álítum að vel hafi verið róið í stafninum. En ef kallað væri til þeirra, sem sitja miðskipa og í skut, og þeir beðnir að herða róðurinn, mundu þeir svara líkt og Grettir forðum: »Ekki mun skuturinn eftir verða«. Því flestar eða allar gömlu stúkurnar halda meðlimatölu sinni, og sumar hafa aukið hana, þrátt fyrir það, þótt nýjar stúkur hafi komið upp í sama bæ eða sömu sveit. Það befir hepnast framar öllum vonum að stofna hverja stúkuna á fætur annari í Reykjavík. Görnlu stúkurnar hafa engu tapað í mann- fjölda fyrir það, heldur jafnvel unnið, þótt allur fjöldinn

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.