Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 14

Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 14
'1(1 fene:a 1870—71 fyrir ágætan skilning og þekkingu á hernaðarlist. Þess vegna á í Reglu vorri hver óbreyttur liðsmaður að vita hvert stefnan er. Hann eða hún á að vita það, þó hann sitji ævinlega á einhverju yzta sætinu á stúku- fundunum. Vér stefnum að þvi að fá vinsölubann lög- leitt á Islandi. Allir, bæði bræður og systur, verða að hafa það hugfast fram yfir næstu kosningar til alþingis. Þótt einhverjir af foringjum vorum féllu í þeirri baráttu, svo vita liðsmenn vorir hver einn og einasti, hvar þeir ciga að standa að kvöldi dags fyrir því. Það er eðlilegt að sumar hersveitirnar geti ekki staðið að kvöldi þar sem þær áttu, örðugleikarnir geta verið ósigrandi, en þá er að hafa barist drengilega til þess að ná takmarkinu. Vér verðum að koma vínsölubanninu inn á næstu undir- búningsfundi undir þing, og á kjörfundina fyrir alþingi 1901. Vér verðum, ef unt er, að hafa leitað atkvæða kjósandenna um það mál um alt land, og að tala fyrir því, og skrifa í sömu stefnu. Vér verðum að kenna landsbúum það, að það er þjóðarinnar hlutverk að kasta af sér brennivinsokinu. Þegar Islendingar hafa lærtþað, svo vitum vér að það er satt, sem Björnson kvað og Matth. Jochumsson þýddi: Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl í heim, eins hátt og lágt má falla fyrir kraftinum þeim. „Skipið er nýtf en skerið er hró“ Nýjar hugmyndir hafa ævinlega eitthvað það við sig, sem gerir þær hættulegar fyrir gamla ástandið. Það er eins og blærinn beri þær með sér út, um alt, og að hann fari jafnframt og eyði gömlu skerjunum, sem standa í vegi fyrir þeim. Loftið slítur klettunum, sem það leikur um, og ber litlu, léttu frækornin með sér og sáir þeim víðsvegar. Vér þurfum ekki annað til að sann- færa oss um þetta, en líta á sögu Good-Templarreglunn- ar, hvað hún var i fyrstu hér á landi og hvað hún er nú. »Það hyrjaði með blæmim, sem bylgjum slær á rein< má segja um hana. Og henni fylgir hugmyndin um vin-

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.