Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 5
37
hirðu á eða vilja tii að kynna sér bindindismálið, þeir
þekkja það ekki, ellegar það eru þverhöfðar, sem hvorki
vilja þekkja neitt né skilja þessu máli viðvíkjandi, vilja
ekki láta sannfærast. — Að fara nú að bjóða þjóðarvilj-
anum, eins og hann er orðinn í bindindismálinu, ný sölu-
leyfidög, að ætla sér að fara að sœtta þjóðina við áfeng-
isverzlunina með nokkurs konar milligjöf eða meðgjöf,
stinga upp í hana eins lionar dúsu, til þess að hún þegi
og umberi enn þá með þolinmæði afleiðingar áfengisverzl-
unarinnar ofan á alt sem á undan er lcomið um ómuna-
tið af hennar völdum, það er langt á eftir tímanum; það
er um seinan, sem betur fer. Þjóðin hefir á hinum síð-
ustu árum öðlast svo mikla og góða þelddngu á áfenginu
og áfengisverzlaninni, að hún sættir sig hóðan af ekki
við neitt annað en að losna við áfengið eða að minsta
kosti við áfengissöluna.
Nokkrir kaupmenn vorir eru þegar liættir að flytja
áfengi inn í landið til sölu, og hafa þeir flestir tekið það
upp hjá sjálfum sér. Þannig hefir tvö síðastliðin ár ekki
verið fluttur 1 pottur af áfengi til sölu til Olafsvíkur,
Flateyjar, í Skarðstöð eða Hornafjarðarós. Ibúar þessara
verzlunarstaða og héraða þeirra, er þangað sækja verzl-
un, una þessu hið bezta. Ait bendir þetta í sömu áttina,
að þjóðin, og þar á meðal margir kaupmennirnir líka,
vilja losna við áfengið. Sannarlega væri það ótímabær
burður að fara nú að gefa út lög, er héreftir eins og
hingað til leyfðu áfengissölu a þessum stöðum. Væri ekki
nokkru nær og samkvæmara vilja ibúanna að gefa út
lög, sem bönnuðu algjörlega um aldur og æfi alla áfeng-
isverzlun á þessum friðuðu blettum? Og livers ættu þeir
að njóta, að verða einir þessara ómetanlegu hlunninda
aðnjótandi, eða eru það kaupmennirnir, sem eiga að hafa
vit fyrir þjóðinni?
í fjölmennustu sýslu landsins, Arnessýslu, er um
þessar mundir verið að safna undirskriftum undir áskor-
anir til kaupmanna sýslunnar um að hætta að flytja á-
fengi til sölu í verzlanirnar. Hefir sú málaleitau fengið
þe gar mikið góðan byr, og telja kunnugir allar likur til,