Good-Templar - 01.03.1899, Qupperneq 6

Good-Templar - 01.03.1899, Qupperneq 6
38 að þorri kjósenda skrifi undir þessa áskorun, í sumura sveitum jafnvel hvert mannsbarn, er á kjörskrá stendur. Hér kemur fram enn ein sönnun fyrir þessum sama þjóð- arvilja, sýslan vill losna við áfengissöluna. Samskonar áskoranir mundu vera komnar fram í öllum öðrum sýsl- um iandsins, ef menn hefðu treyst því, að þær kæmu að tilætluðum notum. Loks er síðasta ástæðan til þess, að vér getum eigi aðhylst sölugjaldslög, sú, að slík lög mundu innan skamms verða þvi til fyrirstöðu, að þjóðin fái viija sínum fram- gengt. Það er enginn efi á því, að innan skamms heimtar þjóðin áfengissölubann, og ef sölugjaldslög eru þá komin í gildi, er ekkert liklegra, en að áfengisvinir og andstand- endur sölubannslaga bendi á hin nýju iög segjandi: Þér hafið nýfengið áfengislög, þau eru fullgóð handa ykkur fyrst um sinn, og landssjóður má ekki missa tekjurnar af leyfissölunni. Samkvæmt öllu framansögðu getum vér ekki kom- ist að annari niðurstöðu en þeirri, að næstu áfengislögin, sem hin islenzka þjóð eigi að fá, lög, sem samsvara vilja þjóðarinnar og núverandi stigi bindindismálsins, séu hrein og bein xölubannslög. Andmælin. iíigi keinur oss bindindismönnum til hugar, að áfengisvinir taki þegjandi á móti sölubannslögunurn; vór vitum rneð vissu^ að þeir muni hefja audmœli gegn þeim bœði í ræðum og riturn, bæði í héraði og á þingi, enda eigi laust við, að þegar só farið að brydda á þeim; en vér fáum eigi séð, að þau andtnæli geti verið á næg- um rökum bygð eða orðið hættuleg fyrir framgang málsins, Fyrstu og helztu andmælin verða auðvitað bygð á tekju- rýrnun landssjóðs við sölubannið, sem öllum kemur sanian um að bæta verði hontrm upp á einhvern hátt og þá helzt með nyjum eða breyttum tollálögum. Bent hefir verið á ofboð einfalt ráð, til að bæta latrdssjóði tekjuhallann, en það er nteð því, að ltækka tóbaks- tollinn að sama skapi og áfengistollurinn minkar. Það virðist vel

x

Good-Templar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.