Good-Templar - 01.03.1899, Blaðsíða 12
u
sem hiinn komst, og hafði að kvöldi dags grætt á söl-
unni 1 kr. 25 aura. Stórstúkan vildi helzt að undirstúk-
urnar færu að eins og drengurinn, keyptu fyrirlesturinn,
og seldu hann svo aftur, og er viss um, að þegar ein-
hver stúka er búin að græða 1 kr. 25 aura á sölunni, að
þá heflr málefnið okkar grætt á henni 2 lcr. 50 aura.
Vér þurfurn að útbreiða fyrirlesturinn eins mikið og unt
er fyrir næsta þing, og fyrir næstu kosningar.
Nokkurum strykum hærra upp í vindinn
stýrir Reglan nú en bún heflr gjört áður. Vér höfum
áður beðið um héraðasamþyktir. I daglega lífinu hefir
verið barist fyrir því, að fá kaupmenn til að hætta við
að flytja vínföng til sölu, og það hefir tekist vonum
framar. Nú eru til nokkurir kaupstaðir sem ekki flytja
vínföng. I Dalasýslu gjörir sýslumaðurinn alt sem hann
getur til þesss að fá þessháttar áskoranir upp gegn vín-
flutningnum á Hvammsfjörð og í Arnessýslu gjöra prest-
ar það sama, gagnvarf verzlununum þar að sagt er, með
miklum árangri. Það þykir næstum víst, að Skaftfell-
ingar mundu geta lokað kaupstöðum sínum fyrir áfengis-
verzlaninni, ef áskoranir einar nægðu til þess. En því
skyldi það ekki nægja, ef verzlunarmenn segja við kaup-
mennina: »Ef þú verzlar ekki með áf'engi, þá verzla eg
við þig, annars gjöri ég það ekki«. Reglan, sem hefir
nú fest f'ót svo víða, stýrir betur upp í vindinn; vér vilj-
um fá vínsölubann, þannig, að áfengissala og pantanir
fyrir aðra, sé bönnuð, en verzlunin með það sé aðeins
leyfð i lyfjabúðum og eftir læknisráði, en einstökum
mönnum ekki bannað að panta vínföng handa sjálfum
sér. Fyrir þessu ættum vér að berjast þa ígað til það er
fengið. Því máli verðum vér að koma inn á alla þing-
málafundi, og á kjörþingin næst. í því skyni verða
sendar út áskoranir um alt land, og þeim sem berjast
f'yrir málinu verða lagðar helztu ástæðurnar í munn í
grein, sem stendur hér i blaðinu.
Hvernig mundir þú berjast?
í tölu, sem Sverrir konungur hélt fyrir bardagann á
Iluvöllum, sagði hann liðinu sögu af gömlum manni, sem