Good-Templar - 01.05.1900, Síða 11
68
minnsta kosti þegar eitthvert slys vill til, að inir síðarnefndu
ættu að vera bindindismenn).
Með því nú að enginn veit, hvaða tilhneigingar í þessa átt búa
i æskumanni, þá er ávalt ráðlegast að hindra ]>að i tæka tíð.
Það skal játað, að mentun, uppeldi og þekking o. s. frv. hafa
mikið vald yfir Bakkusi. En nú er „aíkohol“inu svo farið, að
það einmitt veikir og eyðileggur allar andlegar afurðir ment-
unar, uppeldis og þekkingar, og þá missir maðurinn, þegar svo
er komið, sinn bezta skjöld. Þess vegna — af því að inir
hryggulegu viðburðir mannynsins, bygging mannlegs líkama,
dómur vísindanna um „alkohol" og inir glæsulegu ávegstir
bindindismálsins segja oss:
að „alkoholið", hvar sem það er um hönd haft, hafi í för
með sér ákaflega miklar sorgir, missi bæði andlegra og lík-
amlegra gæða; að „alkohol“ið sé eitrað og ekki einungis
ónauðsynlegt líkamanum, heldur og mjög skaðlegt fyrir hann,
og að naut.n áfengis hafi ina mestu hættu í för með sór, en
algjört bindindi sé aftur á móti til gagns og blessunar og in
eina hlíf einstaklingsins gegn hættum þessum — einmitt
þess vegna reynum vér að breiða út bindindi og innræta
æskulýðnum viðbjóð á vínnautn. Þar með viljum vér:
1., vernda börnin — fyrir heimilið, fyrir þau sjálf, fyrir
landið, fyrir guð, með því að vér álítum, að bindindismað-
urinn só bezt verndaður frá einni af inum mestu hættum
mannkynsins og að hann sé vissari en drykkjumaðurinn um
að hafa óskert líkamlegt og andlegt atgervi og geta orðið
nytsamur sór og þjóðfélaginu
2., vinna þau fyrir málofnið og þar með til háleits og
blessunarríks starfa fyrir aðra og þjóðfólagið — og
3., koma upp bindindiskynslóð, því að sá sem á börnin, á
framtiðina, og með þvi að bindindið fái sem beztan vöxt og
viðgang meðal barnanna, sjáum vór - auðvitað í samvinnu
með góðu uppeldi, kristindómi og fræðslu — dýrðlegt — og
ið eina örugga fyrirheit um bindindisþjóðfólag á ókomnum
tíma.
Fullorðnir bindindismenn ættu að gefa meiri gaum að
bindindismálinu meðal barnanna og gera sér meira far um að
útbreiða það meðal þeirra, þar sem það er aðalskilyrðið fyrir
viðgangi bindindismálsins,