Good-Templar - 01.05.1900, Side 15

Good-Templar - 01.05.1900, Side 15
67 nýtt? Éða gat Jesús síður breytt vatni í gamalt vín í Kana („tar á staðnum“) heldur en einhverstaðar annarstaðar? Ég bað hr. 0stl. um sannanir, í fullyrbinqa stað, fyrir því, að Jesús hefði ekki neytt áfengs víns, og færði ég likur af máls- ins eðli fyrir því gagnstæða. Hvar eru svo sannanir hr. 0stl.? Hvergi! í þeirra stað kemur hann að eins með órökstuddar fullyrðingar fleiri manna. Ég virði séra Magiiús mest allra bindindismanna á þessu landi. Ég virði minning Adam Clarke’s sem bókfræðings, og veit að hann var mikisvirtur biblu-skýr- andi fyrir 100 árum. En einskis manns fullyrðingar sanna neitt, heldur að eins röksemdirnar, sem þær eru bygðar á. Full- yrðing séra M. er á engu bygð nema samskonar fullyrðingum annara. Hvort Dr. Clarke hefir fært nokkur rök fyrir fullyrð- ing sinni, er mér ókunnugt um. Hr. 0. nefnir engin. — Ef ég áliti mannanöfn nokkrar sannanir, þá gæti ég komið með merk- ari nöfn mín megin. En mál þetta virðist nú útrætt, þar sem hr. 0. tjáir sér um megn að færa röksemdir fyrir málstað sín- um, og orðlengi eg því ekki meira um þetta. J. Ó. Reikningur yfir tekjur og gjöld Stór-Stúku ísl. frá 1/2—il0/4 1900. Tekjur: í sjóði 1. Febrúar 1900 .............kr. 162,96 Meðtekið frá Stór-Gæzlum. U.-T. (15/2) . - 20,19 — - Stór-Ritara ..............- 505,08 Endurborguð lán til útbreiðslusjóðs . . - 100,00 kr. 788,23 Útgjöld: Laun...................................kr. 30,00 til Good-Templars.......................- 75,00 Burðargjald.............................- 39,05 Prentanir, pappíi-, bækur handa nýjum stúkum, umslög o. s. frv. . . - 592,42 Innhefting..............................- 38,38 Gler yfir stofnskrá Stór-Stúkunnar . . 2,50 kr. 777,35 í sjóði 30. Apríl 1900 .......................kr. 10,88 Reykjavik, 30. Apríl, 1900. Sig. Jónsson, St.-G. Utbrelðslusjóðsrelkningurinn bíður vegna rúmleysis næsta blaðs. — Utgef.

x

Good-Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.