Good-Templar - 01.12.1901, Page 9
149
kunni eg sjáltur nokkuð, þyí eg hefi lengi álitið að það væri
íegursta ástarkvæðið á málinu. Eg fann að vegurinn sem við
höfðum farið um daginn, lá yfir sjálft leiksviðið þar sem at-
burðurinn, sem kvæðið er ort líf af, fór fram á fyrri hluta
síðustu aldar. Til vinst.ri handar í dalnum réttir fjallið fyrir
ofan Hraun átján steinfingur til himins; það eru Hraundrangar,
sem eru nógu háir til að hylja sói og ástarstjörnur fyrir svein-
um í djúpum dal. Öxnadalurinn og heiðin eru myndirnar,
steini studdar, sem koma í kvæðið „Ferðalok", þegar það verður
gefið út skrautprentað, með mynd við hverja eða aðra hverja vísu.
Næstu eift þúsund ár mnnu margir elskendur fara veginn
vestan yfir heiði og norður Öxnadal. Engan mun furða þótt
piltur og stúlka sem fara um heiðina undir þeim kringum-
stæðum renni augunum upp í hliðina, þar sem gamli vegurinn
lá, eins og til þess að vita, hvort þau sjái ekki ungan mann
og unga stúlku tina blóm yfir höfði sér. Þegar jódynurinn
bergmálar frá hlíðunum aftur, mætti vera að þau svipuðust
um: „Hló enginn á heiðinni?" Öld eftir öld munu elskend-
ur fara veginn, og meðan það mál er skilið á íslandi, sem
við tölum nú, mun allmikill þorri þeirra þekkja „Ferðalok"
Jónasar, og sjá með andans augum Jónas ungan og ungfrú
Reykjahlíð sitja á einhverjum árbakkanum og hann greiða
henni lokka. — Skyldi eitthvað af þessu ófædda ferðafólki
setjast á árbakkann, þar sem sjónin hvarf út í loftið, til þess
að kasta blómum og blágrösum út á strauminn, og vilja ráða
örlög sín af því, hve lengi blómin þeirra beggja yrðu samferða,
þá viljum við óska þess, að þau fljóti samsíða svo langt sem
augað eygir.
Akureyri.
Akureyri séð frá pollinum lít-ur svipað út og mynd af
Algier. Aðal-húsaröðin er með sjónum, og bærinn er að
byggjast upp brekkuna, þar sem útsýnið er fegurra. Yið sam-
ferðamenn settumst að á Hótel Akureyri, sem er fyrirtaks
gistihús. Akureyri hefir um langan aldur tekið öðrum kaup-
stöðum fram í þeirri grein.
Undir eins og eg var kominn á Akureyri, hafði eg nóg að
starfa, að heimsækja Templara og heldri menn bæjarins, og
sjá stúkurnar, sem eru þar. Eg kom klukkan 7, Klukkan 9