Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1952, Page 11

Muninn - 01.04.1952, Page 11
MUNINN 35 Hin tegund óttaskjálftans, sú, sem amar, er altur á móti mjög hættuleg. Á henni er nauðsynlegt að vinna bug. Nám mælskufræði, vandlegur undir- búningur ræðunnar, nákvæm athugun aðalatriðanna — allt þetta skapar Jrá meðvitund hjá ræðumanninum, að hann hali gott vald á efninu og ekkert sérstaklega óþægilegt geti komið fyrir hann. Þessi meðvitund treystir um leið aðstöðu lians gagnvart áheyrendunum. Ræðumaðurinn er þess fullviss, að hann þekki málið betur en þeir. Þetta skapar hið nauðsynlega sjálfstraust, sem er grundvöllur hugrekkisins. Á hinn bóginn er mjög ráðlegt að æfa sig svo mikið sem unnt er, til Jress að vinna bug á óttanum. Byrjendur í Suður-Frakklandi er borg, sem heitir Limoges. Þrjátíu kílómetrum sunnar liggur lítið þorp, senr heitir Magnac-Bourg. Þar býr maður að naf'ni Robert de la Bastide ásamt konu sinni. Hjá þeirn dvaldi ég í þrjá og hálfan mánuð síðastliðið sumar. I þorpinu bjuggu um 500 manns, og lifðu flestir á landbúnaði, en nokkrir á verzlun og iðnaði. Flest voru htisin mjög gömul, hlaðin úr steini, og voru mörg þeirra farin að hallast og síga. Húsið, sem ég dvaldi í, var t. d. byggt árið 1742. Það var stórt og fallegt tveggja hæða hús, og hafði húsbóndi minn hlotið Jrað að erfðum eftir föður sinn. Allt um kring voru tré og runn- ar, er juku fegurð umhverfisins. Á bað við liúsið var stór garður, þar sem allt Jrað var ræktað, er þurfti til heimilisins. Þar óx fjöldi matjurta og grænmetis og auk þess jarðarber og vínber, og nægði þetta heimilinu árið um kring. Umhverfis garðinn var skógarsvæði, er taldist einnig til land- areignarinnar. Innan húss var hins vegar meira farið að láta á sjá. Gólf voru slitin og hurðir gisnar. Mörgum þeirra var erf- itt að loka, og sumar féllu alls ekki aftur. Engu var eytt til viðgerðar og litlu til ræstingar. Ekki var fleira í heimili en húsbónd- inn og húsmóðirin, auk eldabusku og bústjóra. Ekkert Jreirra talaði orð í neinu öðru tungumáli en frönsku. ættu að æfa sig í herbergi sínu eða á öðrum stað, þar sem ekki sést til þeirra. Þeir skulu reyna að segja alla ræðuna fram upphátt og ímynda sér, að á þá sé hlustað. Margir miklir ræðu- rnenn fóru Jtannig að í upphafi. Stund- um röðuðu jreir jafnvel stólum fyrir lraman sig til Jress, að þeir ættu hægara með að ímynda sér álieyrendurna! Fyrst ættu menn að flytja ræður sín- ar í vinahópi með félögum og kunn- ingjum. Síðar, jtegar hinn ungi ræðu- maður finnur, að móður lians rnuni ekki bila, getur hann gengið lram lyrir stærri áheyrendahóp. Upp frá því stæl- ist hugur lians æ rneir, þannig að hann öðlast að lokum nauðsynlegt öryggi. (Þýtt úr esperantó). B. R. Húsbóndinn á heimilinu var (55 ára gamall maður. Hann halði lokið lífs- starli sínu fyrir mörgum árum. Eitt sinn hafði hann gengið í skóla og lok- ið þar því námi, er honum var talið nauðsynlegt. Síðar tók við herjrjón- ustu í f’yrra stríði, og eftir Jtað hafði hann að engu starfað. Hann lifði á eignum sínum einum og fór sparlega með. Frúin áleit einnig almenn heirn- ilisstörf sér ósamboðin, lá venjulega á legubekk og lagði kapal eða kjassaði stásshund sinn. Bæði voru þau samt gæðamanneskjur, er vildu öllum gott gera. Hjónin liöfðu eignazt fjóra syni, en misst einn í síðasta stríði. Á Jreim ár- um börðu Þjóðverjar einn morgun að dyrum og báðu fólkið að flytja allt í eitt herbergi, þar sem þeir þyrftu á liúsinu að halda. Þannig bjuggu Jrau í nokkurn tíma. Gamli maðurinn hafði, ásamt sonum sínum öllum, set- ið í fangelsi hjá Jreim á stríðsárunum. Herbergi mitt var á annarri hæð, og \issi glugginn á því út að trjágarðin- um. Eg taldi sex svefnherbergi þarna uppi, atik þess sem fimm stofur voru á neðri hæðinni. í Jiessu húsnæði bjuggu aðéins tvær manneskjur. Svefn- Iierbergin stóðu ætíð ónotuð, og var þar aldrei dregið frá gluggum. Alls staðar spunnu kóngulær vefi sína, og oft á kvöldin þurfti að eyði- leggja vefina til Jress að komast undir teppin. Þó voru flærnar í dýnunni verri. Þær ásóttu mig alla nóttina, og varð ég svo stöðugt á daginn að reyna að tína þær af mér. Ef flær hafa verið í öðrum rúmurn, hafa Jrær verið orðn- ar leiðar á franska blóðinu, því að aldrei sá ég bit á öðrum á heimilinu. Nótt og nótt kom jiað einnig fyrir, að lítil mús skreið undan rúminu eða skápnum og skoðaði sig um. Maturinn á heimilinu var alllrá- brugðinn því, sem við eigum að venj- ast hér heima. Eitt af því liezta, sem borið var á borð,fundust mér vera smá- krabbar Jieir, er við veiddum í lækj- um í nágrenninu. Mjólk var aldrei drukkin með matnum, heldur ætíð hvítvín eða rauðvín. Á heimilinu voru fimm kýr, auk svína, hænsna, ancla og kanína. Ekki var heyjað nerna handa Jressum fimm kúm, enda jnirlti ekki að óttast vor- hörkur né rigningasumur. Er sláttur hófst í annað sinn, var é<> sendur til vinnu með bústjóranum á tún, er voru nokkuð fyrir neðan búið. \hð slógum með sláttuvél, sem tvær kýr drógu. Var jiað eina vélin á búinu. Eg var látinn ganga á undan með langt prik, og með því stjórnaði ég kúnum. Á sláttuvélinni sat vinnumað- urinn og öskraði óskaplega á skepn- urnar, en þess á milli dró hann vín- flösku upp úr vasanum og drakk væn- an sopa. Heyið létum við liggja daglangt, snerum Jrví síðan einu sinni, og að kvöldi annars dags var því fleygt á vagn, er dreginn var heim al kúnum. Líkt var Jiað, þegar við plægðum. Allt gekk seint og letilega, enda var steikj- andi sólskin og mikill hiti, er gerði hvern mann latan og lítt fallinn til erfiðrar vinnu. Þannig unnum við saman tveir allt sumarið. Aldrei sagði bústjórinn eiti einasta orð við mig, enda.gat ég aldrei skilið, hvað hann sagði við aðra. Dagarnir liðu einn af öðrum. Sum- arið leið, og að því kom, að ég þurfti að hugsa til heimlerðar. Ég kvaddi því I lok september, Jrótt gjarnan hefði ég viljað dveljast lengur. Er ég hugsa um sumarið og Jrað fólk, er ég hitti, þá minnist ég þess með ánægju og söknuði. Það voru allir vingjarnlegir, kátir og glaðir, lifðu fyrir líðandi stund, en létu ekki áhyggjur og mót- læti vinna bug á gleði sinni. Ö. Þ. Á frönsku heimili

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.