Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1923, Side 15

Heimilisblaðið - 01.10.1923, Side 15
HEIMILISBLAÐIÐ við það, að hann gæti þó notað hendurn- ar; og þegar búið var að hlaða koddum þétt að baki honum, þá fór hann að skrifa rækilega frétt af bardaganum og ritaði nokkur drög til blaðagreina, áður en hann læri að sofa. Hann átti bágt með að solna; hann kendi svo lil í fætinum, lá lengi vak- andi og hugsaði — ekki um þessa hrylli- legu viðburði, sem hann hafði tekið þátt í, — heldur um Myrtle. Ivonan, sem hann dvaldi hjá, átti son, vaskan og vel að sér, þá sextán ára að aldri; Brian sendi hann morguninn eltir til að komast á snoðir um, hvað gerst hefði. Hrian setti honum margar varúðarreglur, og hinn ungi sveinn leysti erindi sitt svo rösklega af hendi, að Brian gat sent að nýju bréf morguninn eftir; en er læknirinn kom heim, harðbannaði hann Brian að skrifa; hann væri hræddur um, að hann fengi þá hitakast. Brian var þá nauðugur einn kostur að síma »Dagsímanum«, að hann hefði særsl, svo að senda þy.rfti ann- an fréttaritara til Liége. XX. Hetta var i fyrsta skifti, sem Brian hafði legið rúmfastur og honum fanst tíminn langur, þrált fyrir það, þótt konan góða léti sér ant um hann og hjúkraði honum ágætlega og útvegaði honum bækur og blöð. Af blöðunum sá hann, að alt var aftur komið í röð og reglu. Yerstu uppreistar- seggirnir voru handteknir og settir i varð-* hald, og herlið var til gæzlu á ýmsum stöð- um í borginni; en öll voru blöðin á einu máli um það, að þessu verkfallsmáli væri f>ráðum lokið. Eitt kvöld, viku síðar en hann særðist, barst honum í bendur eintak af Lundúna- blaðinu »Times«. Hann las og las af kappi, eu er minst varði rak hann augun í svo látandi grein: »Cravenstone lávarður myrt- ur, hinn nýbakaði lávarður, alkunnari und- h' nafninu Jósef Haliford«. Brian fanst fyrst, sem hann væri að dreyma; hann lagði bréfið frá sér og lá lengi og starði upp í 135 loftið; síðan tók hann blaðið aftur og las alt framhaldið af fregninni um morðið. — Hað var brjálaður mannræfill, hinn svo nefndi »Halifords-Billy«, er myrt hafði lávarðinn, og kvartað var um þá óvarkárni, að láta annan eins vitfirring leika lausnm hala, þarna umhverfis verksmiðjuna. Fregnin endaði á því, að erfinginn að nafnbót lávarðarins, hr. Brian Haliford, væri um þær mundir erlendis og enginn vissi um heimilisfang hans. Brian datt aftur á bak í rúmið og lok- aði augunum, alveg höggdofa af þessari voðafregn; honum fanst þessi atburður standa sér lifandi fyrir hugskotssjónum, eins og hann hefði verið þar sjálfur við- staddur. Haliíord-verksmiðjan hafði nú hefnt sín á manni þeim, sem hún hafði auðgað; en dauðinn máir burt alla beiskju; það var meðaumkvunin ein með hinum metorða- gjarna gamla manni, sem greip Brian, manni, sem hafði endað skeið sitt svo frægi- lega og svo börmulega. 1 fyrstu hugsaði Brian ekki um annað en lávarðinn, og þó hann hefði lesið það, sem snerti hann sjálfan, þá var hann ekki þegar í stað búinn að átta sig á því, að hann var orðinn tiginn nafnbótarmaður, orðinn lávarður að tign. En er honum var orðið það reglulega Ijóst, þá settist hann upp í rúminu og blóðið hljóp fram i lcinn- ar honum, og nú hugsaði hann lil þess, að hann ætti nú sæti við hlið hins látna lá- varðar, en nú var hann hér bundinn við rúmið, mátti sig hvergi hræra og hann mundi ekki verða ferðafær fyr en eftir margar vikur! Hvað átti hann nú til bragðs að taka? Hon- um hatði ekki til hugar komið að föðurbróð- ir sinn mundi deyja. Jósef eða Cravenstone lávarður, sem hann nú var kallaður, hafði ávalt verið heilsuhraustur og voru því all- ar líkur til, að hann ætli langt eftir ólifað. En við fráfall hans var Brian kominn í I þá stöðu, sem hann taldi sig alls óhælan til; langaði hann nú mesl af öllu til að

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.