Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1917, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.09.1917, Blaðsíða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 99 Oss finst svartsýnið ekki hæfa sumardýrðinni, sem við oss blasir; og ekki fer heldur vel á því í ljósbirtu jólanna. Jesús kom ekki til þess að hrífa oss tafarlaust með sér upp ti! himna. Hann kom og kendi oss að lifa jarðlífinu; og jólin flytja oss ekki einungis áminningu um himininn, þau koma einnig með fögnuð og frið á jörð. Annars erum vér þakklátir fyrir hina góðu áminningu! Vér þörfnumst þess einnig — og ekki síst er alt gengur að óskum — að vér «éum mintir á hverfulleik jarðlífsins. „Sífelt skifta sjáum um, sorg og gleði í heiminum" — það er hverju orði sannara. Og vottar þeirra veðrabrigða eru meðal annars nýnefndir sálm- ar Th. Kingos. — Það eiga ekki allir því Iáni að fagna, að búu sólar-megin i mannlífinu eins og vér; og vér getum ekki heldur vænt þess, að fá ætíð að hýrast á hinni grænu grein, þess vegna eru oss kærar hinar alvailegu á- minningar. En fyrir oss vakir þetta: að vel megi hlýða að njóta hins jarðneska, sé það gert með „himn- esku hugarfari", og að oss beri að gera hið jarðneska svo himneskt, sem auðið er. Tökum til dæmis heimili vor; sannkristið heimili er víst hið himneskasta, sem vér þekkj- um. Hugsum vel um það, hvernig ver fáum réttilegast og bezt notið alls þess góða, sem heimilið hefir að bjóða — alt frá hinni fyrstu ást og auðsveipni, sem var frumvisir heimilis- ins eins og það er nú, með glaðlegum barna- leikjum og vinaheimsóknum, vinnu og hvíld, virkum dögum og helgum . . . atls þessa ber ■oss að njóta með „himnesku hugarfari11: með góðri samvizku og þakklátum huga. Þá fyrst tileinkum vér oss ldutina eins og vera ber, og þá fyrst getum vér notið þeirra í íriði. Þeim er sem sé svo háttað, hinum jarðnesku hlutum, að án blessunar njóta þeir sín ekki. Bæði fæðan, vinnan og hvíldin, heimilis-ánægj- an og ástin — alt þarfnast það blessunar. Ann- ars getur það auðveldlega orðið að farartálma á leið vorri, svo að hvorki vér né ástvinir vorir fiái að komast að hinu mikla náðarborði. En ef vér hinsvegar neytum þessara gæða jafnan með þakklæti og biðjum Guð að blessa oss þau, þá munu þau þvert á móti greiða fyrir oss leiðina. Annars fáum vér ekki notið þeirra í friði. Hugsum oss kristinn mann, sem nýtur þess- ara gæða og neytir þeirra án Guðs blessunar. Fyr eða síðar mun svo fara, að hann þrái meiri helgun. Og þá finst honum, sem þessir jarðnesku hlutir standi í vegi fyrir gæfu hans, og því beri. að hafna þeim. Hann veit það, að hveitikornið ber ekki ávöxt, nema það falli í moldina og deyi; og nú finst honum, að frá þessum hlutum verði hann að deyja — hafna þeirri gleði, sem þeir veittu honum. Það er eins og að heimilisánægjan og hvíldin verði hon- um ófrjáls, vinnan aðeins til að eyða ömurleg- um hugsunum, og ástin, sem hann nýtur, hún sé aðeins til að gera hann jarðbundnari. Þann- ig kemur honum þetta fyrir sjónir, og má vera að hann hafi rétt fyrir sér; en það er þá af því, að hann naut hlutanna ekki ráðvandlega. Hann bjó við þá eingöngu sem veraldleg gæði, og því er ekki að furða, þótt þeir yrðu honum óhagstæðir. En sá, sem ætíð þakkar Guði fyrir það, sem hann nýtur, og nýtur ekki annars en þess, sem hann finnur sig geta þakkað Guði fyrir, hann er úr öllum vanda, — því að það, sem í raun og veru skiftir mestu fyrir hann, er ekki hlut- urinn sjálfur, heldur hitt, að fá notið hans með velþóknun Guðs. Og þegar hann, sem þannig nýtur hinna jarðnesku gæða, þráir meiri helgun og er mint- ur á sjálfsafneitun, þá veit hann, að það eru ekki þessir hlutir, sem honum ber að afneita, heldur eigingirnin, nautnasýkin og makræðið, — alt það á að hverfa. Hann þarf ekki að leggja hömlur á heimilis-ánægjuna með konu og börnum, ekki að vanrækja vinriuna, néheld- ur að neita sér nm hvíld. Nei, einmitt með fulltingi þessara lífsins gæða hefir hann daglega háð baráttuna gegn hinum skæðu óvinum. Meinlætingaþörfin gerir vart við sig aðeins þar, sem hinna jarðnesku gæða er ranglega notið, — þar sem við þeim er tekið án þess

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.