Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1917, Síða 6

Heimilisblaðið - 01.09.1917, Síða 6
100 HEIMILISBLAÐIÐ að þakka Guði fyrir þau, og þeirra ekki notið frammi fyrir augliti hans. Það er fyrsta skilyrðið: að njöta hins jarð- neska „með liimnesku hugarfari11. I öðru lagi: ad leitast við að gera jarð- nesku lífskjörin svo himnesk, sem auðið er. Borðhalds-ánægjan blessast og vex við það, að þakka Guði fyrir matinn. Þess vegna skyldi hvert heimili þegar frá byrjun taka upp þá fögru venju, sem vér erfðum frá feðrum vorum : að lesa borðbœn. Smámsaman mun sá siður verða þeim harla kær — sífeld endurnýjun gleðinnar yfir því, að hafa mat á borði, og að börnin þurfi ekki að fara þaðan svöng. Húslestrar varpa himnesku ljósi á heimilis- lífið, Það er heimilisins ánægjulegasta stund, þegar vér sameinaðir — bæði eldri og yngri „lyftum í hæðir með heilögum söng hjörtum úr veraldar umsvifa þröng“. Sambúð manns og konu blessast við það, að þau biðja saman og bera umhyggju hvort fyr- ir annars sálarheill, Meðan þau eru saman á vegferðinni, ber þeim að hjálpast að og leið- beina hvort öðru til Guðs. En það er svo oft, bæði á heimilinu og ut- an þess, að menn vilja að vísu gjarnan eiga gott eitt saman, en tekst þó ekki að vera hver öðrum svo góðir, sem skyldi. Það þykir mest um vert, að alt sé geðfelt og þægilegt, engar misfellur — umfrnm alt að „lifa í friði“. En slíkan frið má þó kaupa of dýru verði. Svo er t. d. ef hans vegna er dregin í hlé sú hjálp, sem skylt var að veita. Það má ekki láta ósagt það sem segja þarf, af ótta fyrir því, að miður kunni að falla. Og þess ber jafnan að miunast, að aðalkostir sambúðarinnar eru ekki hin sléttu og feldu þægindi, heldur gagn- kvæma hjálpin. Og ef greina á i milli ánægju og arðs af sambúðinni — sem reyndar verður ekki gert —, þá lálum oss kjósa arðinn. Það er auðvelt að benda á dæmi, til marks um hinn sýkta hugsunarhált, er svo víða verð- ur vart, svo sem þessi: 1. „Nú fór ver en skyldi: hún frú Hansen heyrði það sem þú sagðir um manninn henn- ar !“ Það var vel farið. Þar sem það var satt, sem sagt var, þá fór einmitt bezt á því, að frú Hansen fengi að heyra það. Þá er sem sé of- urlítil von um, að það verði Hansen til góðs, er konan hans veit hvað það er, sem við með réttu finnum ámælisvert í fari hans. 2. „Slíkt og þvílíkt segir maður aldrei við móður!“ Svo ? við hvern skyldi maður þá heldur segja það? Stendur nokkrum nær að heyra hið sanna um drenginn, en einmilt móður hans?’ Hún vill ef til vill aðeins heyra honum hælt! Það er þá sízt að furða, þó að hann sé hé- gómagjarn og afvegaleiddur. Og þá verðskuld- ar hún ekki móðurnafnið — nafn hins bezta verndara. 3. „Eg sætti mig alls ekki við það, að nokkur dirfist að tala misjafnt um bróður minn!“ Það er harla undarlegt! — og alveg eins þó að satt sé sagt ? Hver á þá að leiðbeina honum, er þeir ganga tiá, sem næstir standa?' Vei slíku bróðerni! Og hvílík ættardýrkun er það ekki, sem víða bólar á, bæði heimskuleg og óhlutvönd! í raun og veru er það sérgæð- ingsháttur — og annað ekki. Um „mig og mína“ leyfist engum neitt að segja. En með þeim hætti er vonlítið að sá hinn sami taki sér fram um það, sem áfátt er. Öll þessi gæði lífsins: hjúskapur, bróðerni, vinátta o. fl. eru hégómlega metin og misbrúk- uð, sé þeirra eigi notið með það fyrir augum, að hafa af þeim andlega hjálp svo mikla, sem auðið er, Sé hinsvegar aðeins um þaðhugsað,. að „láta sér líða vel“ í sambúðinni, þá vantar inikið á, að vér séurn hver öðrum sannarlega góðir. Nefnum enn eitt dæmi: Vinátta hefir í sér fólgna samúð og virð- ingu: oss þykir vænt hvorum um annan, og vér höfum mætur hver á öðrum, virðum hver annars manngildi. En ef vér nú ættum að aðgreina þetta tvent: samúð og virðingu — sem varla mun auðið að gera —, halda öðru, en hafna Iiinu, þá látum oss umfram alt kjósa hið síðarnefnda, svo að vér getum haldið áfram að virða hver annan. Eg get yel sagt um með- bróður minn, að mér þyki ekki vænt um hann„ en að ' eg virði hann. En segði eg hinsvegar

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.