Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1917, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.09.1917, Blaðsíða 10
104 HEIMILISBLAÐIÐ konungur? Mér virðist iiann miklu frekar líkjast sendiboða Saladíns. Segið oss, Sir Godvin, voruð þór ekki ásamt bróður yðar einusinni gestir soldáns i Dami'skus?11 „Svo var það, br. musterisriddari. Yið fórum þaðan áður en striðið var boðað“. „Og“, hólt spyrjandinn áfram, „voruð þór ekki foringjar fyrir lífverðL soidáns?11 Allir horfðu á Godvin, er hikaði við að svara, því hann sá það glögt hvernig svar hans mundi verða skilið, svo AYulf svaraði með hárri röddu: „Jú, þann starfa höfðum við á hendi stutta stund, og frelsuðum líf Saladíns þegar launmorðingjar réðust á hann til þess að myrða hann.“ „Ó“, sagði musterisriddarinn. „Þér frels- uðuð líf Saladíns. Því get eg trúað. Þér sem eruð kristnir, og öllu öðru fremur ættuð að vilja bann dauðann. Nú, riddarar, svarið enn einni spurningu minni“. Með tungu minni eða sverði mínu?“ hróp- aði AVulf, en konungur rétti upp hönd sína og krafðist hljóðs. „Sleppið veitingahúsvenjum yðar og svar- ið mór, ungi maður“, hélt musterisriddarinn áfram. „Eða svarið þér heldur Sir Godvin. Er frænka yðar Bósamunda, dóttir Sir And- rew d’Arcy, systurdóttir Saladins, og hefir hann gert hana að prinsessu af Baalbec, og er hún nú á þessari stundu í Damaskus?“ Hún er systurdóttir hans“, svaraði Godvin rólegur. „Hún er prinsessa af Baalbec, en hún er ekki sem stendur í Damaskus". „Hvernig vitið þér það, Sir Godvin?" „Eg veit það, því i sýn minni sá eg hana sofandi í tjaldi Saladíns11. Ráðið fór að hlæja, en Godvin hélt áfram: „Já, herra musterisriddari, og í nánd við þetta skrautlega tjald sá eg marga musteris- riddara liggja dauða. Minnist þess þegar sá tími kemur, að þér sjáið þá líka“. Nú dó hláturinn út og ótta sló á flesta, en til sumra mátti heyra orð á stangli: „Galdrar! Bukl! Hann hefir lært þetta af heið- ingjurn “. En hinn óttalausi musterisriddari hló og mældi hann með augunum. „Þér trúið mér ekki“, sagði Godvin. Þór trúið máske ekki heldur, þó eg segi yður, að meðan eg var á verði upp á fjallsbrúninni, sá eg yður vera að rífast við greifann af Tripolis, unz þér dróguð sverð yðar úr slíðr- um og slóguð því í þetta borð“. „Báðið starði á hann enn á ný með undr- un, og tautaði oitthvað sín á milli, því þoir höfðu séð það sama, musterisriddarinn svar- aði: „Það getiir hann hafa fengið að vita hjá öðrum en englum. Það hafa margir gengið inn og út úr þessu tjaldi. Herra minn og konungur! megum við eyða meiri tíma í slík- ar sýnir, sagðar oss af riddara, er við vitum allir að hefir verið ásamt bróður sínum í þjón- ustu Saladins, sem þeir eftir þeirra sögusögn yfirgáfu til þess að berjast móti honum í þess- ari stj'rjöld. Látum svo vera. Við höfum ekki tíma til að dæma um það, þó eg, ef öðruvísi stæði á, mundi ákæra Sir Godvin d’Arcy sem galdramann er stæði í sviksam- legu sambandi við hirm sameiginlega fjand- mann vorn“. „Og eg mundi reka þá lygi niður í yðar eigin háls með sverðsoddi mínum“, hrópaði AYulf. En Godvin ypti aðeins öxlum og musteris- riddarinn hólt áfram án þess að gefa honum gaum: „Konungur! vér bíðum úrskurðar yðar, og hann verður að koma sem fyrst, því tæpar þrjár stundir eru til morguns. Eigum vór að halda móti Saladín sem hugrakkir kristnir menn, eða eigum vér að liggja hér sem lyddur?“ „Herra konungur sagði Rayraond greifi og stóð upp. „Hlustið á mig áður en þór svar- ið, það verður máske í síðasta sinn, því eg er gamall hermaður og þekki Serki mjög vel. Borg mín, Tiberias er unnin, þegnar mínir drepnir og kona min fangi í höll sinni, og verður bráðlega að gefast upp ef engin hjálp kemur. Þó segi eg yður, sem hór eruð sam- an komnir, að betra er það en að vér förum á móti Saladín. Látum Tiberias þola sin ör- lög, en frelsið her yðvarn, sem er hin síðasta

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.