Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1920, Page 4

Heimilisblaðið - 01.08.1920, Page 4
116 ÍÍEÍMILISBLAÐÍÖ um spámanninn. Hve fær hann var um alla hluti! Og nú var hann búinn að heyra til hans sjálfs tala um Himnariki. Og þá fanst hon- um aftur sem himin og jörð rynnu saman í eitt, — eins og úti á vatninu. Hann lá vakandi og var að hugsa um þetta um nóttina. Uppi yfir honum glitr- uðu stjörnurnar, og honum fanst hann kenna unaðslegs svima, þegar hann horfði upp til þeirra. felta var uppi á hásléttu einni. þeir höfðu tekið sér náttstað þarna og honum fanst vatnið, landið og þorpið þar sem móðir hans var nú annaðhvort að mala korn eða vefa, vera langt-langt fyrir neðan. Petta voru ánægjulegustu dagarnir, sem Mikkael hafði lifað. Hér var hann svo nálægt Guði ísraels. Mikkael lokaði augun- um. Hér var yndislegt! Hér var hann svo óhultur. Hann sá grænu sléttuna og allan þennan inarglita mannfjölda, þó liann væri með lokuð augun. Og spretthörðu fiskana, sein hann liafði séð í vatninu. Hann hafði sjálf- ur veitt tvo fiska. Og nú sá hann svo greini- lega ásjónu Jesú fyrir hugskotssjónum sín- um. Þær komu hver af annari, allar mynd- irnar, eins og skýin á himninum, og á milli þeirra glitruðu sem stjörnur orðin, sem hann hafði heyrt af munni Meistarans. »Þar sem tveir menn eru saman, þar er Guð nálægur«. Það er þegar við mamma sitjum sam- an og erum að bæta netin, og hún er að segja inér frá Jósef og bræðrum hans og lsraels-þjóðinni. Og þannig var það einnig þegar eg gekk með Andrési í fjörunni og var að segja honum hvað eg ætlaði að gera, þegar eg yrði stór. »Og eg er með þeim, sem er einmana«. Það er eins og núna. Þessvegna er eng- in hætta að vera hérna úti á eyðimörkinni. Ef að hingað kæmi annaðhvort ljón eða björn, þá mundi eg fara að eins og Davíð: kyrkja þau. Og ef að mamma deyr og eg verð einstæðingur, þá verður hann með mér. »Lyftu steininum og þú munt finna mig þar, kljúfðu tréð og eg er þar«. Petta var undarleg setning. Það var eins og hann sæi altaf til þeirra. Þegar hann hafði farið með móður sinni til móðurbróður sins, sem bjó langt-langt i burtu, til þess að hjálpa til við uppskéruna, þá hafði liann gert bál lil þess að elda við matinn. Og hann hafði rogast með eins þunga steina og hann gat frekast boiið, til þess að byggja úr þeim hlóðir. Þegar liann lyfti upp steinunum, var venjulega undir þeim fjöldi smádýra, sem ýmist lmipruðu sig saman, eða þutu í burtu. Og svo hafði hann höggvið við til eldsneyt- is. Þá hafði honum sannarlega ekki dottið í hug, að Guð væri þar. En hann skildi svo vel hver meiningin var, — þessi: að Guð er eiginlega alstaðar. Jafnvel þó að maður gæti falið sig undir stórum steini eða í holum trjábol, þá sá Guð manninn altaf. Það var eins og hann fyndi það á sér. Ilann hafði séð að spámaðurinn og tveir menn aðrir höfðu gengið framhjá, skamt þar frá er hann lá og haldið hærra upp í fjöllin. En þó var eins og að augu hans vektu yfir öllum þessum fjölda, sem þarna lá sofandi. v Hann ætlaði, þegar hann kæmi heim, að biðja mömmu sína að skýra fyrir sér ým- islegt, sem Meistarinn hafði sagt. Þessvegna var hann nú að hlýða sjálfum sér yfir það sem hann mundi helzt af þvi. »Yerið góðir miðlarar«, — það var ein setningin. Það var áríðandi að afla sjálfum sér og öðrum rétlrar tegundar gjaldeyris, þegar lagt væri af stað til eilífðarlandsins. Þá var um að gera að hafa á reiðurn höndum þá mynt, sem þar gilli. Það var gagnslaust að koma þangað með denar. Hann var alls elcki gjaldgengur þar. Jafnvel þó hann hefði 200 denara. — En nú mundi hann ekki greinilega hvernig spámaðurinn hafði kom- ist að orði. En það var eitthvað á þá leið,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.