Heimilisblaðið - 01.09.1936, Blaðsíða 4
130
HEIMILISBLAÐIÖ
Jesse Ow-
ens, r egr-
inn, sem
setti nýtt
heinismet
í 100 m.
hlaupi og
langstökfíi
— sem þó
fást ekki
viöurkend
vegna
meðvinds.
(»Reichsportfeld») er Þjóðverjar höfðu
bygt aðallega vegna Olyrapíuleikanna.
Rúmuðu þessar byggingar samtals um
200.000 áhorfendur, og mun oft bafa ver-
ið um 150.000 manns samtímis að horí'a
á kappleikana. En auk þess fóru ýmsar
íþróttir fram á öðrum stöðum, svo sem
hjólreiðar, róður, siglingar, skotfimi o. fl.
Mun ekki mikið í lagt, þó gert sé ráð
fyrir, að áhorfendasvæðin á Olympíuleik-
unum hafi alls rúmað um 350—400.000
manns. Sést af þessu, livílíkt risaleiksmót
Olympíuleikarnir eru og hve stórkostleg-
an undirbúning þarf til að lralda þá,
enda unnu um 2500 manns í nærri 3
ár aðeins að byggingu aðalleikvangsins.
Þátttaka í Olympíuleikunum hefir aldr-
ei verið eins inikil og nú, þrátt fyrir
mikinn andróður gegn leikunum af póli-
tískum uppruna. Tóku 52 þjóðir þátt í
leikunum með samtals um 5000 íþrótta-
menn. Meðal þjóða þeirra, er þátt tóku
í þeim, voru íslendingar — í fyrsta sinn
undir sínum eigin fána. Sendu íslending-
ar samtals 15 keppendur, í sundknattleik
og frjálsar íþróttir. Árangur hvað sigur-
vinninga snertir var ekki mikill enda
var það vitað fyrir fram. En hins má
vænta, að mikill árangur verði af för ís-
lenzkra íþróttamanna á leikana, því áreið-
anlega liafa þeir bæði sótt þangað áhuga
og þekkingu. Auk keppendanna fóru á
leikana í boði framkvæmdanefndar leik-
anna, 30 íþróttakcnnarar og -leiðtogar,
víðsvegar af landinu, og má áreiðanlega