Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 23

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 23
63 heimilisblaðið uöga hjúkrunarkonu liérna með mér. Hún er að vísu ekki þrekmikil, en mun þó geta hjálpað eitthvað til. Það er elzta Jóttir mín og hún kom sjálfkrafa í morg- un, og bað um leyfi til að hjálpa yður, Hlsen“. Maðurinn hopaði eitt skref aftur á bak °g hristi höfuðið óánægjulega. »Nei, nei, nei, það lánast aldrei, — svona lítil stúlka í slíkum ærslum og óreiðu!“ »Ég er alls engin lítil stúlka“, sagði ^ngibjörg þá, og var kafrjóð af ákafa. „ég hefi krafta í kögglum og er vön við að ^eita þeim. Pabbi og mamma hafa ekki alið mig upp sem stássmey, og nú verðið þér að taka í liönd mína, Ólsen, og bjóða 'uig velkomna!“ vNei, það get ég ekki“, svaraði hann, en samt tók hann í framrétta hönd lienn- ar- Svo hljóp hún inn í ganginn, fór úr utanyfir-fötunum og hengdi á fatakrók- >nn. Að svo búnu kom hún aftur, og var þá búin að setja á sig stóra brjóstlilífar- svuntu, og reiðubúin til að taka til starfa. Læknirinn horfði á hana með sýnilegri ^u^gju, og þótti hún fara rösklega af stað. Hann var þó all-valdsmannslegur í máli, þegar liann bauð lienni að koma með sér °g taka vel eftir öllum fyrirmælum sín- Um. Hegar þau opnuðu dagstofudyrnar, spratt fölleit og hálfsofandi stúlka upp M stól, sem stóð í ofnskotinu. «Ég kem undir eins“, sagði hún og reikaði að svefnhússdyrunum. ^Bíddu svolítið, stúlka mín“, sagði Heknirinn, „þú ert ekki fær um að vera *l fótum; farðu í rúmið undir eins!“ ’Já, en hver á þá---------“. Hún fór gráta. læk: Við skulum sjá um það“, svaraði nirinn og klappaði hughreystandi á lierðar henni. „Farðu í rúmið segi ég enn, og liggðu þar þangað til að læknirinn þinn leyfir þér að fara á fætur“. „Ó, þökk fyrir, — má ég það?“ — Syo flýtti lxún sér út. „Þú verður að gefa henni kjarngóða fæðu, Ingibjörg, oft, en lítið í einu. Að öðru leyti skaltu lofa henni að sofa í ró og næði“. Svo kom röðin að húsmóðurinni. Hún sat uppi í rúminu og studdist við rúm- bríkurnar. Hún var uppþrungin af sótt- hitanum og æsingarsvipur á andlitinu. Læknirinn lieilsaði henni vingjarnlega, tók á slagæðinni og lagði hana svo var- lega útaf í rúmið. „Reynið að vera róleg, frú Ólsen, því hreyfingarminni sem þér liggið, því betra. Hérna kem ég með lyfið, sem ég lofaði yður í gær“. „Hvaða gagn gera þessi lyf, þegar mað- ur fær þau ekki á réttum tíma. Ólsen gleymir mér, já, það gerir liann sannar- lega, og stelpuræfillinn ruglar glösunum saman, svo að börnin fá mitt lyf og- ég þeirra. Hún gæti vel tekið upp á að gefa okkur nætxirdropana í matskeið, en gefa okkur svo lyfið af stóru glösunum í dropatali; svona er hún nú“. „Sei, sei, nú ýkið þér, en ég tel senni- legt, að stúlkan hafi verið dálítið viðutan, því að hún er orðin veik sjálf og þarfn- ast hvíldar. Hérna er komin önnur stúlka, sem ætlar að hjálpa yður, eins og liún get- ur. Þér verðið að taka vel á móti henni, frú Ólsen, því að annars missir hún kjark- inn. Þér getið reitt yður á, að hún kann að telja dropa, og að hún man eftir að gefa lyfin á réttum tíma. — Það er elzta dóttir mín“. „Dóttir læknisins! Nei, losið mig við hana. Þá vil ég margfalt heldur sitja með Annínu, hvernig svo sem hún er!“

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.