Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 24

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 24
64 H EIMILISBLAÐIÐ ,,Annína þarf lijúkrunar \ift sjálf og er þegar komin í rúmift. -—- Liggið nú kyrr, þetta getur ekki orðið öðruvísi en svona, kona góð. Hvernig líður börnun- um?------Já, litlu vinir, þetta er erfitt, en nú skuluft þift bara sjá, livað stóra stúlkan þarna, — liún heitir Ingibjörg. — er með í fórum sínum handá ykkur. Þið verðið nú aft hlýða henni í öllu, skilj- ið þið það? — Verið þift svo öll sæl! — — Mér virðist börnin vera heldur skárri. Sjáðu til, Ingibjörg, á miðanum þeim arna er allt upp skrifað, sem þú átt að gera, allan daginn. Ef lil vill skrepp ég hingað, allra snöggvast, seinna í dag. — Verið í Guðs friði, öll saman“. „Kveddu mig nú almennilega, pabbi!“ sagði Ingibjörg og sté upp á vagnþrepið, og rétti ennið að honum, svo að hann gæti kysst á það. Læknirinn hló. „Hvernig lízt yður á svona stelpu flón, Ólsen?“ Garðyrkjumaðurinn svaraði þessu ekki, en þegar læknirinn var farinn, sagði hann í hálfum hljóðum við lngibjörgu: „Ég er reiðubúinn til að hjálpa, hve- nær sem er. þegar kveikja þarf upp í eld- húsinu eða ofninum, sækja vatn, snúa við sængunum og hrista' þær og þess háttar“. „Eg þakka yður fyrir, það þykir mér vænt um, en nú skuluð þér taka á yður náðir, Ólsen, yður er það alveg óhætt. Það stendur á seðlinum mínum, að gæta þess, að þér fáið nægan svefn; það stend- ur meira að segja efst á honum“. „Eg þarfnast aft vísu hvíldár, en trevst- ift þér yður til að vera ein?“ \ „Það færi nú ekki vel; ef ég gerði þaft ekki“. „Eg legg mig fyrir uppi í kvistherberg- inu, en komi nokkuð fyrir, þá 'skuluð þér berja í eldhúsloftið með sópinum, og þá kem i ég undir eins“. Þegar hann var farinn, kraup Ingibjörg á kné: „Ég get ekkert, Drottin, en þú, sem hefir sent mig munt hjálpa mér!“ Því næst þvoði hún börnunum, bjó um þau og lét þau fá leikföngin sín og gaf jieim loks lyfið. Það var ekki auðunnið \erk að koma lyfinu niður í þau, móð- ir þeirra varð aft kalla hótun sína: „Á ég að koma!“ áður en það yngsta þeirra fékkst til að opna munninn. Þetta var ekki fátækt heimili, og bús- áliöld og fatnaður var í góðu lagi. En um veikindatimann hafði allt komizt í megn- ustu óreglu og margt, sem nota þurfti, lá í graut, hvað innan um annað. Ingibjörg ræsti og lagaði til, eftir beztu getu, þang- að til að rúmgóða en lágloftaða svefnher- bergið var orðið jiokkalegt. næstum því vistlegt útlits. „Má ég nú ekki búa um rúmið yðar, frú Ólsen?“ „Nei, það er af og frá! — Farið þér frá mér, snertið mig ekki!“ „Pabbi sagði —----“ „Það er mér alveg sama um, ég vil fá að vera í l’riði. Farið þér heldur heirn til yðar, ungfrú“. Ingibjörg hristi höfuðið og laumaðist inn í litlu hvítkölkuðu skonsuna, sem vinnukonan lá í. „Á ég að fara á fætur?" næstum því æpti hún upp. „Nei, liggðu'bara kyrr“. Svo sofnaði hún undir eins aftur. Um miðdegislevti reis frú Olsen upp í rúminu. „Hvað er það, sem rýkur og síður þarna á ofninum?“ spurði hún með ákefð, „ég \ il fá að vita livað það er“. „Það eru kartöflur. Ég kom með steik aft heiman og ætlaði að fara að bera ;í

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.