Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 28

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Page 28
68 v „Ekki öll, því að ég heyri að það brak- ar og brestur í stiganum. — Góðan dag- inn aftur, Olsen! Getið þér notast við telpuna?“ „Læknirinn getur reitt sig á, að hún stendur sig vel, Börnin æmta ekki þegar hún sýnir sig4'. — Um leið og þau opnuðu stofudyrnar, streymdi hitinn lit á móti þeim. „Hvað hugsar þú, Ingibjörg, þú gætir þess ekki að hitastigið sé hæfilegt inni!“ „Hún er löglega afsökuð, hvað það snertir“, sagði garðyrkjumaðurinn og skipaði sér í varnarstöðu fyrir hana. „Ég hefi tekið að mér að annast um kyndingu ofnsins, og vegna þess, að ég þurfti að fá mér svolítinn blund, þá bætti ég rækilega í ofninn áður en ég fór að sofa. Annars ætti hún ekki að vera hér til að krókna úr kulda eða ofkælast“. „Hún, — hver er að tala um hana? Það er þó betra að hjúkrunar-konunni verði kalt, en að sjúklingurinn stikni í hita. Við skulum opn hurðina þarna. — Hvers vegna er hún lokuð?“ „Það er viðhafnarstofa húsmóðurinn- ar“. „Komið með lykilinn engu að síður, Olsen, þökk fyrir. Hann var samvizku- samlega geymdur! Sjáið þið til, þetta bæt- ir loftið. — Hvei nig líður stúlkunni?“ „Hún er ákaflega heit, pabbi, og sefur næstum því óslitið“. „Það er bezt að ég líti fyrst inn til hennar. Liggur hún þarna inni? — Kom- ið þér hérna, Olsen. finnst yður þetta verjandi?“ Veggirnir í þessu litla herbergi flutu út í raka og hálfhráðinn snjór, sem fok- ið hafði inn um gisinn gluggann. huldi höfðalag stúlkunnar. Annína opnaði augun og liorfði biðj- andi á læknirinn. HEIMILISBLAÐIÐ ,;Ég á þó vænti ég ekki að fara á fæt- ur?“ * „Sannarlega ekki. En það fer ekki vel um þig hérna. Við verðum að flytja þig. Ef að þér eruð mér sammála, Olsen, þá berum við hana beint inn í viðhafnarstof- una“. „Mín vegna má það, en ég er smeikur um, að konunni mislíki það svo, að hún híði tjón af því“. „Það verður hún að eiga við sjálfa sig um, en það er mitt hlutverk, að sjá um sjúklinginn. Takið þér undir endann, sem þér standið við, og ég tek undir fótagafl- inn. Ég held að okkur takist að bera rúm- ið inn þó að stúlkan liggi í því“. „Bíddu andartak, pabbi, á meðan ég segi frú Olsen frá þessu; það verð ég að gera“. „Verði ég að bíða, þá bíð ég“, svaraði læknirinn og kinkaði kolli til liennar, til samþykkis. Konan lá grafkyrr á meðan Ingibjörg færði lienni þessi tíðindi og opnaði ekki einti sinni augun en svaraði þó ofur sljó- lega: „Látið eins og ég sé ekki til“. „Nú er ekkert að vanbúnaði, pabbi“, sagði Ingibjörg, þegar luin kom aftur. „Það er ágætt, þá komum við. Liggðu bara grafkyrr, Annína. Nú förum við þessa leið. Opnaðu dyrnar upp á gátt, Ingibjörg, og færðu legubekkinn til hlið- ar. — Svona, hér er ágætt stæði fyrir rúmið“. „Það var mikið að hún skvldi leyfa þetta“, sagði Olsen og horfði spyrjandi á íngibjörgu. Þegar læknirinn var búinn að athuga sjúklingana, kallaði hann á dóttur sína og mælti: „Ástand konunnar hefir breyzt, og er hún nú orðin ofboð sljó í stað æsingsins, sem áður var í henni. Reyndu að fá hana

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.