Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Side 40

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Side 40
80 HEIMILISBLAÐIÐ mann við sitt hæfi meðal landseta minna eða þjóna, t. d. Anton ökumann eða einhvem af líku tagi”. „Faðir minn“, sagði ég í bænarróm, „gerðu það ekki, ég bið þig auðmjúklega sem son- ur þinn, leyfðu mér að eiga Annitu. Ég full- vissa þig um það við allt, sem mér er heil- agt, að ég kvongast aldrei annari stúlku“. „Hvaða vitleysa“, kallaði faðir minn, „þeg- ar þú einu sinni ert kvongaður Feodoru og Annita gift Anton, þá rjúka þessir ástarduttl- ungar úr þér, og þá finnst þér að þú getir aldrei fullþakkað mér, að ég nú tók af þér ráðin“. „Faðir minn, vertu ekki að hæða okkur. Annita myndi fyrr taka lífið af sér, en að giftast Anton eða nokkrum af landsetum þín- um. Til þess hefir liún fengið of gott upp- eldi, og þess utan sagði lnin mér í gær, að hún hafi óvallt elskað mig frá því að hún var tiu ára gömul“. „Ég um það, ég skipa hér“. „Ekki Annitu“, sagði ég. „Heldurðu það?“ „Hún er ekki dóttir þín og heldur ekki þræll eða leysingi þinn“. „Hver hefir alið hana upp í tólf ár?" „Það hafið þið tnóðir mín gert“. „Þá hugsa ég að við eigum líka að ráða fvrir framtíð hennar“. „Nei, þegar um það er að ræða, að ákveða framtíð Annitu, þá finnst mér að ég hafi lika atkvæði um það mál, því ég hefi frels- að líf hennar“. „Jú, jú, þessa sögu hefi ég heyrt þig segja áður“. „Faðir minn, hefur þú nokkra ástæðu til að álasa Annitu“. „Nei, alls enga, en ég vil ekki, að sonur minn fari að blanda finnsku blóði inn í ælt vora. Ég vil' að þú eigir stúlku, sem er jafn- ingi þinn að tign og stöðu og það er Fedora Petrovna“. „En ef ég nú hvorki get eða vil“, sagði ég enn þá einu sinni. „Getur ekki eða vilt ekki. Þú skalt“, hróp- aði gamli maðurinn í bræði. „Skal ég!“ „Já, þú skalt. Ég er liúsbóndi i mínu húsi og ræð yfir fjölskyldu minni. Þú skalt kvong- ast Fedoru, hvað sem það kostar, jafnvel þó ég þurfi að færa þig í höndum og með huúta- svipunni að altarinu. Að minnsta kosti gef ég aldrei samþykki mitt til þess að þú kvong- ist Annitu. Nú veiztu hvað þér her að gera, og svo er óþarft. að við tölum meira um þetta mál“. „En þá eitt orð“, sagði ég með mestu auð- mýkt. „Ég er einkabam þitt og erfingi, og ég verð þó að ætla, að þú berir einhvern yl í hrjósti til mín. Hvers vegna geturðu þa ekki samþykkt kærustu ósk hjarta míns. Annita mun verða mér trúrri og hjartfólgnari eig- inkona en nokkur önnur af konum þeim, sem ég hefi kynust. Hvers vegna skyldum við Ann- ita, sem að einu leyti erum bæði börn þín, verða að neyðast til að hölva þér í stað þess að blessa þig!“ „Ég veit miklu betur en þú hvað þér er fyrir beztu í framtíðinni. Þetta eru ekki ann- að en ástarórar, sem þú ert, nú sem stend- ur, haldinn af og ekki mun líða ó löngu áð- ur en þú af sjálfsdáðum hættir við þessa flónsku“. „Nei“, sagði ég, „ekki fyrr en Annita dg ég erurn dáin“, og með þeitn orðunt skild- um við feðgar. Ég gekk til móður minnar í illu skapi og skýrði henni frá öllu, sem gerzt liafði, og þrátt fyrir það þótt liún hefði lielzt viljað, að ég kvongaðist Fedónt, lield ég að hún hafi samt sem áður fyrirgefið okkur og lagt yfir okkur hlessun sína. Móðir fyrirgefur ætíð einkasyni sínum, og ég er viss um, að móðir mín hefði tekið málstað minn jafuvel þó að ég hefði verið bæði ræningi og morðingi. En

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.