Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1943, Qupperneq 6

Heimilisblaðið - 01.06.1943, Qupperneq 6
98 heimilisblaðið . . LANGFERÐ UM LÍFSIIVS II\F“ Hugvékja, flutt á sjómannadegi slysavarnardeildarinnar „Björg“ í Grunnavíkurhreppi, sunnud. 7. júní 1942. „Hlýðið með lotningu og athygli lieil- ögu orði Guðs, er svo hljóðar í nafni Drottins vors og Frelsara, Jesú Krists'i (Sálni. 107, 23í n. v.). „Þeir, sem fórtt um höfin á skipum, þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir lians á djúpinu. Því að hann bauð og þá kom upp stórviðri, sem hóf upp bylgjur þess. Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni. Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn rnaður og öll kunnátta þeirra var þrotin. Þá lirópuðu þeir til Drottins í nelfð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra, hann breytti stormviðrinu í hlíðan blæ, svo að bylgjur Jiafsins urðu liljóðar. Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrð- ust, og hann lét þá komast í liöfn þá, er þeir þráðu. Þeir skulu þakka Drottni miskunn Jians og dásemdarverk við mannanna böm, vegsama liann á þjóðarsamkomunni og lofa Jiann í hóp öldunganna“. Þannig Jdjóðar hið lieilaga orð, kristnu vinir. Og Guðs orðið er ljós og lampi á veg- um mannsbarnsins livar sem þeir liggja, og þeir eru sælir — samkvæmt orði Krista sjálfe — sem lieyra það og varðveita. Á þessum tímum, þegar svo að segja öll veröldin brennur í vítisglóð sinna eigin synda, vitfirringar og stríðsæðis, er það að verða almenn veuja kristinnar, íslenzkrar þjóðar, að vegsama Drottinn á æskulýðs-félagadeilda og þjóðarsamkomum, og sérstaklega er þessi fagri og liolli siður orðinn almennur í sam- bandi við liinn þjóðkæra og fagnaðarríka sjómannadag. Þjóðin veit að það á bókstaf- lega við sjómanninn, það sem í sálminum stendur: „Ég er á langferð um lífsins haf“. Og þegar Drottinn, sem er góður og kær- leiksríkur, liefir lieyrt bænir sjómannanna sjálfra, eiginkvenna, foreldra og barna, og safnað sjómönnunum saman úr öllum áttum hafsins: frá austri og vestri, frá norðri og suðri, og leitt þá lieila í höfn með feng og blessun til ástvina sinna, viua og vandamanna, þá fyllast lijörtu mannanna fögnuði og sælli gleði. Skapið verður hlýtt og bjart eins og vorheiði liiminsins, og gleðin og sælan brýzt út í lofsöng á samkomunni, því Hann hefir leyst vini vora og félaga úr nauðum, varð- veitt þá frá liættum og blessað þá — og við vitum að miskunn Drottins varir að eilífu- Eins og að líkum ræður hefir sjómanns og farmannseðlið verið ríkt með íslenzkum æskumönnum, síðan sögur liófust. Þetta liggur bæði í legu fagurmöttluðu, skrautprúðn fjalladrottningarinnar, ættarlandsins, sem hvílir í guJlbúinni livílu sævargróðrarins — og í fornhelgum arfi frá Iiinum stórbrotnu, frjálsliuga, framgjörnu, framsýnu og vitru forfeðrum vorum, sem um er kveðið: Og út til hins kynlega, Iogfrána landt leitaði fornhetju skarinn, en öndvegissúlur frá hásætum hant helguðu leið yfir marinn — og norðurheimstungan' hins norræna mann* nam þar arinn. Og svo má ekki gleyma því, heldur ber að muna það og þakka, að þrátt fyrjr það að sag* an staðfestir það, skáldið kveður: Oft finnst oss vort land eins og Itelgrimmd- ar hjarn, — þá er hitt jafn satt, að það ef eins og móðir við barn, er blessaðasta land- ið í veröldinni og ekkert, sem að þjóðinni amar ef víkingslund liennar og sundurgerð er í skefjum haldið, innbyrðis. Þetta land með eldgosum, hafísum, hallaer- um og drepsóttum er orðið bezta landið, og þjóðin — ]>rátt fyrir hernám — frjálsasta þjóðin, ef hún kann með að fara. Landið hefir — eins og í heilögum ritningum stend- ur — verið blessað með himinsins dýrinæt- ustu gjöf, dögginni og frjóseminni og með djúpunum, sem umhverfis það hvíla, blessað með hinu dýrmætasta er sólin framleiðir, og með hinu dýrmætasta,' sem tunglin látð spretta — með hinu bezta á hinum eldgönd11 fjöllum og með hinu bezta á hinum eilíÞ1 hæðum, blessað með dugnaði og friðsömn framtaki og frelsi sinna beztu dætra og sona- Og í dag er svo minnst sæfaranna, sem

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.