Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 20
112 HEIMILISBLAÐie barnið, ótugtaranginn þinn“, sagði ég og gaf henni sitt undir hvort, og barði liana, auk þess, bæði á hálsinn og handleggina. — „Nú er nóg komið“, sagði hann þá allt í einu og liélt höndunum á mér föst- um, en telpan hljóp grátandi lieim til mömmu sinnar. „Hvernig getur þú fengið af þér að haga þér svona, Stína?“ sagði hann blíð- lega, en sárhryggur, en ég svaraði í vonzku, að ég gæti verið enn verri, og svo sleit ég mig af honum og þaut inn með barnið. Eg bjóst svo við, að liann leitaði sátta við mig á eftir, og liann hef- ir víst búist við liinu sama af mér, en hvorugt okkar gerði það, og jafni mað- ur ekki þess konar með sér, situr það í manni og grefur um sig. Þó áttum við inargar ánægjustundir eftir þetta, en margar slæmar líka, og svo er ungfrúnni kunnugt um hver endalokin urðu“. Hún þagnaði andartak, en þegar Ingibjörg sagði ekki neitt heldur, þá liélt hún áfram: „Eg lield að hann hafi oft langað til að koma sættum á á milli okkar, en í livert skipti, sem hann kom nálægt því, var eins og einhver illur andi legði mér særandi orð í munn. — Einu sinni, — ó, ungfrú, það er sárt að liugsa til þess, að ég skyldi geta verið eins og ég var, — kallaði liann á mig. Það var nýút- sprungin fágæt, útlend blómtegund í garðinum, sem liann liafði lengi hlakkað til að sjá. Og liann kallaði til mín í gleði sinni: „Komdu liingað, Stína, og þá skal ég sýna þér nokkuð“. Og þegar ég Jvom ekki, kallaði liann aftur: „Stína!“ — Þá sneri ég mér til lians og spurði eins ill- yrmislega og ég gat, og benti um leið á útihúsið í garðinum: „Ætlarðu að stinga mér þarna inn?“ Hann náfölnaði, en sagði ekki neitt, en ég hljóp niður í kjall- ara og grét eins og ég ætlaði að springa. — Hvernig lízt yður á, ungfrú?“ „Ég lield að líf án Guðs sé hræðilegt“, sagði Ingibjörg, og bún spennti greipar og bað: „Beygðu hjörtun okkar eftir vilja þín- um, himneski faðir og lát okkur koma auga á synd okkar, og á hann, sem þú sendir“. Og svo talaði hún milt og þýtt um frelsarann og um óumræðilegan kær- leika lians. „Þökk fyrir, ég hefi nú lieyrt þetta oft áður, en þó er eins og mér finnist það nýtt núna. Bara að maður gæti trúað því, að það sé manni sjálfum viðkomandi, eu það kemst aldrei inn í höfuðið á mér. Segið nú ekki l'leira, ungfrú, því að nú er ég orðin þreytt“. Litlu seinna féll hún í órólegt rnók, en öðru hvoru reis hún upp og sagði nokkur orð. Einu sinni heyrði Ingibjörg hana tauta: „Bara að liúsið stæði ekki þarna í garðinum, en það stendur þar allt af“. Undir morguninn varð andardráttur- inn rólegri og svefninn værari, og þá tók unga hjúkrúnarkonan líka á sig náðir. „Hvernig er líðanin?“ spurði garð- yrkjumaðurinn, sem læddist inn á sokka- leistunum og fór að bæta mó í ofninn af mesta ákafa. „Mér virtist að hún væri mjög óvær í nótt. Ég lieyrði það upp til mín“. „Hún sefur núna“. „Já, ég sé það. En hvað hún er föl og mögur, veslingurinn. Var hún með óráði?“ „Nei, hún talaði skýrt og skynsamlega- Það var aðeins núna upp á síðkastið, sem ég lield að hún liafi talað upp úr svefn- inum“. „Hvað var hún að segja, ef ég wa spyrja“

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.