Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1973, Page 6

Heimilisblaðið - 01.08.1973, Page 6
einnig í einhverjum erfiðleikum. X móttöku- tækinu mátti lieyra hvernig hann skreiddist inn í liíði sitt hvað eftir annað, en kom jafn- an út aftur. Það var eitthvað, sem liann var að bíða eftir. Merkuf. Loksins þann 11. nóvember blés stormviðri inn yfir svæðið. Þegar Frank opnaði mót- tökutækið, hljómaði dí-dí-dít mjög óreglu- lega og með misjöfnum styrkleika frá hverju senditæki fyrir sig. Eitt tækið sendi svo veik hljóð, að auðlieyrt var, að viðkomandi dýr var lagzt fyrir. En nr. 202 var þá staddur í nokkurri fjarlægð frá liolu sinni, og Frank lagði af stað til að liafa uppi á honum. Hann braust fram gegnum þéttan skóginn og hafði sífellt gætur á jörðinni fyTÍr framan sig, ef hann kynni að rekast á spor bjarndýrsins. 1 tæki sínu gat hann heyrt, að nr. 202 var ekki langt undan, en spor dýrsins gat hann hvergi séð. Skyndilega sá hann svo hvar björninn brokkaði liraðskreiður örskammt þaðan sem hann var. Frank veitti fótum hans eftirtekl — og nú varð liann þess vísari livað það var, sem bjarndýrin jafnan biðu eftir: öflugur stormur með skaffenni, sem gæti afmáð spor þeirra jafnóðum, þegar þau leituðu til liíðis síns! Morguninn eftir voru öll senditækin með „neðanjarðar“-merkjamáli, og hvergi voru sjáanleg spor sem gæfu til kynna hvar hvert og eitt dýr liafði látið fyrirberast. Heima í vísindastofnuninni lögðu bræð- urnir staðreyndimar saman og höfuðin í blevti. Skyndilegt kuldakastið snenuna í sept- ember hafði verið fyTsta viðvörunin — og laðað fram fyrstu viðbrigðin: sljóleikann. Mánuði síðar kom næsta viðvörunin — þörf- in til að leita einverunnar. Á þeim degi höfðu dýrin tekið að nálgast liíði sín í skógum og klettaskomingum. En þau höfðu ekki lagzí til fullkominnar hvíldar, fyrr en lokaviðvör- unin liafði gert vart við sig — öflugi snjó- stormurinn, sem afmáð gat spor þeirra og sveipað landið blæju allt fram á vor. Þar sem Frank rcnndi augum út vfir snævi hulið landið varð honum hugsað sem svo, r.ð enda þótt honum og John hefði ásamt sam- starfsmönnum sínum tekizt að ráða ýmsar gáturnar varðandi lifnaðarhætti bjarnarins, þá væri sú stærsta þeirra og jafnvel sú at- hyglisverðasta þó enn óráðin — þ. e. a. s. sú, hvernig dýrin gátu funditi á sér. að einmitt það vetrarveður var að skella á, sem öllum sköpum skipti, veðrið sem olli því, að öll vötn lagði, fljót sveipuðust klakabrynju og allar leiðir lokuðust til fæðuöflunar allt til vors. Má vera, að þessi leyndardómur verði um alla eilífð mönnum liulinn, en þeim mun betur varðveittur kynslóð fram af kynslóð í lífsreynsluviðbrögðum bjarndýranna sjálfra. í skammdeginu geta börnin verið öruggari, ef þau eru með endurskinsmerki. í sumar fæddust þrír þvotta- bimir í dýragarðinum í Kaup- mannahöfn. Ungarnir hafa verið svo fjörugir að ekki hefur tekist að ná fjölskyldu- mynd. 130 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.