Heimilisblaðið - 01.08.1973, Side 31
Við, sem vinnum eldhússtörfin
GratineraS buff í fati.
ÝMSIR RÉTTIR ÚR HÖKKUÐU KJÖTI
Pottrétturinn hennar Karlottu.
400—500 gr hakkað nautakjöt, smjör
og olía til að brúna kjötið.
2—3 gulrætur
1 rauður piparávöxtur.
1 lítið hvítkálshöfuð (eða bara 'Æ)
1 lítill pakki baunir
ca 100 gr makkarónur (litlar)
salt, pipar, karry, paprika.
ca 4 dl kjötsoð.
Hakkaða kjötið er brúnað vel á pönnu
eða í potti, gulrótarbitar og niðurskorinn pip-
arávöxtur brúnast með, síðan er niðursneitt
kálið, krydd og kjötsoð látið út í og réttur-
inn látinn mala í 6—8 mínútur. Þá eru baun-
ir og makkarónur og soðið áfram í 3—4 mín-
útur og svo er rétturinn tilbúinn og kartöflur
eða brauð borðað með.
GóSur farsbúöingur.
2 egg
5 msk rasp
4 dl mjólk
U/2 tsk salt
*4—'/2 tsk pipar
'/2 kg hakkað kjöt (tegund eftir smekk)
1 lítill raspaður laukur.
Þeytið eggin saman, bætið raspi út í ásamt
mjólk, pipar og salti. Látið blönduna standa
í ca. 15 mín. þannig að raspið nái að blotna.
Raspið laukinn yfir kjöthakkið, liellið síð-
an mjólkurblöndimni smám saman út í og
hrærið.
Smyrjið eldfast fat og látið farsið út í.
Skerið niður tómata og lauk og raðið til
skiptis yfir farsið. Látið nokkra smjörlíkis-
bita út á og sáldrið ofurlitlu karrýi yfir. Lát-
ið í 200 gráðu heitan ofn og bakið í ca 30—40
mínútur. Borðið með beitum kartöflum.
Svo eru hér fimm farsrétir, se m ágætt er
að framreiða handa gestum:
Það góða við þennan rétt er að það er
hægt að búa hann til og hafa hann tilbúinn
þannig að bara sé eftir að gratinera hann í
ofninum rétt áður en borðað er. Grænar
baunir, kartöflur og rauðvín er gott með
þessum rétti:
Vi—3A kg hakkað nautakjöt, salat, pipar
Smjör til að steikja
Til að gratinera
2 tómatsneiðar á hvert buff ásamt
gaffalbitum og röspuðum mildum osti.
Ristað bacon í hring um buffið.
Venjulegt buff kryddáð og steikt í nokkr-
ar mínútur á hvorri hlið. Þá er buffinu rað-
að í ofnfast fat ásamt tómatsneiðum, gaffal-
bitum og osti og ristuðu baconi. Fatið er sett
í ofn og látið vera í heitum ofni 5—7 mín.
áður en rétturinn er borinn fram.
Ur soðinu á pönnunni ásamt kjötkrafti má
búa til sósu, sem er framreidd með ásamt
salati og kartöflum eða hveitibrauði.
Blómkál í farsi meS hvítri sósu.
'/2 kg hakkað svínakjöt
'4 kg nautahakk
4—5 msk hveiti
1 fínt saxaður laukur
1—2 saxaðir hvítlaukar
IV2 tsk salt
V2—1 tsk pipar
1—2 egg
ca 3 dl vökvi, sem getur verið 2 dl
rjómi og 1 dl blómkálssoð
1 meðalstórt hvítkálshöfuð.
Hvít sósa:
2 msk smjör
2 msk hveiti
ca V2 1 vökvi (“/3 rjómi, Vi blóm-
kálssoð), salt eftir smekk.
Steinselja.
Hrærið farsið, það er gott að það standi
í V2 eða 1 klst.
Sjóðið blómkálið til hálfs og kælið það
aðeins.
HEI'MILISBLAÐIÐ
155