Heimilisblaðið - 01.08.1973, Síða 47
Það er sólskin og fuglarnir syngja. Kalla og
Palla finnst allt svo fagurt, þar sem þeir eru í
gönguför með öndinni. „Hæ, gíraffi, fallegt veð-
ur í dag, ekki satt?" Gíraffinn svarar þeim engu.
Palli hækkar róminn: „Gíraffi, það er yndislegt
veður í dag!" „Ha, eruð það þið, Kalli og Palli.
Ég heyri nú ekki vel, skal ég segja ykkur. Það er
svo langt upp í eyrun á mér og ekki bætir það
úr. En annars, hafið þið tekið eftir hvað veðrið
er gott í dag. Hann er alveg ómögulegur, þessi
hengilmæna, hugsa þeir Kalli og Palli með sér,
en sem betur fer sögðu þeir það ekki upphátt.
Kalli og Palli fengu myndavél í afmælisgjöf. Og
nú eru þeir farnir út að taka myndir. Nú reið
mest á að bjarga lífinu og bangsarnir tóku til
fótanna eins fljótt og þeir gátu komist. Á með-
an skemmti tígrisdýrið sér. Kalli og Palli hent-
ust fram af moldarbarði, en um leið þrýsti Kalli
á hnappinn á myndavélinni. . . og þeir fengu hin-
ar skítnustu myndir af loftferð Palla.