Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Blaðsíða 14
út fyrir að vera allt í lagi með þá,“ sagði hann svo. „Nú hafa þeir numið staðar til að hvíla sig svolítið. Nú halda þeir áfram.“ Allt í einu greip hann andann á lofti; hönd hans kipptist örlítið til, og það fór titringur um munn hans. „Walter! Hvað hefur komið fyrir?“ Hann svaraði ekki, svo að hún hljóp að glugganum, en í sama mund skauzt lestin inn í jarðgöng og allt varð koldimmt fyrir augum. í dimmunni laut hann niður að henni og kyssti hana, en hún endurgalt ekki koss hans. „Hvað var það sem þú sást, Walter?" „Ekkert, Margaret," svaraði hann og reyndi að róa hana. „Jú, það var eitthvað sem þú sást. Hrap- aði einn mannanna?" „Oneinei,“ svaraði hann. „Og þeir kom- ast þetta áreiðanlega." Lestin kom úr göngunum í þröngu gljúfri og brunaði nú svo þétt við rætur fjallsins, að ekki sást upp til mannanna á tindinum fyrr en eftir margar mínútur. Margaret var ekki lengi að bera kíkinn að augunum og svipast um eftir fjallgöngu- mönnunum. „Walter, það sést ekkert til mannanna! Þeir hafa hrapað!“ hrópaði hún upp. „Elsku bezta, maður getur ekki séð þá frá þessum stað . .. “ „Víst sjáum við þangað sem þeir voru komnir. Líttu á, sólin glampar á bergvegg- inn, en þeir eru hvergi sjáanlegir.“ „Þeir eru kannski á bak við einhvem klettavegg sem skagar fram, eða komnir niður á einhvem stall sem ekki sést héðan.“ „Ég held að þeir hafi hrapað á meðan 'við gátum ekki fylgzt með þeim.“ „Láttu mig fá kíkinn. Ég skal svipast um eftir þeim,“ sagði hann og ætlaði að setja kíkinn fyrir augun, en hún þreif hann af honum og beindi honum — ekki að klettaveggnum eða sjálfum tindinum, heldur nokkru neðar, að brattri grjót- skriðu, þar sem hún hafði komið auga á tvær hrapandi mannverur. 1 kíkinum sá hún þá mjög greinilega; þeir litu út fyrir að vera látnir. Að því er séð varð, gat hrap niður annað eins grýtt og svelliþakið bratt- lendi ekki þýtt annað en bráðan bana. Þeir litu út fyrir að hafa hrapað um hundr- að metra niður, jafnvel lengra, ef til vill slegizt utan í klettavegginn áður en þeir loksins lentu í snjó. Eftir það hafa þeir svo runnið niður urðina, stjórnlaust. En enda þótt Margaret væri næstum því viss um, að þeir væru látnir, hraus henni hug- ur við þá tilhugsun, að þeir ættu ef til vill eftir að hrapa enn lengra — fram af næsta hengiflugi fyrir neðan. Nú sá hún hvar þeir hentust áfram, unz reipið sem batt þú saman virtist festast í stórri grjót- nybbu. Og þá sá hún loks, hvar á eftir þeim kom á fjórum fótum þriðji maður- inn, sem fikraði sig niður brattann og staðnæmdist loks við lík félaga sinna. Hann lyfti öðrum handlegg eins og hann væri að gera tilraun til að vekja athygli þeirra sem í járnbrautarlestinni voru, þótt langt væri á milli. „Walter! Einn þeirra er á lífi!“ „Nei, Margaret, það getur ekki hugs- ast!“ Hann reis á fætur, en hún hafði ekki þolinmæði til að láta hann um þetta, svo að hún þreif upp dyrnar til þess að ná til neyðarbremsunnar, en annar var þá þegar búinn að því, annars staðar í lest- inni. Eimreiðin gaf frá sér hátt og eymd- arlegt væl, bremsurnar hvinu með ískri, og lestin hnykkti á nokkrum sinnum, unz hún hikstaði sig í stanz neðan við háa brekku. Dyrum var hrundið upp, og far- þegar og lestarstarfsmenn streymdu út. „Hver stöðvaði lestina?" spurði lestar- stjórinn. „Það gerði ég,“ svaraði ungur maður, sem ekki leit neitt óvenjulegar út en aðrir þeir, sem stignir voru út úr lestinni. Hann 98 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.